Herunterladen Diese Seite drucken

Bosch Performance Line SX Drive Unit Originalbetriebsanleitung Seite 502

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für Performance Line SX Drive Unit:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 368
Öryggisleiðbeiningar
Lesa skal allar öryggisupplýsingar og
leiðbeiningar. Ef ekki er farið að í samræmi við
öryggisupplýsingar og leiðbeiningar getur það
haft í för með sér raflost, eldsvoða og/eða
alvarlegt líkamstjón.
Geyma skal allar öryggisupplýsingar og leiðbeiningar til
síðari nota.
Þegar talað er um rafhlöðu rafhjóls í þessari
notendahandbók er átt við allar upprunalegar Bosch-
rafhlöður fyrir rafhjól sem tilheyra kynslóðinni the smart
system.
Þegar talað er um drif og drifeiningu í þessari
notendahandbók er átt við allar upprunalegar Bosch-
drifeiningar sem tilheyra kynslóðinni the smart system.
Lesa og fylgja skal öryggisupplýsingum og
u
leiðbeiningum í öllum notendahandbókum fyrir búnað
rafhjólsins sem og í notendahandbók rafhjólsins.
Ekki skal láta skjá stjórnbúnaðarins beina athyglinni
u
frá umferðinni, sérstaklega það sem birtist á skjánum
við tilteknar aðstæður. Birting akstursupplýsinga má
ekki verða til þess að ekki sé sýnd nægileg aðgát þegar
hjólað er. Ef þú ert ekki með hugann við umferðina í
kringum þig er hætta á að þú lendir í slysi. Ef þú vilt gera
meira í stjórnbúnaðinum en að breyta um akstursstillingu
skaltu stöðva hjólið fyrst.
Stilla skal birtustigið á skjánum þannig að mikilvægar
u
upplýsingar á borð við hraða eða viðvörunartákn sjáist
greinilega. Ef birtustigið á skjánum er ekki rétt stillt getur
það skapað hættu.
Ekki reyna að festa skjáinn eða stjórnbúnaðinn á ferð!
u
Aðeins má nota teymingarhjálpina þegar rafhjólið er
u
teymt. Ef hjól rafhjólsins snerta ekki jörðu þegar
teymingarhjálpin er notuð skapast slysahætta.
Þegar kveikt er á teymingarhjálpinni snúast fótstigin
u
hugsanlega líka. Þegar kveikt er á teymingarhjálpinni
þarf að gæta þess að fæturnir séu nægilega langt frá
fótstigunum sem snúast. Hætta er á meiðslum.
Þegar teymingarhjálpin er notuð skal gæta þess að
u
hafa alltaf góða stjórn á rafhjólinu og gott tak á því. Við
tiltekin skilyrði getur teymingarhjálpin hætt að virka (t.d.
vegna hindrunar á fótstiginu eða ef fingurinn fer óvart af
hnappinum á stjórntölvunni). Rafhjólið getur skyndilega
farið aftur á bak í átt að notanda eða oltið á hliðina. Af
þessu getur stafað hætta fyrir þig, sérstaklega ef farmur
er á hjólinu. Þegar teymingarhjálpin er notuð verður að
gæta þess að lenda ekki í þannig aðstæðum með rafhjólið
að notandinn ráði ekki við það!
Ekki setja rafhjólið á hvolf á stýrið og hnakkinn þegar
u
stjórntölvan eða festing hennar standa út fyrir stýrið.
Stjórntölvan eða festingin geta orðið fyrir varanlegu tjóni.
Ekki má tengja hleðslutæki við rafhlöðu rafhjólsins ef
u
stjórnbúnaðurinn eða skjárinn sýnir alvarlega villu.
Annars er hætta á að rafhlaða rafhjólsins eyðileggist,
kviknað getur í rafhlöðu rafhjólsins og alvarleg
brunameiðsl og aðrir áverkar geta hlotist af.
Bosch eBike Systems
Í stjórnbúnaðinum Kiox 400C er búnaður sem gefur
u
frá sér hljóð. Við ákveðin skilyrði heyrast hávær
hljóðmerki. Hátt hljóðmerkið getur valdið
heyrnarskemmdum. Skal því halda hæfilegri fjarlægð frá
stjórnbúnaðinum.
Varúð, litíum-rafhlaða! Farga skal út sér gengnum
u
rafhlöðum samkvæmt leiðbeiningum. Ef rafhlöðu er
fleygt í eld getur það valdið sprengingu. Ef rafhlöður eru
geymdar við mjög hátt hitastig eða mjög lágan loftþrýsting
getur það valdið sprengingu eða orðið til þess að eldfimur
vökvi eða eldfimar lofttegundir leki út.
Stjórntölvan býður upp á þráðlausa tengingu. Virða
u
skal staðbundnar takmarkanir á notkun, t.d. í
flugvélum og á sjúkrahúsum.
Varúð! Þegar stjórntölvan er notuð með Bluetooth® geta
u
komið upp truflanir í öðrum tækjum og kerfum, flugvélum
og lækningatækjum (t.d. hjartagangráðum og
heyrnartækjum). Einnig er ekki hægt að útiloka skaðleg
áhrif á fólk og dýr í nánasta umhverfi. Ekki má nota
stjórntölvuna með Bluetooth® nálægt lækningatækjum,
bensínstöðvum, efnageymslum, svæðum þar sem er
sprengihætta og á svæðum þar sem er sprengt. Ekki má
nota stjórntölvuna með Bluetooth® í flugvélum. Forðast
skal að nota búnaðinn í lengri tíma í senn nálægt
líkamanum.
Orðmerkið Bluetooth® og myndmerkin (nafnmerkin) eru
u
skráð vörumerki í eigu Bluetooth SIG, Inc. Öll notkun
þessa orðmerkis/þessara myndmerkja af hálfu Robert
Bosch GmbH, Bosch eBike Systems er samkvæmt leyfi.
Fylgja skal gildandi reglum um skráningu og notkun
u
rafhjóla á hverjum stað.
Öryggisleiðbeiningar fyrir hnapparafhlöður
VIÐVÖRUN! Geyma skal hnapparafhlöður
þar sem börn ná ekki til. Hnapparafhlöður eru
hættulegar.
Þegar varan er ekki á rafhjólinu hentar hún ekki til notkunar á
stöðum þar sem börn geta verið nærri. Ef rafhlöðuhólfið
lokast ekki tryggilega skal hætta notkun vörunnar og geyma
hana þar sem börn ná ekki til.
Alls ekki má kyngja hnapparafhlöðum eða setja þær
u
inn í önnur líkamsop. Ef grunur leikur á um að
hnapparafhlöðu hafi verið kyngt eða stungið inn í
annað líkamsop skal tafarlaust leita læknis. Inntaka
hnapparafhlöðu getur valdið alvarlegum efnabruna
innvortis og leitt til dauða á innan við tveimur
klukkustundum.
Gæta skal þess að fara rétt að þegar skipt er um
u
hnapparafhlöðu. Hætta er á sprengingu.
Aðeins skal nota þær hnapparafhlöður sem tilgreindar
u
eru í þessari notendahandbók. Ekki skal nota aðrar
hnapparafhlöður eða annars konar orkugjafa.
Ekki skal reyna að hlaða hnapparafhlöðuna og ekki má
u
valda skammhlaupi í henni. Hnapparafhlaðan getur
orðið óþétt, sprungið, brunnið og valdið meiðslum á fólki.
Taka skal tómar hnapparafhlöður úr og farga þeim
u
með viðeigandi hætti. Tómar hnapparafhlöður geta
Íslenska – 1
0 275 007 3RK | (20.01.2025)

Werbung

loading

Diese Anleitung auch für:

Bdu3142Bdu3143Bdu3144Bdu3145