Herunterladen Diese Seite drucken

Bosch Performance Line SX Drive Unit Originalbetriebsanleitung Seite 507

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für Performance Line SX Drive Unit:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 368
Íslenska – 6
l
Tenging við farsíma
m
Staða tengingar
n
Hleðsluvísir fyrir ytri tæki
o
Stillingavalmynd
Stillingavalmyndin opnuð
Úr stöðuskjánum er hægt að fara í stillingavalmyndina.
Haltu valhnappinum 
inni í > 1 sek. til að opna
stillingavalmyndina.
Athugaðu: Ekki er hægt að opna stillingavalmyndina á ferð.
Í stillingavalmyndinni <Settings> er að finna eftirfarandi
valmyndaratriði:
– <My eBike>
Hér er eftirfarandi valmyndaratriði að finna.
▪ <Range reset>
Hér er hægt að endurstilla gildið fyrir drægi.
▪ <Auto trip reset>
Hér er hægt að stilla tímabil fyrir núllstillingu á
dagskílómetrum.
▪ <Wheel circumf.>
Hér er hægt að breyta gildinu fyrir ummál afturhjóls eða
endurstilla það á sjálfgefna stillingu.
▪ <Service>
Hér er sýnt hvenær næsta þjónustuskoðun á að fara
fram, ef það hefur verið stillt inn á viðurkenndu
verkstæði.
▪ <Components>
Hér eru sýndir uppsettir íhlutir ásamt útgáfunúmerum.
– <App connect>
Hér er sýnd staða tengingar við appið eBike Flow.
– <My Kiox>
Hér er eftirfarandi valmyndaratriði að finna.
▪ <Statusbar>
Hér er hægt að velja á milli <Battery>, <Time>,
<Speed> eða <eShift> (valfrjálst).
Athugaðu: <eShift> er aðeins í boði með samhæfri
eShift-gírskiptingu.
▪ <Sounds>
Hér er hægt að stilla hljóðstyrkinn á <High>,
<Medium>, <Low> eða slökkva alveg á hljóðmerkinu
með <Off>.
▪ <Shift recommendation>
Hér er hægt að velja hvort birtar eru ráðleggingar um
gírskiptingu.
▪ <Trip summary>
Hér er hægt að velja hvort birt er samantekt allra
upplýsinga um ferðina þegar slökkt er.
▪ <Time>
Hér er hægt að stilla klukkuna.
▪ <Time format>
Hér er hægt að velja á milli tveggja tímasniða
(12 klst./24 klst.).
▪ <Brightness>
Hér er hægt að stilla birtustig skjásins.
0 275 007 3RK | (20.01.2025)
▪ <Language>
Hér er hægt að velja úr eftirfarandi tungumálum:
þýsku, ensku, frönsku, spænsku, portúgölsku, ítölsku,
hollensku, dönsku, sænsku, norsku, pólsku, tékknesku.
▪ <Units>
Hér er hægt að velja á milli metrakerfisins og breskra
mælieininga.
▪ <Settings reset>
Hér er hægt að endurstilla allar kerfisstillingar á
sjálfgefin gildi.
– <Information>
Hér er eftirfarandi valmyndaratriði að finna:
▪ <Contact>
Hér er að finna samskiptaupplýsingar fyrir Bosch eBike
Systems.
▪ <Certificates>
Hér er að finna vottorð og rafrænar merkingar.
Farið úr stillingavalmyndinni
Ýtt er á valhnappinn 
til að vista stillingarnar og fara úr
stillingavalmyndinni.
Ýtt er á valhnappinn 
> 1 sek. til að fara úr
stillingavalmyndinni án þess að vista stillingarnar.
<Display configuration>
<Display configuration> er að finna í appinu eBike Flow,
undir <Settings> → <My eBike>. Kveikt þarf að vera á
rafhjólinu og farsíminn tengdur.
Í <Display configuration> er hægt að breyta atriðum á
skjánum með eftirfarandi hætti:
– Breyta því í hvaða röð skjámyndirnar birtast
– Bæta við nýjum skjámyndum
– Breyta fyrirliggjandi skjámyndum og eyða þeim að hluta
– Bæta við nýjum skjámyndum eftir uppfærslu
Frekari upplýsingar um <Display configuration> er að finna
í appinu eBike Flow.
Akstursstilling valin
Á stjórnbúnaðinum er hægt að stilla hversu mikinn stuðning
drifið veitir þegar stigið er á fótstigin.
Mini Remote/Mini Remote Dropbar: Ýtt er stuttlega
(< 1 sek.) á hnappana + (6) eða – (8) til að auka eða minnka
stuðninginn.
Kiox 400C: Ýtt er stuttlega (< 1 sek.) á
stillingarhnappinn (14) til að auka stuðninginn.
Ýtt er á stillingarhnappinn (14) í meira en 1 sekúndu til að
minnka stuðninginn.
Hægt er að breyta akstursstillingunni á ferð og er stillingin
gefin til kynna með litamerki.
Hægt er að virkja frekari akstursstillingar í appinu eBike
Flow eða á viðurkenndu verkstæði, ef framleiðandi
reiðhjólsins gerir ráð því.
Athugaðu: Það hvaða akstursstillingar eru í boði fer eftir
drifeiningunni hverju sinni.
Bosch eBike Systems

Werbung

loading

Diese Anleitung auch für:

Bdu3142Bdu3143Bdu3144Bdu3145