Herunterladen Diese Seite drucken

Bosch Performance Line SX Drive Unit Originalbetriebsanleitung Seite 512

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für Performance Line SX Drive Unit:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 368
Viðhald og þjónusta
Viðhald og þrif
Ekki má þrífa neina hluta búnaðarins með háþrýstidælu.
Haltu skjá stjórnbúnaðarins hreinum. Óhreinindi geta leitt til
þess að greining á birtustigi virki ekki rétt.
Við þrif á stjórnbúnaðinum skal eingöngu nota mjúkan klút
sem hefur verið vættur með vatni. Ekki má nota hreinsiefni.
Athugaðu: Við tiltekið hita- og rakastig getur myndast móða
á stjórnbúnaðinum Kiox 400C. Þetta þýðir ekki að eitthvað
sé í ólagi. Látið rafhjólið standa í upphituðu rými.
Láta skal skoða rafhjólið að minnsta kosti einu sinni á ári
(m.a. vélbúnað þess og hvort kerfishugbúnaður er í nýjustu
útgáfu).
Viðurkennt verkstæði getur einnig skráð tiltekna vegalengd
og/eða tiltekið tímabil fyrir skoðun. Í þessu tilviki sýnir
stjórnbúnaðurinn hvenær næsta skoðun á að fara fram þegar
kveikt er á honum.
Láta skal viðurkennt verkstæði sjá um að þjónusta rafhjólið
og gera við það.
Láta verður viðurkennt verkstæði annast allar
u
viðgerðir.
Athugaðu: Þegar farið er með rafhjólið í viðhaldsskoðun hjá
viðurkenndu verkstæði er mælt með því að gera <Lock &
Alarm> óvirkan.
Athugaðu: Ef stjórnbúnaðurinn Kiox 400C er ekki notaður í
lengri tíma þarf að hlaða hann (sjá „Rafmagnstenging
stjórnbúnaðarins (Kiox 400C)", Bls. Íslenska – 3).
Notendaþjónusta og ráðleggingar um notkun
Ef óskað er upplýsinga um rafhjólið og íhluti þess skal snúa
sér til viðurkennds verkstæðis.
Finna má samskiptaupplýsingar fyrir viðurkennd verkstæði á
vefsíðunni www.bosch-ebike.com.
Nánari upplýsingar um hluta rafhjólsins og
virkni þeirra er að finna í Bosch eBike Help
Center.
Förgun og framleiðsluefni
Nálgast má upplýsingar um framleiðsluefni á eftirfarandi
vefslóð: www.bosch-ebike.com/en/material-compliance.
Ekki má fleygja rafhjólum og íhlutum þeirra með venjulegu
heimilissorpi!
Hægt er að skila tækinu til söluaðila ef hann býður upp á slíkt
eða ber lagaleg skylda til þess. Fara skal eftir gildandi lögum
og reglum hvað þetta varðar.
Skila skal einstaka íhlutum rafhjólsins,
aukabúnaði og umbúðum til endurvinnslu með
umhverfisvænum hætti.
Notandi skal sjálfur ganga úr skugga um að
engar persónuupplýsingar séu lengur fyrir hendi á þessum
íhlutum rafhjólsins.
Bosch eBike Systems
Ef hægt er að taka rafhlöður úr íhlutum rafhjólsins án þess að
eyðileggja þær skal taka þær úr og skila þeim til sérstakrar
söfnunarstöðvar fyrir rafhlöður áður en íhlutunum er fargað.
Samkvæmt reglugerð (ESB) 2023/1542
verður að flokka úr sér gengin raftæki og bilaðar
eða úr sér gengnar rafhlöður/hleðslurafhlöður
sérstaklega og skila þeim til endurvinnslu með
umhverfisvænum hætti.
Með því að flokka raftækin sérstaklega er stuðlað að því að
hægt sé að meðhöndla þau og endurnýta hráefni með
viðeigandi hætti og vernda þannig heilsu manna og
umhverfið.
Breytingar áskildar.
Íslenska – 11
0 275 007 3RK | (20.01.2025)

Werbung

loading

Diese Anleitung auch für:

Bdu3142Bdu3143Bdu3144Bdu3145