Öryggisleiðbeiningar
Lesa skal allar öryggisupplýsingar og
leiðbeiningar. Ef ekki er farið að í samræmi við
öryggisupplýsingar og leiðbeiningar getur það
haft í för með sér raflost, eldsvoða og/eða
alvarlegt líkamstjón.
Geyma skal allar öryggisupplýsingar og leiðbeiningar til
síðari nota.
Þegar talað er um rafhlöðu rafhjóls í þessari
notendahandbók er átt við allar upprunalegar Bosch-
rafhlöður fyrir rafhjól sem tilheyra kynslóðinni the smart
system.
Lesa og fylgja skal öryggisupplýsingum og
u
leiðbeiningum í öllum notendahandbókum fyrir búnað
rafhjólsins sem og í notendahandbók rafhjólsins.
Reynið ekki að festa hjólatölvuna eða stjórntölvuna á
u
ferð!
Ekki skal láta skjá hjólatölvunnar beina athyglinni frá
u
umferðinni, sérstaklega það sem birtist á skjánum við
tilteknar aðstæður. Birting akstursupplýsinga má ekki
verða til þess að ekki sé sýnd nægileg aðgát þegar hjólað
er. Ef þú ert ekki með hugann við umferðina í kringum þig
er hætta á að þú lendir í slysi. Ef þú vilt gera meira í
hjólatölvunni en að breyta um akstursstillingu skaltu
stöðva hjólið fyrst.
Ekki nota farsímann þegar þú ert á ferð. Ef þú ert ekki
u
með hugann við umferðina í kringum þig er hætta á að þú
lendir í slysi. Stöðvaðu hjólið fyrst.
Stilla skal birtustigið á skjá hjólatölvunnar þannig að
u
mikilvægar upplýsingar á borð við hraða eða
viðvörunartákn sjáist greinilega. Ef birtustigið á skjá
hjólatölvunnar er ekki rétt stillt getur það skapað hættu.
Ekki má opna hjólatölvuna. Ef hjólatölvan er opnuð
u
getur það eyðilagt hana og ábyrgðin fellur úr gildi.
Ekki má nota hjólatölvuna sem handfang. Ef rafhjólinu
u
er lyft upp með hjólatölvunni getur það valdið varanlegu
tjóni á hjólatölvunni.
Ekki setja rafhjólið á hvolf á stýrið og hnakkinn þegar
u
hjólatölvan eða festing hennar standa út fyrir stýrið.
Hjólatölvan eða festingin geta orðið fyrir varanlegu tjóni.
Einnig skal taka hjólatölvuna af áður en rafhjólið er sett í
viðgerðastand til að koma í veg fyrir að hjólatölvan falli af
eða verði fyrir skemmdum.
Í hjólatölvunni Kiox 500 er búnaður sem gefur frá sér
u
hljóð. Við ákveðin skilyrði heyrast hávær hljóðmerki.
Hátt hljóðmerkið getur valdið heyrnarskemmdum.
Skal því halda hæfilegri fjarlægð frá hjólatölvunni.
Öryggisleiðbeiningar vegna leiðsögukerfis
Ekki skipuleggja akstursleiðir á ferð. Stöðvaðu hjólið
u
áður en þú færir nýjan áfangastað inn í leiðsögukerfið.
Ef þú ert ekki með hugann við umferðina í kringum þig er
hætta á að þú lendir í slysi.
Bosch eBike Systems
Ef leiðsögukerfið stingur upp á leið sem er áhættusöm
u
eða hættuleg fyrir þig skaltu ekki fylgja henni. Láttu
leiðsögukerfið stinga upp á annarri leið.
Ekki hunsa umferðarskilti jafnvel þótt leiðsögukerfið
u
vísi þér tiltekna leið. Leiðsögukerfið getur ekki tekið tillit
til byggingasvæða eða tímabundinna hjáleiða.
Ekki skal nota leiðsögukerfið við hættulegar eða
u
ruglingslegar aðstæður (t.d. vegalokanir eða
hjáleiðir). Hafðu alltaf önnur kort og samskiptatæki
meðferðis.
Upplýsingar um persónuvernd
Þegar rafhjólið er tengt við Bosch DiagnosticTool 3 eða
þegar skipt er um hluta rafhjólsins er tæknilegum
upplýsingum um rafhjólið þitt (t.d. um framleiðanda, gerð,
auðkenni hjólsins, stillingagögn) og notkun þess (t.d. um
heildartíma á ferð, orkunotkun, hitastig) miðlað til Bosch
eBike Systems (Robert Bosch GmbH) í því skyni að vinna úr
fyrirspurn frá þér, veita þjónustu eða stuðla að vöruþróun.
Frekari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga er að
finna á www.bosch-ebike.com/privacy-full.
Athugaðu: Til að gera textann læsilegri eru sum gildi sýnd án
tugabrota. Þau eru þá námunduð upp eða niður.
Lýsing á vöru og eiginleikum
Fyrirhuguð notkun
Hjólatölvan Kiox 300/Kiox 500 er ætluð til að birta
akstursupplýsingar á rafhjóli sem tilheyrir kynslóðinni the
smart system.
Til þess að geta nýtt hjólatölvuna Kiox 300/Kiox 500 til fulls
þarf samhæfan farsíma með appinu eBike Flow.
Allt eftir stýrikerfi farsímans er hægt að sækja
appið eBike Flow ókeypis í Apple App Store
eða Google Play Store.
Skannaðu kóðann með farsímanum til að sækja
appið eBike Flow.
Leiðbeiningar um notkun appsins eBike Flow og frekari
upplýsingar er að finna í netútgáfu notendahandbókarinnar á
www.bosch-ebike.com/help-center.
Hlutar á myndum
Númeraröð hluta á myndum miðast við hvernig þeir koma
fram á myndunum fremst í handbókinni.
(1) Hjólatölva
(2) Skjár
(3) Strengúttak
(4) Festiplata
(5) Skjáfesting
(6) Festikrókur
(7) Tengi á festingu
(8) Tengi á hjólatölvu
a)
(9) Rauf fyrir ól
Íslenska – 1
0 275 007 3BK | (26.04.2024)