Herunterladen Diese Seite drucken

Bosch Performance Line SX Drive Unit Originalbetriebsanleitung Seite 353

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für Performance Line SX Drive Unit:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 368
Íslenska – 6
Ef bilun greinist í rafhlöðu
rafhjólsins blikka tvær
ljósdíóður í hleðsluvísinum
(6). Snúa skal sér til
viðurkennds söluaðila
reiðhjóla vegna þessa.
Upplýsingar um rétta meðferð rafhlöðunnar
Hægt er að láta rafhlöðu rafhjólsins endast lengur með því að
sinna umhirðu hennar vel og þá sérstaklega með því að
geyma hana við rétt hitastig.
Jafnvel þótt farið sé vel með rafhlöðuna munu afköst hennar
óhjákvæmilega minnka með tímanum.
Þegar umtalsvert skemmri tími líður á milli þess að rafhlaðan
tæmist er það merki um að hún sé úr sér gengin. Skal þá
skipta um rafhlöðu rafhjólsins.
Rafhlaðan hlaðin áður en hún er sett í geymslu og meðan
á geymslutíma stendur
Ef ekki á að nota rafhlöðuna í lengri tíma (> 3 mánuði) skal
sjá til þess að hleðslan á henni sé á bilinu 30 % til 60 % (tvær
til þrjár ljósdíóður á hleðsluvísinum (6) loga) á meðan hún er
í geymslu.
Athuga skal hleðsluna að sex mánuðum liðnum. Ef hleðslan
er undir 30 % skal hlaða rafhlöðuna aftur þannig að hleðslan
sé á bilinu 30 % til 60 %.
Athuga skal hleðsluna á innbyggðu rafhlöðunni á rafhjólinu á
stjórnbúnaðinum eða hjólatölvunni.
Athugaðu: Ef rafhlaðan tæmist og er geymd þannig í lengri
tíma getur hún orðið fyrir skemmdum þrátt fyrir litla
sjálfsafhleðslu og hleðslugetan getur minnkað til muna.
Geymsluskilyrði
Athugaðu: Fyrir innbyggðar rafhlöður skal miða við þau
geymsluskilyrði sem framleiðandi rafhjólsins tilgreinir.
Helst skal geyma rafhlöðu rafhjólsins á þurrum og vel
loftræstum stað. Verja skal hana fyrir raka og vatni. Við
óhagstæð veðurskilyrði er t.d. mælt með því að taka
rafhlöðuna af rafhjólinu og geyma hana í lokuðu rými þar til
hún er notuð næst.
Ekki skal geyma rafhlöðu rafhjólsins á eftirfarandi stöðum:
– í herbergjum þar sem ekki er reykskynjari
– nálægt brennanlegum eða eldfimum hlutum
– nálægt hitagjöfum
– í lokuðum bíl (sérstaklega að sumarlagi)
– þar sem sól skín beint á hana
Til þess að tryggja sem bestan endingartíma rafhlöðunnar
skal geyma hana við herbergishita.
Forðast skal hitastig undir −10 °C eða yfir 60 °C.
Gætið þess að geymsluhitastig fari ekki yfir leyfileg mörk.
Mælt er með því að geyma rafhlöðuna ekki á rafhjólinu (á ekki
við fyrir innbyggðar rafhlöður).
Viðbrögð við bilunum
Ekki má opna rafhlöðuna, ekki heldur til að gera við hana.
Hætta er á því að eldur komi upp í rafhlöðunni, t.d. vegna
skammhlaups. Þessi hætta er áfram fyrir hendi ef haldið er
áfram að nota rafhlöðu sem búið er að opna.
0 275 007 3PX | (08.02.2024)
Ef rafhlaða rafhjólsins bilar skal því ekki láta gera við hana,
heldur skal láta söluaðila skipta henni út fyrir upprunalega
Bosch-rafhlöðu fyrir rafhjól sem tilheyrir kynslóðinni the
smart system.
Viðhald og þjónusta
Viðhald og þrif
Ekki má þrífa rafhlöðu rafhjólsins með háþrýstidælu
u
eða með því að dýfa henni í vatn.
Halda skal rafhlöðu rafhjólsins hreinni og gæta þess að hún
komist ekki í snertingu við húðkrem, sólaráburð eða
skordýrafælur. Hreinsa skal hana varlega með rökum,
mjúkum klút.
Hreinsa skal tengin öðru hvoru og bera á þau dálítið af feiti.
Til þess skal nota vaselín sem ætlað er til notkunar í
lækningaskyni eða á vélar.
Ef rafhlaða rafhjólsins virkar ekki lengur skal snúa sér til
viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Notendaþjónusta og ráðleggingar um notkun
Ef spurningar koma upp varðandi rafhlöður rafhjóla skal snúa
sér til viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Skrá skal hjá sér framleiðanda og númer lykilsins (1).
u
Ef lyklar týnast skal snúa sér til viðurkennds söluaðila
reiðhjóla. Skal þá gefa upp framleiðanda og númer
lyklanna.
Finna má samskiptaupplýsingar fyrir viðurkennda söluaðila
reiðhjóla á vefsíðunni www.bosch-ebike.com.
Nánari upplýsingar um hluta rafhjólsins og
virkni þeirra er að finna í Bosch eBike Help
Center.
Flutningur
Ef aka á með rafhjólið utan á bílnum, t.d. á
u
farangursgrind, skal fjarlægja hjólatölvuna og
rafhlöðu reiðhjólsins (nema um sé að ræða fasta
innbyggða rafhlöðu) til að forðast skemmdir.
Rafhlöður fyrir rafhjól falla undir lagakröfur um hættulegan
farm. Einstaklingar mega flytja óskemmdar rafhlöður rafhjóla
á vegum án þess að gerðar séu sérstakar kröfur.
Þegar um er að ræða flutning af hálfu rekstraraðila eða þriðju
aðila (t.d. flugfraktar eða hraðflutningaþjónustu) þarf að
uppfylla sérstakar kröfur varðandi umbúðir og merkingar
(t.d. samkvæmt reglum ADR-samingsins um
millilandaflutninga á hættulegum farmi á vegum). Ef þörf
krefur er hægt að leita til sérfræðings á sviði hættulegs farms
við frágang pakkans.
Ekki skal senda rafhlöður rafhjóla nema að ytra byrði þeirra
sé óskemmt og að þær séu nothæfar. Við flutninginn skal
nota upprunalegu Bosch-umbúðirnar fyrir viðkomandi
rafhlöðu. Setja skal límband yfir óvarin tengi og pakka
rafhlöðunni þannig inn að hún geti ekki hreyfst til í
umbúðunum. Láta skal flutningafyrirtækið vita af því að um
Bosch eBike Systems

Werbung

loading

Diese Anleitung auch für:

Bdu3142Bdu3143Bdu3144Bdu3145