Íslenska – 10
Battery Lock
Hægt er að setja <Battery Lock> upp fyrir öll rafhjól með
appinu eBike Flow, undir <Settings> → <My eBike> →
<Lock & Alarm>.
Með <Battery Lock> er bæði hægt að læsa drifinu og
rafhlöðu rafhjólsins þegar slökkt er á rafhjólinu. Rafhlaða
rafhjólsins er ekki tekin úr lás nema að skilgreindur lykill
(farsími og/eða skjárinn Kiox 300/Kiox 500) sé til staðar
þegar kveikt er á rafhjólinu.
Til þess að virkja <Battery Lock> þarf Flow+ subscription.
Þessu getur fylgt kostnaður.
Frekari upplýsingar um Flow+ subscription og nánari
upplýsingar um tiltekna þjónustu er að finna í appinu eBike
Flow eða í Bosch eBike Help Center á vefsíðunni
www.bosch-ebike.com/help-center.
Hugbúnaðaruppfærslur
Setja verður hugbúnaðaruppfærslur í gang handvirkt í
appinu eBike Flow.
Appið flytur hugbúnaðaruppfærslur yfir í stjórnbúnaðinn í
bakgrunni um leið og búið er að tengja hann við appið.
Fylgjast þarf með skjá stjórnbúnaðarins Kiox 400C á meðan
hugbúnaðaruppfærslan fer fram. Því næst er rafhjólið
endurræst.
Hugbúnaðaruppfærslum er stjórnað með appinu eBike
Flow.
Villuboð
Villuboð birtast í sprettigluggum á skjá
stjórnbúnaðarins Kiox 400C.
Stjórntölvan gefur til kynna þegar alvarlegar eða minniháttar
villur koma upp í rafhjólinu.
Hægt er að lesa villuboðin frá rafhjólinu í appinu eBike Flow
eða á viðurkenndu verkstæði.
Með tengli í appinu eBike Flow er hægt að nálgast
upplýsingar um villuna og fá aðstoð við að lagfæra hana.
Minniháttar villur
Villur eru staðfestar með því að ýta á valhnappinn (7) á
stjórnbúnaðinum Kiox 400C eða Mini Remote/Mini
Remote Dropbar.
Með hjálp eftirfarandi töflu getur notandi reynt að lagfæra
villuna á eigin spýtur. Annars skal leita aðstoðar hjá
viðurkenndu verkstæði.
Númer
Villa lagfærð
523005
Villunúmerin gefa til kynna að orðið hafa
truflanir við greiningu skynjara á segulsviði.
514001
Athugaðu hvort segullinn hefur glatast á
514002
ferð.
514003
Ef notaður er segulskynjari skal athuga hvort
514006
skynjarinn og segullinn hafa verið settir upp
á réttan hátt. Einnig skal ganga úr skugga um
að snúran til skynjarans sé óskemmd.
0 275 007 3RK | (20.01.2025)
Númer
Villa lagfærð
Ef notaður er gjarðarsegull skal gæta þess að
ekki séu truflandi segulsvið nálægt
drifeiningunni.
660001
Settu rafhjólið aftur í gang. Ef vandamálið er
áfram fyrir hendi skaltu ekki halda áfram að
hlaða og nota rafhlöðu rafhjólsins. Leitaðu til
viðurkennds verkstæðis.
660002
Taktu rafhlöðuna úr rafhjólinu. Tengdu
rafhlöðu rafhjólsins við hleðslutæki og bíddu
í að minnsta kosti 10 sekúndur. Settu
rafhlöðuna aftur í rafhjólið. Settu rafhjólið
aftur í gang.
680007
Villunúmerin gefa til kynna að hitastig
rafhlöðu rafhjólsins er utan leyfilegra marka.
680009
Hætt er að hlaða rafhlöðu rafhjólsins.
680012
Haldið er áfram með hleðsluna þegar
680014
hitastigið er aftur innan leyfilegra marka.
680016
680017
Alvarlegar villur
Þegar alvarleg villa kemur upp skal fylgja leiðbeiningunum í
töflunni hér fyrir neðan.
Númer
Leiðbeiningar
6A0000
Tengdu allan búnað sem tilheyrir rafhjólinu,
einnig lausan búnað og aukabúnað.
Framkvæmdu hugbúnaðaruppfærslu. Settu
rafhjólið aftur í gang.
Ef vandamálið er áfram fyrir hendi skaltu
snúa þér til viðurkennds verkstæðis.
F10004
Tengdu allan búnað sem tilheyrir rafhjólinu,
einnig lausan búnað og aukabúnað.
Framkvæmdu hugbúnaðaruppfærslu. Allir
íhlutir þurfa að vera með nýjustu
hugbúnaðarútgáfu. Settu rafhjólið aftur í
gang.
Ef vandamálið er áfram fyrir hendi skaltu
snúa þér til viðurkennds verkstæðis.
890000
– Staðfestu villukóðann.
– Endurræstu rafhjólið.
Ef vandamálið er áfram fyrir hendi:
– Staðfestu villukóðann.
– Framkvæmdu hugbúnaðaruppfærslu.
– Endurræstu rafhjólið.
Ef vandamálið er áfram fyrir hendi:
– Snúðu þér til viðurkennds verkstæðis.
Bosch eBike Systems