Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Öryggisleiðbeiningar - Bosch Drive Unit Active Line BDU3320 Originalbetriebsanleitung

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für Drive Unit Active Line BDU3320:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 1
Öryggisleiðbeiningar
Lesa skal allar öryggisupplýsingar og
leiðbeiningar. Ef ekki er farið að í samræmi við
öryggisupplýsingar og leiðbeiningar getur það
haft í för með sér raflost, eldsvoða og/eða
alvarlegt líkamstjón.
Geyma skal allar öryggisupplýsingar og leiðbeiningar til
síðari nota.
Þegar talað er um rafhlöðu rafhjóls í þessari
notendahandbók er átt við allar upprunalegar Bosch-
rafhlöður fyrir rafhjól sem tilheyra kynslóðinni the smart
system.
Þegar talað er um drif og drifeiningu í þessari
notendahandbók er átt við allar upprunalegar Bosch-
drifeiningar sem tilheyra kynslóðinni the smart system.
Lesa og fylgja skal öryggisupplýsingum og
u
leiðbeiningum í öllum notendahandbókum fyrir
rafhjólskerfið sem og í notendahandbók rafhjólsins.
Ekki má gera neinar breytingar á drifinu. Ekki má nota
u
vörur af neinu tagi til að auka afkastagetu drifsins.
Slíkt er ólöglegt á almannafæri. Með því getur þú auk þess
stefnt öryggi þínu og annarra vegfarenda í voða og ef slys
verður sem rekja má til misnotkunarinnar getur þú bakað
þér mikla skaðabótaábyrgð og átt jafnvel á hættu að verða
látinn svara til saka fyrir dómstólum. Auk þess leiðir þetta
yfirleitt til þess að íhlutir rafhjólsins endast skemur.
Drifeiningin og rafhjólið þitt geta orðið fyrir skemmdum og
ábyrgðin á rafhjólinu getur þar með fallið úr gildi.
Ekki opna drifeininguna. Við viðgerðir á drifeiningunni
u
má eingöngu nota upprunalega varahluti og þær verða
að fara fram hjá viðurkenndum söluaðilum. Þannig er
öryggi við notkun rafhjólsins tryggt. Ef drifeiningin er
opnuð í leyfisleysi fellur ábyrgðin úr gildi.
Taka skal rafhlöðuna úr rafhjólinu áður en vinna (t.d.
u
skoðun, viðgerðir, samsetning, viðhald, vinna við
keðju o.s.frv.) fer fram. Þegar um er að ræða
innbyggðar rafhlöður í rafhjólum sem ekki er hægt að
taka úr skal gera sérstakar ráðstafanir til að tryggja að
rafhjólið geti ekki farið í gang. Hætta er á meiðslum ef
rafhjólið er sett óvart í gang.
Notandi má ekki taka innbyggðar rafhlöður úr
u
rafhjólinu á eigin spýtur. Láta skal viðurkennda
söluaðila reiðhjóla sjá um að taka innbyggðar
rafhlöður úr og setja þær í.
Við krefjandi skilyrði, t.d. við mikið
viðvarandi álag á litlum hraða þegar hjólað
er í brekku eða með farm, getur hitastigið á
hlutum drifsins farið yfir 60 °C.
Gæta verður þess að snerta ekki ytra byrði
u
drifeiningarinnar með óvörðum höndum eða fótum
eftir notkun. Við erfið skilyrði, t.d. viðvarandi mikið tog á
litlum hraða eða þegar hjólað er í brekku og með farm,
getur ytra byrðið hitnað mjög mikið.
Eftirfarandi þættir hafa áhrif á hitastigið á ytra byrði
drifeiningarinnar:
– umhverfishitastig
Bosch eBike Systems
– hvernig leiðin liggur (leið/halli)
– aksturstími
– stuðningsstillingar
– aðgerðir notanda (eigið afl)
– heildarþyngd (ökumanns, rafhjóls og farangurs)
– mótorhlíf á drifeiningu
– kælingareiginleikar stellsins á reiðhjólinu
– gerð drifeiningar og tegund skiptingar
Notaðu eingöngu upprunalegar Bosch-rafhlöður fyrir
u
rafhjól sem tilheyra kynslóðinni the smart system og
framleiðandi leyfir til notkunar með rafhjólinu þínu.
Notkun á öðrum rafhlöðum fyrir rafhjól getur leitt til
meiðsla og eldhættu. Ef notaðar eru rafhlöður af annarri
gerð fellur ábyrgð Bosch úr gildi.
Ekki má fara með gjarðarsegulinn af
kynslóðinni the smart system nálægt
ígræðum eða öðrum lækningatækjum á borð
við hjartagangráð eða insúlíndælu. Segullinn
myndar segulsvið sem getur haft truflandi áhrif
á virkni ígræða og lækningatækja.
Halda skal gjarðarseglinum í öruggri fjarlægð frá
u
segulmögnuðum gagnageymslum og tækjum sem eru
viðkvæm fyrir segulsviði. Áhrifin af seglunum geta
valdið óafturkræfu gagnatapi.
Fylgja skal gildandi reglum um skráningu og notkun
u
rafhjóla á hverjum stað.
Upplýsingar um persónuvernd
Þegar rafhjólið er tengt við Bosch DiagnosticTool 3 eða
þegar skipt er um hluta rafhjólsins er tæknilegum
upplýsingum um rafhjólið þitt (t.d. um framleiðanda, gerð,
auðkenni hjólsins, stillingagögn) og notkun þess (t.d. um
heildartíma á ferð, orkunotkun, hitastig) miðlað til Bosch
eBike Systems (Robert Bosch GmbH) í því skyni að vinna úr
fyrirspurn frá þér, veita þjónustu eða stuðla að vöruþróun.
Frekari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga er að
finna á www.bosch-ebike.com/privacy-full.
Íslenska – 1
0 275 007 3D2 | (13.02.2023)

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis