Aksturs-
Upplýsingar
stilling
OFF
Slökkt er á drifstuðningi, hægt er að hjóla á
rafhjólinu eins og á venjulegu reiðhjóli með því
að stíga á fótstigin.
ECO
Virkur stuðningur með mestri skilvirkni, fyrir
hámarksdrægi
ECO+
Akstursstilling fyrir sem mest drægi, sem
kveikir ekki á drifstuðningi fyrr en hjólað er með
afli yfir ákveðnum mörkum; fyrir eðlilegar
hjólreiðar með sem mestu drægi
TOUR
Jafn stuðningur, fyrir ferðir með miklu drægi
TOUR+
Breytilegur stuðningur fyrir venjulegan og
sportlegan akstur
eMTB
Sem bestur stuðningur við allar aðstæður, tekið
sportlega af stað, betri kraftur, hámarksafköst
eMTB+
Kraftmikill stuðningur – fullkomlega
skammtaður og með allt að 100% meiri
„Extended Boost" - fyrir enn skemmtilegri
hjólreiðar utan vega
SPORT
Kraftmikill stuðningur fyrir sportlegar hjólreiðar
í hæðóttu landslagi og innanbæjar
TURBO
Hámarksstuðningur upp að miklum
snúningshraða sveifar, fyrir sportlegar
hjólreiðar
AUTO
Stuðningurinn er lagaður sjálfkrafa að
akstursskilyrðum hverju sinni.
RACE
Hámarksstuðningur á brautum fyrir rafknúin
fjallahjól; mikil snerpa og „Extended Boost" fyrir
sem mest afköst í keppnum
CARGO
Jafn og kraftmikill stuðningur til að geta flutt
þunga byrði með öruggum hætti
SPRINT
Breytilegur stuðningur eftir snúningshraða
sveifar – fyrir sportlega notkun rafhjólsins á möl
og vegum með hröðum köflum og tíðum
brekkum
Akstursstillingu breytt
Hægt er að breyta akstursstillingunum innan vissra marka í
appinu eBike Flow. Þannig er hægt að laga rafhjólið að
þörfum notandans.
Ekki er hægt að búa til sína eigin akstursstillingu frá grunni.
Aðeins er hægt að breyta þeim akstursstillingum sem
framleiðandi reiðhjólsins hefur leyft til notkunar í kerfinu.
Auk þess getur verið að ekki sé hægt að breyta
akstursstillingunum vegna takmarkana sem gilda í þínu landi.
Hægt er að breyta eftirfarandi atriðum:
– Stuðningi í hlutfalli við grunngildi akstursstillingar (innan
lagalegra marka)
– Snerpu drifsins
– Hraðalækkunarmörkum (innan lagalegra marka)
– Hámarkstogi (innan marka drifsins)
Athugaðu: Breytta akstursstillingin er áfram með sömu
stöðu, sama heiti og sama lit á öllum skjám og stjórntækjum.
Bosch eBike Systems
Samspil drifeiningar og gírskiptingar
Jafnvel þótt um rafhjól sé að ræða er gírskiptingin notuð með
sama hætti og á venjulegu reiðhjóli (sjá notendahandbók
rafhjólsins).
Óháð því um hvernig gírskiptingu er að ræða er mælt með því
að stíga léttar á fótstigin í stutta stund á meðan skipt er um
gír. Þannig verður auðveldara að skipta um gír og dregið er úr
sliti á aflrásinni.
Með því að setja í réttan gír er hægt að auka hraðann og
drægið án þess að leggja meira á sig.
Þess vegna skaltu fylgja ráðleggingunum um gírskiptingu sem
birtast á skjánum.
Kveikt/slökkt á ljósunum á hjólinu (aðeins Mini
Remote/Mini Remote Dropbar)
Áður en hjólað er af stað skal ganga úr skugga um að ljósin á
hjólinu virki rétt.
Kveikt/slökkt er á ljósunum á hjólinu með því að halda
hnappinum fyrir hjólaljós (6) inni í meira en 1 sekúndu.
Kveikt og slökkt á teymingarhjálp
Teymingarhjálpin getur auðveldað þér að teyma rafhjólið.
Hraðinn fyrir teymingarhjálpina er að hámarki 4 km/h.
Forstillingin frá framleiðanda reiðhjólsins getur verið lægri og
hægt er að láta breyta henni á viðurkenndu verkstæði ef þess
þarf.
Aðeins má nota teymingarhjálpina þegar rafhjólið er
u
teymt. Ef hjól rafhjólsins snerta ekki jörðu þegar
teymingarhjálpin er notuð skapast slysahætta.
Ef valinn er of hár gír getur drifeiningin hvorki hreyft
u
rafhjólið úr stað né virkjað rennivörnina.
Teymingarhjálpin er sett í gang með því að halda hnappinum
fyrir teymingarhjálpina (8) inni í meira en 1 sekúndu og fylgja
leiðbeiningunum á skjánum.
Til að virkja teymingarhjálpina verður að gera eitthvað af
eftirfarandi innan næstu 10 sekúndna:
– Ýttu rafhjólinu áfram.
– Ýttu rafhjólinu aftur á bak.
– Hallaðu rafhjólinu til hliðar.
Þegar búið er að virkja teymingarhjálpina byrjar drifið að ýta
hjólinu og upplýsingarnar á skjánum breytast.
Þegar hnappinum fyrir teymingarhjálp (8) er sleppt er gert
hlé á teymingarhjálpinni. Hægt er að gera teymingarhjálpina
virka aftur með því að ýta á hnappinn fyrir teymingarhjálp (8)
innan 10 sekúndna.
Ef teymingarhjálpin er ekki gerð virk aftur innan 10 sekúndna
slekkur hún sjálfkrafa á sér.
Alltaf er slökkt á teymingarhjálpinni þegar
– afturhjólið læsist,
– ekki er hægt að hjóla yfir fyrirstöður,
– líkamshluti hindrar hreyfingu sveifarinnar á hjólinu,
– hindrun snýr sveifinni áfram,
– notandi stígur á fótstigin,
– ýtt er á hnappinn til að auka stuðning +/hjólaljós (6) eða
hnappinn til að kveikja/slökkva (11).
Íslenska – 7
0 275 007 3RK | (20.01.2025)