Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Teleflex ARROW ML-00701 Bedienungsanleitung Seite 40

Zentraler venenkatheter zur ausschließlichen verwendung mit dem arrow mac zweilumigen zentralvenösen zugangsweg
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 31
is
Miðlægur bláæðaholleggur
til notkunar eingöngu með Arrow MAC tveggja holrýma miðlægum æðalegg
Ábendingar:
Miðlægur bláæðaholleggur veitir aðgang að blóðrás miðjubláæða um blæðingarstöðvunarloka
í inniliggjandi búnaði fyrir aðgengi að miðlægum bláæðum.
Frábendingar:
Engar þekktar.
Klínískur ávinningur sem búast má við:
Aðgangur að miðlægu blóðrásarkerfi í gegnum einn stungustað meðal annars fyrir
vökvainnrennsli, blóðtöku, lyfjagjöf, eftirlit með miðlægum bláæðum og fyrir inndælingu
skuggaefnis.
Almennar viðvaranir og varúðarráðstafanir
Viðvaranir:
1. Sótthreinsað, einnota: Ekki til endurnotkunar, endurnýtingar
eða endursmitsæfingar. Endurnotkun búnaðar skapar mögulega
hættu á alvarlegum áverkum og/eða sýkingum sem geta leitt
til dauða. Endurnotkun á lækningatæki sem aðeins er einnota
getur minnkað árangur eða dregið úr virkni.
2. Lesið allar viðvaranir, varúðarráðstafanir og leiðbeiningar
á fylgiseðlinum fyrir notkun. Sé það ekki gert, getur það leitt
til alvarlegra áverka eða dauða sjúklings.
3. Ekki koma hollegg fyrir eða færa hann fram eða skilja hann
eftir í hægri gátt eða hægra slegli. Odd holleggsins á að færa
fram í neðri þriðjung stakbláæðar.
Þegar þrætt er í lærleggsæð ætti holleggurinn að ganga inn
í æðina þannig að oddur hans liggi samhliða æðaveggnum
og fari ekki inn í hægri gátt.
Staðfesta skal staðsetningu odds holleggsins í samræmi við
viðmiðunar- og verklagsreglur stofnunarinnar.
4. Læknar þurfa að vera meðvitaðir um möguleikann á því
að leiðaravír geti fest í hvers konar ígræði í æðakerfinu.
Sé sjúklingur með ígræði í æðakerfinu er mælt með að fylgst
sé með holleggsaðgerð á skjá til að lágmarka hættu á að
leiðaravír festist.
5. Beitið ekki óhóflegu afli við ísetningu leiðaravírs eða
vefjabelgs þar sem slíkt getur leitt til æðagötunar, blæðingar
eða tjóns á búnaði.
6. Beitið ekki of miklu afli við að setja hollegg eða leiðarvír í eða
taka hann úr. Of mikið afl getur valdið tjóni og skemmdum á
búnaði. Ef grunur leikur á tjóni eða ef erfitt er að fjarlægja,
skal fá röntgenmynd og leita frekara álits.
7. Ef notaðir eru holleggir sem ekki eru ætlaðir til dælingar með
þrýstingi við slíka notkun, getur það leitt til leka milli holrýma
holleggs eða götunar og þar með hugsanlegra áverka.
8. Festið ekki, heftið og/eða saumið beint nærri ytra byrði
holleggs eða framlengingarslöngu til að minnka hættu á að
skera í eða skemma hollegginn eða hindra flæði í honum.
Festið eingöngu á tilskildum stöðum.
9. Loftrek getur átt sér stað ef loft kemst inn í búnað fyrir
aðgang að miðlægum æðalegg eða æð. Skiljið ekki opnar
nálar eða opna, óklemmda holleggi eftir í stungusárum
miðlægra bláæða. Notið aðeins vel þétt Luer-Lock tengi með
öllum búnaði fyrir aðgang að miðlægum bláæðarlegg til að
varna rofi af gáleysi.
10. Læknar ættu að vera meðvitaðir um að slönguklemmur geta
losnað fyrir slysni.
11. Læknar verða að vera meðvitaðir um fylgikvilla í tengslum við
miðlæga bláæðaholleggi, þar á meðal en ekki takmarkað við:
hjartaþröng í kjölfar
götunar á æð,
gátt eða slegli
áverka á brjósthimnu
(þ.e. loftbrjóst)
og miðmæti
loftrek
holleggjarek
stíflu í hollegg
skurðsár á brjóstholi
bakteríudreyra
blóðeitrun
12. Tenging blæðingarstöðvunarloka við tveggja holrýma
miðlægan æðalegg verður að koma fyrir tryggilega og
gæta að reglulega til að lágmarka hættu á að hann losni og
mögulegt loftblóðrek, blæðingu eða aftöppun blóðs.
Varúðarráðstafanir:
1. Breytið ekki holleggnum, leiðarvírnum eða hverjum öðrum
búnaði við innsetningu, notkun eða fjarlægingu.
2. Meðferð skal framkvæmd af þjálfuðu starfsfólki sem er vel að sér
í líffærafræðilegum einkennum, öruggri tækni og hugsanlegum
fylgikvillum.
3. Gerið hefðbundnar varúðarráðstafanir og fylgið reglum
stofnunarinnar við allar aðgerðir, þar með talið örugga
förgun búnaðar.
4. Sum sótthreinsiefni sem notuð eru á stungustað innihalda
leysi sem getur veikt efnið í holleggnum. Alkóhól, asetón og
pólýetýlenglýkól geta veikt innri gerð pólýúretanefna. Þessi
efni geta einnig veikt límingu milli holleggsfestingar og húðar.
Notið ekki asetón á yfirborð holleggs.
Vætið ekki yfirborð holleggsins með alkóhóli eða látið
alkóhól liggja í holrými holleggs til að losa stíflu úr
holleggnum eða fyrirbyggja sýkingar.
Notið ekki smyrsl sem innihalda pólýetýlenglýkól
á innsetningarstaðinn.
40
segamyndun
æðagötun af gáleysi
taugaskemmd
margúl
blæðingu
myndun fíbrínslíðurs
sýkingu á stungustað
æðatæringu
ranga staðsetningu
á oddi holleggjar
hjartsláttarflökt
utanæðablæðing

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Arrow ml-00703Arrow ml-00702

Inhaltsverzeichnis