Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Umönnun Eftir Aðgerð; Hvernig Afhent; Geymsluaðstæður; Takmörkuð Ábyrgð Framleiðanda - Spectranetics Quickcat Gebrauchsanweisung

Extraktionskatheter
Inhaltsverzeichnis
Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 30
UMÖNNUN EFTIR AÐGERÐ
Eftir aðgerðina skal fylgja sjúkrahússtöðlum um umönnun við að fjarlægja slíðrið og gefa blóðstöðvandi efni til að hindra
blæðingu á innsetningarstað æðarinnar.

HVERNIG AFHENT

Afgreitt geisla-dauðhreinsað í bakka með smelluloki og loftþétt í umbúðum sem fletta má opnum. Ætlað til notkunar í eitt
skipti; dauðhreinsið ekki aftur, endurvinnið ekki eða notið aftur. Dauðhreinsað ef umbúðirnar eru óopnaðar og
óskemmdar. Notið ekki vöruna leiki grunur á að umbúðirnar séu ekki öruggar. Þegar umbúðirnar eru fjarlægðar skal
athuga vöruna vandlega til að tryggja að engar skemmdir, beygjur eða hnökrar hafi orðið meðan á flutningi stóð.
GEYMSLUAÐSTÆÐUR
Geymist á svölum, þurrum stað. Forðist langvarandi geymslu í björtu umhverfi.
Tafla 1. Óstöðluð myndræn tákn fyrir merkingu lækningabúnaðar
Vinnulengd
Þvermál æðar
Samhæfni víra
Hröð skipti
(RX)
Samhæfni stýriholleggja
Samhæfni slíðra
Sóttvarið
Takmörkuð ábyrgð framleiðanda
Framleiðandi ábyrgist að QuickCat™ catheter sé laus við galla hvað varðar efni og frágang þegar varan er notuð fyrir
uppgefinn „sìðasta notkunardag― og þegar umbúðirnar eru óopnaðar og óskemmdar rétt fyrir notkun. Ábyrgð
framleiðanda samkvæmt ábyrgð þessari er takmörkuð við að skipta vörunni eða endurgreiðslu kaupverðs vegna hvers
kyns galla í QuickCat™ catheter. Framleiðandi er ekki ábyrgur fyrir hvers kyns óbeinu, sérstöku eða afleiddu tjóni vegna
notkunar á QuickCat™ catheter. Skemmd á QuickCat™ catheter vegna rangrar notkunar, breytingar, rangrar geymslu
eða meðhöndlunar eða vegna þess að ekki er farið eftir notkunarleiðbeiningum þessum að öðru leyti mun ógilda þessa
takmörkuðu ábyrgð. ÞESSI TAKMARKAÐA ÁBYRGÐ KEMUR Í STAÐINN FYRIR ALLAR AÐRAR BEINAR OG
ÓBEINAR ÁBYRGÐIR, Þ.M.T. ÓBEINA ÁBYRGÐ UM SÖLUHÆFI EÐA HÆFI TIL ÁKVEÐINS TILGANGS. Engum
einstaklingi eða aðila, þ.m.t. hvers kyns viðurkenndum fulltrúa eða endursöluaðila framleiðanda, er heimilt að framlengja
eða auka við þessa takmörkuðu ábyrgð og hvers kyns tilraun til slíks er ekki framfylgjanleg gagnvart framleiðanda.
P003602-09
41/84
02Dec11
(2011-12-02)
Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis