Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Varúðarráðstafanir; Meintilvik; Undirbúningur Búnaðar; Aðferð - Spectranetics Quickcat Gebrauchsanweisung

Extraktionskatheter
Inhaltsverzeichnis
Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 30
VARÚÐARRÁÐSTAFANIR
o
Fyrir notkun skal ganga úr skugga um að allar tengingarnar milli hluta séu öruggar og að kerfið hafi verið fullkomlega
undirbúið; annars getur lofttæmingu verið stofnað í hættu.
o
Herðið ekki blóðstöðvunarlokann of mikið á legg holleggsins; annars getur holleggurinn skemmst.
Farið með gát þegar QuickCat™ útdráttarholleggurinn er krosslagður eða dreginn inn þvert yfir nýlega notað
o
lyfjaskolunarstoðnet.
o
Hvorki má dauðhreinsa búnaðinn aftur, endurvinna hann né nota aftur.
o
Dauðhreinsið þennan búnað EKKI aftur eða notið aftur þar sem það getur dregið úr afkastagetu búnaðarins eða
aukið hættuna á krosssmitun vegna óviðeigandi endurvinnslu.
o
Endurnotkun þessa einnota búnaðar gæti leitt til alvarlegra meiðsla eða dauða sjúklings og ógildir ábyrgðir
framleiðanda.
o
Ekki skal skipta út kerfishlutum fyrir aðra íhluti.

MEINTILVIK

o
Blæðing/margúll við innsetningarstað
o
Sundrun við samtengingu
o
Skyndileg lokun eða algjör stíflun meðhöndlaðs græðlings eða æðar
o
Fjarlæg rekstíflun hroða, sem leiðir til hættu fyrir lungu og/eða blóðþurrðar í útlimum
o
Staðbundin sýking eða kerfissýking
o
Slagæðakrampi
o
Myndun fistils í slag- og bláæðum
o
Lyfjaviðbrögð, aukaverkanir af skuggaefni
o
Brátt hjartadrep
o
Æðaskurður, raufun, rifun eða sköddun
o
Bráðaskurðaðgerð
o
Dauði
UNDIRBÚNINGUR BÚNAÐAR
1.
Með dauðhreinsaðri aðferð skal opna pokann og færa bakkann yfir á dauðhreinsaða svæðið.
2.
Fjarlægið hollegginn úr hlífðarvafningnum og athugið hvort einhverjar beygjur eða hnökrar séu á honum.
3.
Fyllið 30 ml lofttæmisprautuna með 5-10 ml af venjulegu saltvatni.
4.
Tengið lofttæmisprautuna við lokann, lokann við framlengingarslönguna og framlengingarslönguna við aðaleiningu
QuickCat™ útdráttarholleggsins. Tryggið að allar tengingar séu öruggar.
5.
Skolið kerfið með saltvatni til að trygga fullkominn undirbúning.
6.
Snúið lokanum í lokuðu stöðuna.
7.
Fjarlægið 30 ml lofttæmisprautuna og tæmið alla umfram saltupplausn.
8.
Festið aftur tómu 30 ml lofttæmisprautuna við kerfisbúnaðinn.
AÐFERÐ
Notið staðlaða aðferð til að leggja inn holnál ì viðkomandi æð með stýrivìr og stýrihollegg (innra mál ≥ 0,068‖
1.
[1,73 mm]) með viðtengdum blóðstöðvunarloka.
Setjið QuickCat™ útdráttarhollegginn á stýrivìrinn.
2.
VIÐVÖRUN: Sé eitthvert viðnám til staðar við meðhöndlun skal ákvarða orsök viðnámsins áður en holleggnum er ýtt
áfram eða hann dreginn til baka. Meðhöndlun holleggsins þar sem viðnám er til staðar getur orðið til þess að
holleggurinn og/eða æðar skemmist. Ef holleggurinn hnökrast í notkun stendur skal fjarlægja hann varlega úr
sjúklingnum og halda áfram með nýjum QuickCat™ útdráttarhollegg.
Við gegnumlýsingu skal ýta QuickCat™ útdráttarholleggnum áfram á viðeigandi stað.
3.
4.
Herðið blóðstöðvunarlokann nægilega til að koma í veg fyrir bakflæði, en ekki svo fast að það hindri hreyfingu
holleggsins.
5.
Með lokann í lokuðu stöðunni skal draga kólfinn á 30 ml sprautunni til baka að æskilegu rúmmáli útdráttar. Snúið
kólfinum réttsælis til að læsa sprautunni í viðeigandi lofttæmistöðu.
6.
Staðfestið rétta stöðu holleggsins með gegnumlýsingu.
Snúið lokanum ì opnu stöðuna til að hefja útdráttinn. Ýtið QuickCat™ útdráttarholleggnum hægt inn ì viðeigandi æð.
7.
Blóð kemur í sprautuna þar til lofttæming er búin.
8.
Ef blóð kemur ekki í sprautuna innan 5 sekúndna skal fjarlæga hollegginn úr sjúklingnum. Annað hvort skal skola
hollegginn utan sjúklingsins eða skipta út fyrir nýjan hollegg.
VIÐVÖRUN: Ef flæði inn ì sprautuna stöðvast eða er hindrað skal EKKI reyna að skola útdráttarhol QuickCat™
útdráttarholleggsins á meðan hann er inni í sjúklingnum. Fjarlægið hollegginn úr sjúklingnum og skolið útdráttarholið
áður en reynt er að nota hann aftur eða notið nýjan QuickCat™ útdráttarhollegg.
9.
Þegar útdrættinum er lokið skal snúa lokanum í lokuðu stöðuna og fjarlægja hollegginn úr sjúklingnum. Dregið blóð
og blóðsega má sía til skoðunar og/eða greiningar á rannsóknarstofu með meðfylgjandi 40 míkrona gropasíukörfu.
P003602-09
02Dec11
(2011-12-02)
40/84
Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis