LÝSING BÚNAÐAR ................................................................................................................................................... 39
HLUTAR BÚNAÐAR .................................................................................................................................................. 39
ÁBENDINGAR OG ÆTLUÐ NOTKUN ........................................................................................................................ 39
FRÁBENDINGAR ...................................................................................................................................................... 39
VIÐVARANIR ............................................................................................................................................................. 39
VARÚÐARRÁÐSTAFANIR ........................................................................................................................................ 40
MEINTILVIK ............................................................................................................................................................... 40
UNDIRBÚNINGUR BÚNAÐAR ................................................................................................................................... 40
AÐFERÐ .................................................................................................................................................................... 40
UMÖNNUN EFTIR AÐGERÐ ...................................................................................................................................... 41
HVERNIG AFHENT .................................................................................................................................................... 41
GEYMSLUAÐSTÆÐUR ............................................................................................................................................. 41
Lesið allar leiðbeiningar nákvæmlega fyrir notkun. Farið eftir öllum viðvörunum og varúðarráðstöfunum sem
fram koma í þessum leiðbeiningum. Ef ekki er farið eftir viðvörunum og varúðarráðstöfunum getur það leitt til
aukakvilla. Ráðleggingar í leiðbeiningum þessum eru aðeins til almennrar viðmiðunar. Þeim er ekki ætlað að
koma í stað aðferðarlýsinga stofnana eða faglegrar klínískrar dómgreindar varðandi meðferð sjúklings.
LÝSING BÚNAÐAR
QuickCat™ útdráttarholleggurinn er einnota, tvíenda holleggur til að fjarlægja mjúka blóðreka og blóðsega úr æðum
æðakerfisins. Fjærendinn á holleggnum er beygjanlegur, keilulaga og mjúkur og býður upp á skaðlausa leið inn í
æðakerfið. Búnaðurinn kemur dauðhreinsaður og er einungis ætlaður til notkunar í eitt skipti.
HLUTAR BÚNAÐAR
o
Holleggur:
o
Lofttæmisamstæða:
ÁBENDINGAR OG ÆTLUÐ NOTKUN
QuickCat™ útdráttarholleggurinn er ætlaður til að fjarlægja nýjan, mjúkan blóðreka og blóðsega úr æðum æðakerfisins.
Varan er ætluð til notkunar í eitt skipti af læknum sem eru þjálfaðir og með reynslu í greiningar- og inngripsaðferðum.
Hægt er að beita stöðluðum aðferðum við að koma fyrir slíðrum til innsetninga í æðar, holleggjum til æðamyndatöku og
stýrivírum.
FRÁBENDINGAR
o
Notkun í æðar með þvermál < 1,5 mm
o
Bláæðakerfið
o
Að fjarlægja trefjaefni, samgróninga og kalkefni (t.d. viðvarandi kekki, hörsl vegna fituhrörnunar slagæða)
VIÐVARANIR
o
Notið ekki án stýrivírs þar sem það getur valdið æðaskemmdum.
o
Reynið ekki að ýta áfram eða draga inn hollegginn þar sem viðnám er þangað til orsök viðnámsins hefur verið
ákvörðuð með gegnumlýsingu eða öðrum hætti. Meðhöndlun holleggsins þar sem viðnám er til staðar getur orðið til
þess að holleggurinn hnökrist og/eða æðar skemmist.
Ef kemur í ljós að stýrivírinn er of slakur eða að lykkja er á honum milli stýriholleggsins og einfalda hluta QuickCat™
o
útdráttarholleggsins meðan á aðgerð stendur getur stýrivírinn hnökrast inni í æðinni þegar holleggnum er ýtt áfram
eða hann dreginn inn. Lagfærið slakann eða lykkjuna á stýrivírnum áður en QuickCat™ holleggnum er ýtt áfram eða
hann dreginn inn til að koma í veg fyrir skemmdir á holleggnum og/eða æð.
Ef flæði inn ì sprautuna stöðvast eða er hindrað skal EKKI reyna að skola útdráttarhol QuickCat™
o
útdráttarholleggsins á meðan holleggurinn er inni í sjúklingnum. Það getur valdið alvarlegum skaða eða dauða.
o
Ekki skal nota beygðan, hnökraðan eða skemmdan hollegg þar sem það getur leitt til æðaskemmda og/eða þess að
ekki sé hægt að ýta áfram eða draga hollegginn til baka.
o
Notið ekki til gjafar eða innrennslis greininga-, rekstíflu- eða lækningaefna inn í blóðæðar.
P003602-09
02Dec11
(2011-12-02)
QUICKCAT™ ÚTDRÁTTARHOLLEGGUR
LEIÐBEININGAR UM NOTKUN
QuickCat™ útdráttarholleggurinn er samhæfður 6F stýriholleggjum [innra mál ≥ 0,068‖
(1,73 mm)] og 0,014‖ (0,36 mm) stýrivìrum. Vinnulengd holleggsins er 145 cm og fjærhluti
hans er með vatnssækinni húð. Geislaþétt merkirönd er u.þ.b. 1 mm frá endanum.
Lofttæmisamstæðan samanstendur af 7,0‖ (177,8 mm) framlengingarslöngu, einstefnuloka
og 30 ml lofttæmisprautu með stillanlegum læsikólfi. 40 míkrona gropasíukarfa fylgir til að
auðvelda síun blóðs og blóðsegaefnis til skoðunar eða greiningar á rannsóknarstofu.
39/84