Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Webasto Next Bedienungs- Und Einbauhinweise Seite 130

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 1
Villu-boð
Lýsing
Hafið samband við Webasto Charging
Hotline. Símanúmerið kemur fram á vefsíðu
okkar www.webasto-charging.com
Frekari lýsingar á LED-ljósum (F1-F5) er að finna í ítarlegu
nethandbókinni.
2.7
Þrif: Öryggisupplýsingar
HÆTTA
Háspenna.
Hætta er á banvænu raflosti. Ekki má hreinsa
hleðslustöðina með háþrýstidælu eða álíka tæki.
Upplýsingar um viðhald, þrif og viðgerðir er að finna í
handbókinni.
2.8
Skipt um hleðslusnúru:
Öryggisupplýsingar
HÆTTA
Hætta er á banvænu raflosti.
Takið rafmagnið af hleðslustöðinni í rafkerfi
u
hússins og komið í veg fyrir að hægt sé að setja
það aftur á í ógáti.
ÁBENDING
Aðeins má nota upprunalega varahluti frá Webasto.
3
Uppsetning og tenging við rafmagn
HÆTTA
Fylgið öryggisleiðbeiningunum í Öryggi.
Til þess að nálgast frekari skjöl skal nota einn eftirfarandi
valkosta:
– Webasto Service App
Til þess að sækja appið í Apple App Store skal fara á
https://apps.apple.com/ eða skanna eftirfarandi QR-
kóða.
Til þess að sækja appið í Google Play Store skal fara á
5111233A_ISI_Next
https://play.google.com/ eða skanna eftirfarandi QR-
kóða.
Til þess að nálgast Webasto Service App og tækniskjöl
Webasto á netinu skal skanna QR-kóðann eða
strikamerkið á umbúðum Webasto-vörunnar.
Notkunarleiðbeiningar okkar eru einnig aðgengilegar á
heimasíðu okkar á http://www.webasto-charging.com/
documentation. Öll tungumál er að finna í
niðurhalsgáttinni á heimasíðu okkar.
ÁBENDING
Öryggishönnun Webasto Next byggist á því að
jarðtenging veitukerfis sé ávallt tryggð og skal rafvirki
ganga úr skugga um það þegar uppsetning fer fram.
Kröfur til uppsetningarsvæðis
3.1
Við val á uppsetningarstað fyrir Webasto Next verður að
gæta að eftirfarandi atriðum:
– Við uppsetningu verður neðri brún meðfylgjandi
skapalóns að vera í að minnsta kosti 90 cm fjarlægð
frá gólfi. Sjá Fig: Live Wall mounting.
– Ef fleiri en ein hleðslustöð er sett upp hlið við hlið
verður bilið á milli stöðvanna að vera að minnsta kosti
200 mm.
– Uppsetningarflöturinn verður að vera sterkbyggður og
stöðugur.
– Uppsetningarflöturinn verður að vera alveg sléttur
(ekki má muna meiru en 1 mm milli
uppsetningarpunkta).
– Engin eldfim efni mega vera á uppsetningarfletinum.
– Að bíllinn sé í eins lítilli fjarlægð frá hleðslustöðinni og
kostur er.
– Að ekki sé hætta á að ekið sé yfir hleðslusnúruna.
– Að hægt sé að tengja innviðin við rafmagn.
– Að tækið hindri ekki aðgang að göngu- og
flóttaleiðum.
– Til að tryggja sem besta og snurðulausa virkni mælum
við með því að tækið sé sett upp á stað þar sem sólin
skín ekki beint á það.
– Hvernig bílnum er yfirleitt lagt með tilliti til þess hvar
hleðslutengið er á bílnum.
– Að farið sé að gildandi byggingarreglugerðum og
reglum um brunavarnir.
ÁBENDING
Bilið milli neðri brúnar hleðslustöðvarinnar og gólfsins
verður að vera að minnsta kosti 0,9 m.
Skilyrði fyrir tengingu við rafmagn
3.2
Verksmiðjustilling fyrir hámarkshleðslustraum kemur fram
á upplýsingaplötu hleðslustöðvarinnar. Með DIP-rofum er
hægt að minnka hámarkshleðslustrauminn til samræmis
við gildi innbyggða öryggisrofans.
ÁBENDING
Straumgildi valins öryggisbúnaðar má alls ekki vera
minna en straumgildið sem kemur fram á
upplýsingaplötu hleðslustöðvarinnar eða stillt er á
með DIP-rofanum.
Sjá Kafli 3.7, "Stilling DIP-rofa" á bls. 127.
Rafvirki skal kanna skilyrði fyrir uppsetningu
hleðslustöðvarinnar áður en hafist er handa við að tengja
búnaðinn við rafmagn.
Fylgja skal reglum yfirvalda og rafveitu á hverjum stað,
m.a. um tilkynningaskyldu vegna uppsetningar á
hleðslustöð.
ÁBENDING
Í sumum löndum er einfasa hleðsla takmörkuð við
tiltekinn straumstyrk. Vinsamlegast gætið að
skilyrðum fyrir tengingu á hverjum stað.
Eftirtalinn öryggisbúnaður verður að virka þannig að
hleðslustöðin sé aftengd frá veitukerfi með alpóla rofi
þegar lekastraumur greinist. Við val á öryggisbúnaði skal
fara eftir gildandi uppsetningarreglum og stöðlum á
hverjum stað.
IS
125

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis