Þjónustu- og viðhaldsupplýsingar
Þjónusta og viðhald lækningatækis er að öllu leyti á ábyrgð eiganda hvers tækis.
Ef ekki er hægt að sinna þjónustu og viðhaldi tækis í samræmi við leiðbeiningarnar kann ábyrgð tækisins
að falla úr gildi. Ennfremur getur það komið niður á klínísku ástandi eða öryggi notanda og/eða umönnun-
araðila ef tæki er ekki þjónustað og viðhaldið. Ekki má sinna þjónustu og viðhaldi meðan notandinn situr
í stólnum. Ef þörf krefur skal hafa samband við næsta söluaðila til að fá aðstoð við uppsetningu, notkun
eða hvernig á að sinna þjónustu og viðhaldi á tækinu.
Endingartími
Endingartími tækisins við venjulega notkun er
átta ár, svo framarlega sem viðhald og þjónusta
fer fram og er skráð í samræmi við leiðbeiningar
framleiðanda.
Endurnotkun
Þetta tæki og fylgihlutir/íhlutir þess henta vel til
endurnotkunar.
Endurbætur fyrir endurnotkun
Áður en varan er notuð aftur eða skipt er um
notanda skal fylgja þjónustugátlistanum og
hreinsunarleiðbeiningum, ásamt því að skoða
hana reglulega.
Tíðni þjónustu
Tíðni skoðana fer eftir notkun og sliti. Mælt er með
því að tækið sé skoðað árlega, í hvert sinn sem
því er úthlutað á annan notanda og eftir langtíma
geymslu (lengur en 4 mánuðir). Aðili sem hefur
skilning á notkun tækisins skal sjá um skoðunina.
Gátlisti þjónustuskoðunar:
Yfirfarið og stillið eftirfarandi í samræmi við
fyrirhugaða notkun:
• Sessur.
• Rær og boltar á tækinu eru hertir.
• Leitið eftir sliti á tengjum og sylgjum.
• Fyrir notkun skal skoða tækið og alla aukahluti
þess og skipta út slitnum hlutum.
• Gætið þess að hjólin séu örugg og virki sem
skyldi.
• Gangið úr skugga að fótastoðir séu tryggilega
festar.
• Ganga skal úr skugga um að allar merkingar á
vörunni séu heilar.
Gera skal við eða skipta um skemmda eða slitna
hluti.
Viðhald
Fyrir hverja notkun er mælt með að:
þurrka öll óhreinindi af tækinu með klút sem
vættur hefur verið með volgu vatni og mildu
klórfríu hreinsiefni/sápu, og leyfa tækinu að þorna
fyrir notkun.
Leita skal eftir merkjum um skemmdir eða slit.
Þvottur
Aðalhluti tækis
Tækið má þvo við 60°C með mildu þvottaefni
í 10 mínútur í þvottavél sem er ætluð fyrir
lækningatæki. Notið þurrkunaraðgerð vélarinnar
til að þurrka tækið. Fjarlægið allan aukabúnað og
EN IS
þvoið hann sérstaklega.
Hallaðu/snúðu tækinu eftir þvott til að auðvelda
vatnsrennsli innan úr tækinu.
Efni og áklæði
Áklæðið má þvo við hámark 60° hita með mildu
þvottaefni í þvottavél.
Takið áklæðið af svampinum fyrir þvott.
Svampur
Ekki er ráðlagt að þvo hluta sem eru úr svampi.
Handþvottur
Einnig er hægt að þvo tækið og alla aukahluti
í höndunum. Notið volgt vatn og milt klórfrítt
hreinsiefni/sápu og leyfið öllum hlutum að þorna
fyrir notkun.
Sótthreinsun
Tækið má sótthreinsa með 70% sótthreinsispritti.
Ráðlagt er að þurrka öll óhreinindi af tækinu með
klút, sem vættur hefur verið með volgu vatni og
mildu klórfríu hreinsiefni/sápu, og leyfa tækinu að
þorna fyrir sótthreinsun.
Efni
• Ryðfrítt stál
• Ál
• Plast
• Gúmmí
• Pólýúretan
• Neópren
• Pólýester
• Stál
• Messing
Yfirborðsmeðhöndlun
Eftirfarandi aðferðir við meðhöndlun yfirborðs hafa
verið notaðar til að varna tæringu:
• Lakkað yfirborð = Pólýesterdufthúðun eða
ED-húðun
• Ólakkaðir hlutar úr áli = rafhúðun
• Ólakkað yfirborð úr stáli = sinkhúðun
154
etac.com