Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Etac R82 Addax Bedienungsanleitung Seite 152

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für R82 Addax:
Inhaltsverzeichnis
Öryggi
Merkingar, tákn og leiðbeiningar verða að vera til staðar, vera læsilegar og vel sýnilegar þar til endingartími
tækisins er liðinn. Skiptið strax um eða lagfærið ólæsilegar eða skemmdar merkingar, tákn eða leiðbein-
ingar. Fá má leiðbeiningar hjá næsta söluaðila.
Ef fylgikvillar koma fram sem rekja má til notkunar tækisins skal tilkynna slík tilvik tímanlega til næsta
söluaðila og lögbærra innlendra yfirvalda. Söluaðili áframsendir upplýsingar til framleiðanda.
Umönnunaraðili
• Lesið notendahandbókina vandlega fyrir
notkun og geymið hana til síðari nota. Ef þetta
tæki er notað með röngum hætti getur það
valdið notanda alvarlegum meiðslum.
• Stillingar og breytingar á tækinu eða
fylgihlutum mega aðeins þeir einstaklingar
gera sem hafa lesið notendahandbókina og
hafa fengið nauðsynlegar leiðbeiningar frá
ráðgjafa tækisins.
• Þetta tæki inniheldur smáhluti sem gætu
valdið köfnunarhættu ef þeir eru fjarlægðir af
sínum stað.
• Þegar hreyfanlegir hlutar eru stilltir skal gæta
þess að líkamshlutar klemmist ekki eða festist
• Fyrir uppsetningu stoðtækja/aukahluta skal
ganga úr skugga um að engin hætta sé á
meiðslum.
• Þegar lyfta þarf notanda skal ávallt nota réttar
aðferðir og hjálpartæki.
• Notandinn má aldrei vera eftirlitslaus í tækinu.
Tryggja skal að umönnunaraðili sinni stöðugu
eftirliti.
• Alltaf skal nota nauðsynlegan stuðning og
festingar til að tryggja að notandinn sé öruggur
og stöðugur í tækinu.
• Allar viðgerðir og viðhald skal fara fram með
nýjum varahlutum og útbúnaði frá R82, og í
samræmi við leiðbeiningar og fyrirmæli um
viðhaldstímabil frá söluaðila.
• Ef vafi leikur á öryggi við notkun R82-tækisins
eða ef bilanir koma upp skal taka tækið
samstundis úr notkun og hafa tafarlaust
samband við söluaðila.
• Flutningur á tækinu meðan notandinn er í því
er ekki heimilaður. Leyfilegt er að nota tækið í
stuttar vegalengdir ef notandinn er tryggilega
festur í því. Ekki má fara yfir hindranir meðan
á flutningi stendur.
• Tryggja skal að notandinn fái stuðning
þegar stilling er framkvæmd á tækinu eða
fylgihlutum.
Umhverfi
• Kannið yfirborðshita tækis áður en notandinn
er færður í það. Þetta á sérstaklega við ef
notandi er með skerta húðskynjun og finnur
ekki fyrir hita. Ef yfirborðshiti er yfir 41°C skal
leyfa vörunni að kólna fyrir notkun.
• Nota skal tækið á jafnsléttu þar sem engar
hindranir eru til staðar.
• Við notkun í halla skal stuðst við mælingar.
etac.com
EN
IS
Notandi
• Ef notandinn er nálægt hámarksþyngd og/
eða með miklar ósjálfráðar hreyfingar skal
íhuga tæki sem ber meiri þyngd eða annað
R82-tæki.
Tæki
• Framkvæmið allar stillingar á tækinu og
aukabúnaði þess og gangið úr skugga um að
allir hnúðar, skrúfur og sylgjur séu tryggilega
fest fyrir notkun. Geymið öll verkfæri þar sem
börn ná ekki til.
• Gangið úr skugga að allir stillanlegir hlutar
séu tryggilega fastir fyrir notkun.
• Setjið bremsurnar á áður en notandanum
er komið fyrir í tækinu.
• Gangið úr skugga um að tækið sé stöðugt
áður en notanda er komið fyrir í því.
• Verjið pumpuna gegn þrýstingi eða háum hita.
EKKI má gera gat á hana.
• Verjið stimpilstöngina gegn rispum, o.s.frv.
Mikilvægt er að nota klút eða álíka ef notuð
eru verkfæri til að stilla pumpuna.
• Þetta tæki er prófað með tilliti til
íkveikjuþols þegar ekki hefur kviknað
í því, í samræmi við gildandi staðla.
• Varan gæti tapað brunaþolseiginleikum ef
upprunalegar R82-sessur eru ekki notaðar.
• Þetta tæki má ekki nota í vélknúnu ökutæki.
Notandi þarf að vera í sæti ökutækisins
og tækið í farangursrými.
• Notandi má ekki vera í tækinu meðan
það er flutt inn í eða út úr ökutæki með lyftu.
• Flytja má tæki sem ekki er setið í bæði
á landi og í lofti.
153
Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis