Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

IKEA VARDAGEN Bedienungsanleitung Seite 16

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für VARDAGEN:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 6
Til að koma í veg fyrir að pannan tærist og
matur festist þarf að steikja hana til. Með því að
steikja hana til fyllast glufur af olíu sem mynda
varnarlag.
Til að steikja steypujárnspönnu til þarf að nudda
lítilli olíu á allt yfirborð pönnunnar og hita
hana síðan í ofni eða á helluborði á mest 150°C
(300°F) í minnst klukkutíma. Leyfðu pönnunni
að kólna og þurrkaðu afgangsolíu af. Þetta þarf
að gera þrisvar sinnum meðan pannan er ný, en
þegar búið er að steikja hana til þarf aðeins að
gera það af og til.
Umhirða og þrif
Eftir notkun þarf að þvo pönnuna í höndunum
með vatni og bursta. Það er auðveldara að þrífa
hana þegar hún er enn heit. Þurrkaðu vel eftir
þvott.
Notaðu aðeins heitt vatn. Ekki nota
uppþvottalög þar sem hann þurrkar upp efnið
og fjarlægir lag af fitu sem er nauðsynleg fyrir
yfirborð úr steypujárni.
Hægt er að fjarlægja bletti sem myndast við
matreiðslu með því að strá salti á pönnuna og
þurrka það af. Saltið dregur í sig aukafitu en
skilur eftir nógu mikla fitu til að koma í veg fyrir
að pannan þorni.
Ef það myndast ryðblettir eða matvæli brenna
við og skilja eftir bletti er hægt að þvo pönnuna
með stálull eða grófum svampi og steikja hana
aftur til.
Ómeðhöndlað steypujárn getur tærst ef það
er ekki meðhöndlað rétt. Það er mikilvægt að
þurrka pönnuna strax eftir uppvask og bera olíu
á stálið reglulega.
Notkun
Pannan hentar öllum gerðum helluborða og má
fara í ofn.
Þegar matur er eldaður í steypujárni safnast
fitan fyrir í litlum ójöfnum á yfirborðinu. Það
þýðir að maturinn sem á að steikja eða brúna
kemst ekki í snertingu við steypujárnið sjálft
16

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis