Herunterladen Diese Seite drucken

Bosch ABS Pro BAS3511 Originalbetriebsanleitung Seite 68

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für ABS Pro BAS3511:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 3
Íslenska – 4
Á ferð
Haga skal aksturslagi og hemlun eftir akstursskilyrðum,
akbrautinni og færni ökumanns hverju sinni.
Athugaðu að ABS-kerfið getur aukið hemlunarvegalengdina.
Á hálu undirlagi renna dekkin frekar til og meiri hætta er á að
detta. Skal því draga úr hraða og bremsa bæði tímanlega og
hóflega.
Gaumljós ABS-kerfisins
Kvikna verður á ABS-gaumljósinu þegar kveikt er á rafhjólinu
og slokkna verður á því þegar hraðinn nær u.þ.b. 5 km/h.
Ef ekki slokknar á gaumljósinu eftir að hjólað er af stað eða ef
það kviknar á gaumljósinu á ferð gefur það til kynna villu í
ABS-kerfinu eða að notandinn hafi slökkt á ABS-virkni. Ef
skjár eða hjólatölva er tengd við hjólið birtist einnig villukóði
þar. Einnig er hægt að skoða vistaða villukóða í appinu eBike
Flow. ABS-kerfið er þá ekki lengur virkt. Áfram er hægt að
nota bremsukerfið, því einungis ABS-kerfið starfar ekki
lengur.
Láta verður fagaðila annast allar viðgerðir.
u
Virkni afturbremsunnar fer ekki eftir því hvort ABS-kerfið er
starfhæft.
VIÐVÖRUN – ABS-gaumljósið logar.
u
Þegar ABS-gaumljósið logar er ABS-kerfið ekki virkt.
Athugaðu: Einnig getur kviknað á ABS-gaumljósinu við erfið
akstursskilyrði þar sem mikill munur er á snúningshraða
fram- og afturhjóls, t.d. þegar prjónað er á hjólinu eða þegar
hjól snýst óvenju lengi án snertingar við jörðu (á
viðgerðastandi). Þá er slökkt á ABS-kerfinu. Til þess að gera
ABS-kerfið virkt aftur skal stöðva rafhjólið og endurræsa það
(slökkva og kveikja aftur á því).
VARÚÐ – ekki er hægt að gefa villur í ABS-kerfinu til
u
kynna ef ABS-gaumljósið er í ólagi.
Þegar kveikt er á rafhjólinu verður að athuga hvort ABS-
gaumljósið logar, en ef svo er ekki gefur rafhjólið til kynna
alvarlega villu með rauðu blikkandi ljósi á
stjórnbúnaðinum. Skal þá snúa sér til söluaðila.
Hjólað með tóma rafhlöðu
Þegar hleðslan á rafhlöðu rafhjólsins fer niður fyrir tiltekin
mörk slekkur kerfið fyrst á drifstuðningnum. Hins vegar er
áfram kveikt á rafhjólinu, skjánum og/eða stjórnbúnaðinum,
ljósunum og ABS-kerfinu þar til varaaflið á rafhlöðunni er
einnig á þrotum. Ekki er slökkt á rafhjólinu og þar með ABS-
kerfinu fyrr en rafhlaðan er orðin alveg tóm.
Áður en slökkt er endanlega logar gaumljósið aftur í u.þ.b.
5 sekúndur.
Að þeim tíma liðnum er slökkt á ABS-gaumljósinu jafnvel þótt
ABS-kerfið sé ekki virkt. Ef ekki er rafhlaða í rafhjólinu eða
rafhlaðan er tóm er ABS-kerfið ekki virkt.
Áfram er hægt að nota bremsukerfið, því einungis ABS-kerfið
starfar ekki lengur.
Hlaða skal rafhlöðuna til þess að geta sett rafhjólið og þar
með ABS-kerfið aftur í gang.
VIÐVÖRUN – ABS-kerfið er ekki virkt nema að aflgjafi
u
sé fyrir hendi!
0 275 008 3AS | (17.02.2024)
Ef rafmagnið fer af, rafhlaðan er tóm eða engin rafhlaða er
í hjólinu er ABS-kerfið ekki virkt og ABS-gaumljósið logar
ekki.
Viðhald og þjónusta
Viðhald og þrif
Viðhald og viðgerðir verða að fara fram á faglegan
u
hátt. Hlutum sem eru í ólagi má eingöngu skipta út
fyrir upprunalega varahluti.
Láta skal skoða rafhjólið að minnsta kosti einu sinni á ári
(m.a. vélbúnað þess og hvort kerfishugbúnaður er í nýjustu
útgáfu).
Láta skal viðurkenndan söluaðila reiðhjóla sjá um að
þjónusta rafhjólið og gera við það.
Ekki má þrífa neina hluta reiðhjólsins, þ.m.t. drifeininguna,
með því að dýfa þeim í vatn eða sprauta á þá vatni.
Notendaþjónusta og ráðleggingar um notkun
Ef óskað er upplýsinga um rafhjólið og hluta þess skal snúa
sér til viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Finna má samskiptaupplýsingar fyrir viðurkennda söluaðila
reiðhjóla á vefsíðunni www.bosch-ebike.com.
Nánari upplýsingar um hluta rafhjólsins og
virkni þeirra er að finna í Bosch eBike Help
Center.
Förgun og framleiðsluefni
Nálgast má upplýsingar um framleiðsluefni á eftirfarandi
vefslóð: www.bosch-ebike.com/en/material-compliance.
Ekki má fleygja rafhjólum og íhlutum þeirra með venjulegu
heimilissorpi!
Hægt er að skila tækinu til söluaðila ef hann býður upp á slíkt
eða ber lagaleg skylda til þess. Fara skal eftir gildandi lögum
og reglum hvað þetta varðar.
Skila skal drifeiningunni, hjólatölvunni ásamt
stjórnbúnaðinum, rafhlöðu rafhjólsins,
hraðaskynjaranum, aukabúnaði og umbúðum
til endurvinnslu með umhverfisvænum hætti.
Notandi skal sjálfur ganga úr skugga um að
persónuupplýsingum hafi verið eytt úr tækinu.
Ef hægt er að taka rafhlöður úr raftækinu án þess að
eyðileggja þær skal taka þær úr og skila þeim til sérstakrar
söfnunarstöðvar fyrir rafhlöður áður en tækinu er fargað.
Flokka verður úr sér gengin raftæki (samkvæmt
Evróputilskipun 2012/19/EU) og bilaðar eða úr
sér gengnar rafhlöður/hleðslurafhlöður
(samkvæmt Evróputilskipun 2006/66/EC)
sérstaklega og skila þeim til endurvinnslu með
umhverfisvænum hætti.
Bosch eBike Systems

Werbung

loading

Diese Anleitung auch für:

Abs bas3321Abs bas3311Abs pro bas3521