Herunterladen Diese Seite drucken

Bosch ABS Pro BAS3511 Originalbetriebsanleitung Seite 67

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 3
Hlutar á mynd
Númeraröð hluta á myndum miðast við hvernig þeir koma
fram á myndunum fremst í handbókinni.
Allt eftir útbúnaði rafhjólsins getur sumt af því sem kemur
fram í þessari notendahandbók verið frábrugðið því sem er
að finna á hjólinu.
(1) ABS-stýrieining
(2) Stjórnbúnaður með ABS-gaumljósi
(3) Frambremsa
(4) Bremsudæla
(5) Hraðaskynjari fyrir hjól
(6) Skynjaraplata
a) Uppsetningarstaðan getur verið mismunandi eftir framleiðanda
rafhjólsins.
Tæknilegar upplýsingar
ABS
Vörukóði
Notkunarhitastig
Geymsluhitastig
Varnarflokkur
Þyngd, u.þ.b.
Athugaðu: Lýsingu á bremsunum og virkni þeirra er að finna
í leiðbeiningunum frá framleiðanda bremsanna.
Virkni
Þegar bremsað er með frambremsunni greinir ABS-kerfið
tilhneigingu framhjólsins til að læsast og hætta að snúast.
ABS-kerfið dregur úr hemlunarþrýstingi og gerir rafhjólið
þannig stöðugra. Greiningin byggist annaðhvort á
snúningshraðaskynjurum á fram- og afturhjóli eða á
snúningshraðaskynjara á framhjóli og tregðuskynjara í
drifeiningunni.
Þegar rafhjólið er orðið stöðugt er framhjólið aftur fært að
læsingarmörkum með því að auka hemlunarþrýstinginn með
markvissum hætti. Handfangið á frambremsunni færist þá
dálítið í átt að stýrinu í hvert skipti sem kerfið hemlar. Þegar
framhjólið hefur aftur tilhneigingu til að læsast er
þrýstingurinn minnkaður að nýju. Þetta er endurtekið til að
halda framhjólinu alltaf við gripmörk og tryggja þannig að
núningsstuðullinn milli dekksins og undirlagsins nýtist sem
best.
Það telst vera eðlilegt að það komi dálitlir kippir eða titringur
í handfang frambremsunnar og gera má ráð fyrir slíku á
meðan ABS-kerfið vinnur.
ABS-virknin stöðvast þegar eitt af eftirfarandi á sér stað:
– Vökvaþrýstigeymirinn í ABS-stýrieiningunni er orðinn
alveg fullur.
– Rafhjólið hefur stöðvast.
– Ökumaður sleppir bremsunni.
Af kerfislægum ástæðum getur ABS-kerfið ekki gripið inn í
fyrr en hraðinn er að lágmarki 5 km/h.
Bosch eBike Systems
a)
Magura
Tektro
BAS3311
BAS3321
BAS3511
BAS3521
°C
−5 ... +40
−5 ... +40
°C
+10 ... +40
+10 ... +40
IP55
g
215
Til viðbótar við venjulega ABS-virkni greinir kerfið einnig
þegar afturhjólið lyftist. Innan vissra marka er þannig hægt
að hindra að hjólið kastist fram þegar hemlað er skyndilega
og af miklu afli.
Þegar ABS Pro-kerfið er í notkunarmátanum Race greinir það
ekki þegar afturhjólið lyftist við snarhemlun.
Hins vegar getur verið hægt að nýta það þegar afturhjólið
lyftist í mismunandi tilgangi í íþróttum.
Uppsetning
ABS-kerfið er sett upp að fullu hjá framleiðanda og ekki má
breyta því með neinum hætti.
Aðgát! Ef festa á annan aukabúnað á stýrið skal gæta þess
að það verður að vera hægt að hreyfa stýrið auðveldlega í
60° úr miðstöðu til beggja hliða. Ef þörf krefur skal nota
búnað sem takmarkar hreyfingar stýrisins.
Notkun
Ef ABS-kerfi er á reiðhjólinu má ekki setja frekari
u
festingar á gaffalinn, t.d. fyrir töskur.
Athugaðu: Hægt er að breyta virkni ABS-kerfisins í
stillingum rafhjólsins: Veldu notkunarmáta eða slökktu á
ABS-kerfinu eftir þörfum.
IP55
215
Áður en hjólað er af stað
Þegar kveikt er á rafhjólinu skal alltaf athuga hvort ABS-
gaumljósið logar eins og það á að gera á skjánum og/eða á
stjórnbúnaðinum. Nánari upplýsingar er að finna í „(sjá
„Gaumljós ABS-kerfisins", Bls. Íslenska – 4)" hér á eftir.
Áður en hjólað er af stað skal alltaf athuga ástand rafhjólsins
og hvort öruggt er að nota það í umferðinni. Áður en hjólað er
af stað ber ökumanni rafhjólsins alltaf að ganga úr skugga um
að rafhjólið sé í góðu lagi, virki rétt og henti til notkunar í
umferðinni. Ef rafhjólið er notað þrátt fyrir þekkta ágalla
fylgir því aukin slysahætta fyrir ökumann.
Áður en hjólað er af stað skal alltaf ganga úr skugga um að
fram- og afturbremsurnar virki rétt.
Áður en hjólað er af stað skal athuga hvort þykkt
bremsupúðanna og bremsudisksins uppfylli kröfur
framleiðanda bremsanna.
Athugaðu hvort ABS-stýrieiningin er vel fest við gaffalinn.
Við fyrstu notkun
Kynna skal sér virkni og viðbragðsgetu bremsanna og ABS-
kerfisins! Ef þörf krefur skal æfa sig að bremsa á öruggum
stað fjarri umferð.
Hemlunargetan kann að breytast með tímanum og
hugsanlega þarf einhvern aðlögunartíma þegar bremsurnar
eru nýjar eða skipt er um bremsupúða. Frekari upplýsingar
um bremsukerfið er að finna í notkunarleiðbeiningum
bremsuframleiðandans.
Íslenska – 3
0 275 008 3AS | (17.02.2024)

Werbung

loading

Diese Anleitung auch für:

Abs bas3321Abs bas3311Abs pro bas3521