Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M DBI-SALA Nano-Lok XL Bedienungsanleitung Seite 110

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 38
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
IS
Vinsamlegast lestu, meðtaktu og fylgdu öllum öryggisupplýsingum sem eru í þessum leiðbeiningum áður en þessi sjálfinndraganlegi
búnaður (Self-Retracting Device-SRD). er notaður. EF LEIÐBEININGUM ÞESSUM ER EKKI FYLGT EFTIR, GETUR ÞAÐ VALDIÐ
ALVARLEGUM MEIÐSLUM, LÍKAMSTJÓNI EÐA DAUÐA.
Leiðbeiningar þessar verður að afhenda notanda þessa búnaðar. Geymdu þessar leiðbeiningar til að styðjast við í framtíðinni.
Ábent notkun:
Þessi SRD-búnaður er ætlaður til notkunar sem hluti af fullkomnu persónulegu fallvarnarkerfi.
Öll önnur notkun, þ.m.t., en takmarkast ekki við, meðhöndlun efna, notkun í afþreyingar- eða íþróttaskyni eða önnur notkun sem ekki er lýst í
notendaleiðbeiningunum, er ekki samþykkt af 3M og gæti valdið alvarlegum meiðslum eða dauða.
Einungis þjálfaðir notendur á vinnustað skulu nota þennan búnað.
!
VIÐVÖRUN
Þessi SRD-búnaður er hluti af persónulegu fallvarnarkerfi. Ætlast er til að allir notendur séu fullþjálfaðir í öruggri uppsetningu og notkun þeirra
eigin fallvarnarkerfis. Röng notkun þessa búnaðar getur valdið alvarlegum meiðslum eða dauða. Fyrir rétt val, notkun, viðhald og þjónustu
sem snertir búnaðinn skaltu lesa þessar notandaleiðbeiningar og allar ráðleggingar framleiðanda, ræða við yfirmann þinn eða hafa samband við
tæknilega þjónustu hjá 3M (3M Technical Services).
Til að minnka áhættuna sem fylgir því að starfa með SRD-búnaði sem gæti, ef ekki er komið í veg fyrir slíka áhættu og fall,
valdið alvarlegu líkamstjóni eða dauða:
-
Fyrir sérhverja notkun skal skoða SRD-búnaðinn og athuga hvort læsingar virka og hvort búnaðurinn dregst sjálfkrafa til baka.
-
Ef skoðunin leiðir í ljós óöruggt ástand eða galla skal taka búnaðinn úr umferð og gera við hann eða endurnýja í samræmi við
notendaleiðbeiningarnar.
-
Ef SRD-búnaðurinn hefur stöðvað fall eða orðið fyrir miklu kraftálagi, skal strax taka SRD-búnaðinn úr notkun og merkja búnaðinn með
merkingunni 'ÓNOTHÆFUR'.
-
Tryggðu að líflínunni sé haldið lausri við allar hindranir, þ.m.t. en ekki takmarkað við að línan festist í vélum eða tækjum sem eru á
hreyfingu (t.d. toppdrifinu á olíuborpöllum), flækist í öðrum starfsmönnum, flækist í þér sjálfum, í hlutum sem eru í kring eða verði fyrir
hlutum sem geta fallið að ofan á líflínuna eða á starfsmanninn.
-
Aldrei skal hafa slaka á líflínunni. Ekki skal binda hnút á líflínuna.
-
Festa skal ónotaðan fót eða fætur dragreipisins við SDR-búnaðinn á beltinu ef slíkt fylgir.
-
Ekki skal nota búnaðinn við aðstæður þar sem fall getur ekki átt sér stað vegna hindrana. Að vinna í efni sem rennur hægt, eins og í sandi
eða korni eða vinna í lokuðu rými eða þröngu rými getur skapað aðstæður þar sem fall starfsmanns nær ekki nægum hraða til að SRD-
búnaðurinn læsist. Greið leið er nauðsynleg til að tryggja jákvæða læsingu á SRD-búnaðinum.
-
Forðast skal snöggar eða hraðar hreyfingar við venjulega vinnu. Slíkt getur valdið því að búnaðurinn læsist.
-
Tryggja skal að öll fallvarnarkerfi/undirkerfi sem eru samsett úr íhlutum mismunandi framleiðenda séu samhæfð og mæti kröfum
viðeigandi staðla, þ.m.t. staðlinum ANSI Z359 eða öðrum viðeigandi fallvarnarkóðum, stöðlum eða kröfum. Alltaf skal ráðfæra sig við
hæfan og/eða vottaðan aðila, áður en þessi kerfi eru notuð.
TÆKI MEÐ SEGUL) Forðast skal að vera nálægt fólki sem er með ígrædda málmhluti í sérFarga skal notuðum rafhlöðum tafarlaust
Til að minnka áhættuna sem fylgir því að starfa hátt uppi, sem gæti, ef ekki er komið í veg fyrir það, valdið alvarlegu
líkamstjóni eða dauða:
-
Tryggðu að heilsa þín og líkamlegt ástand geri þér örugglega kleift að þola allt það álag sem fylgir því að starfa hátt uppi. Ráðfærðu þig
við lækni ef þú ert með einhverjar spurningar varðandi hæfni þína til að nota þennan búnað.
-
Aldrei skal fara yfir leyfilega getu fallvarnarbúnaðarins.
-
Aldrei skal fara umfram hámarkslengd frjáls falls sem fallvarnarbúnaðurinn leyfir.
-
Ekki nota neinn fallvarnarbúnað sem bilar við prófun eða við eftirlit, eða ef þú hefur áhyggjur af notkun búnaðarins eða telur að hann
henti ekki í það verk sem er fyrir höndum. Hafðu samband við tæknilega þjónustu 3M ef þú ert með einhverjar spurningar.
-
Sum undirkerfi og samsetningar íhluta geta truflað notkun þessa búnaðar. Einungis skal nota tengingar sem eru samhæfðar við þennan
búnað. Ráðfærðu þig við 3M fyrir notkun þessa búnaðar með íhlutum eða undirkerfum sem eru frábrugðin þeim kerfum sem er lýst í
notendaleiðbeiningunum.
-
Nota skal auka varúðarráðstafanir þegar verið er að vinna nálægt tækjabúnaði sem er á hreyfingu (t.d. á olíuborpöllum), nálægt
rafmagnshættu, við mjög hátt eða lágt hitastig, við efnahættu, þar sem sprengihætta er eða hættulegar gastegundir, þar sem eru skarpar
brúnir, eða þar sem unnið er undir hlutum sem gætu fallið á þig eða á fallvarnarbúnaðinn sjálfan.
-
Notaðu Arc Flash- eða Hot Works-búnað þegar þú vinnur í mjög heitu umhverfi.
-
Forðastu yfirborðsfleti og hluti sem geta skaðað notandann eða búnaðinn.
-
Tryggðu að það sé viðeigandi pláss til að falla þegar þú vinnur hátt uppi.
-
Aldrei breyta eða umbreyta fallvarnarbúnaðinum. Einungis 3M eða aðilar sem hafa skriflegt umboð frá 3M mega gera við þennan búnað.
-
Fyrir notkun fallvarnarbúnaðar skal tryggja að neyðaráætlun sé til um það hvernig bregðast skuli samstundis við ef fall eða slys á sér stað.
-
Ef fall á sér stað skal tafarlaust leita læknishjálpar fyrir starfsmanninn sem fallið hefur.
-
Ekki skal nota venjulegt líkamsbelti til að stöðva fall. Einungis skal nota líkamsöryggisbelti til að stöðva fall.
-
Lágmarka skal sveiflur með því að vinna eins beint fyrir neðan festipunktinn og mögulegt er.
-
Ef þjálfun fer fram með þessum búnaði verður að nota annað fallvarnarkerfi þannig að sá sem er í þjálfun sé ekki í hættu við að falla óvart
til jarðar.
-
Alltaf skal nota viðeigandi persónuhlífar þegar verið er að setja upp, nota eða hafa eftirlit með búnaðinum/kerfinu.
110
SIT 5908239 Rev. C

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis