J:7 Loftræstistaða: Togaðu eyrnaskálarnar út á við uns þú
heyrir smell til þess að stilla heyrnartólin í loftræstistöðu.
Forðastu að leggja skálarnar að festingunni (J:8) því það
hindrar loftræstingu.
8.
LEIÐBEININGAR UM NOTKUN
8.1. KVEIKT/SLÖKKT
Kveikt er og slökkt á heyrnartólunum með því að þrýsta á On/
Off/Mode hnappinn í um það bil 4 sekúndur uns hljóðmerki
heyrist.
8.2. SJÁLFVIRKT SLÖKKT Á TÆKINU
Sé tækið aðgerðalaust (hvorki er þrýst á hnappa né VOX-virkni)
í 2 klst. (sjálfvalið gildi) slökkva heyrnartólin á sér sjálfkrafa.
Áður en heyrnartólin slökkva á sér heyrast raddskilaboð og
viðvörunartíst. Þrýstu á hvaða hnapp sem er til að stöðva að
sjálfkrafa sé slökkt á tækinu.
8.3. SAMSKIPAN HEYRNARTÓLA
(Tafla F:1 - F:2)
Sum heyrnartól eru afhent forrituð með sérstakri uppsetningu (sjá
töflur F). Hafðu vinsamlegast samband við vottaðan sölumann
talstöðva eða tækniþjónustudeild 3M vegna allra spurninga um
uppsetningu heyrnartólanna, þar með talið:
• Senditíðnir/rásir
• Tungumál raddleiðbeininga
• Uppsetning valmynda
• Stillingar orkustýringar
• Stillingar talstöðvar
8.4. AÐ STILLA HLJÓÐSTYRK
Notaðu [+] og [–] hnappana til að stilla hljóðstyrk. Það er
sjálfgild stilling að [+] og [–] hnapparnir stýra hljóðstyrk allra
virkra hljóðgjafa, en þeir gætu verið sem hér segir: Talstöð,
Bluetooth-samskipti eða hlustun á umhverfishljóð. Þegar hljóð
berst um talstöð, stýra [+] og [–] hnapparnir hljóðstyrk hennar. Sé
Bluetooth-tæki tengt, stýra [+] og [–] hnapparnir afspilun hljóðs
með Bluetooth. Að öðru leyti stýra [+] og [–] hnapparnir hljóðstyrk
umhverfishljóða. Einnig er hægt að stilla viðeigandi hljóðstyrk í
valmyndinni.
8.5. SAMSKIPTI AUGLITI TIL AUGLITIS
(PUSH-TO-LISTEN, ÞRÝSTA-OG-HLUSTA)
Hægt er að virkja umhverfishljóðnemana eða hækka í þeim með
því að þrýsta tvisvar á On/Off/Mode hnappinn.
Þrýsta-og-hlusta eiginleikinn gerir þér kleift að hlusta strax
á umhverfið með því að deyfa hljóðstyrk Bluetooth og virkja
styrkstýrðu umhverfishljóðnemana.
Þrýstu á hvaða annan hnapp sem er til að afvirkja þrýsta-og-
hlusta.
8.6. SAMSKIPTI UM TALSTÖÐ
(Mynd L)
Veldu viðeigandi talstöðvarrás í valmynd. Þrýstu á PTT-
hnappinn (Ýta-og-tala) í tvær sekúndur til að tala í talstöðina.
Sé VOX virkt, er talað í hljóðnemann til að senda.
Seljandi getur stillt hámarks senditíma.
Sjálfvalinn hámarks sendingartími er 3 mínútur.
Þrýstu tvisvar á PTT-hnappinn (Ýta-og-tala) til að virkja eða
afvirkja VOX.
Talhljóðnemi þarf að vera mjög nálægt munninum til þess
að ná sem bestri hávaðadeyfingu (innan við 3 mm / 1/8 úr
tommu). Sjá myndir L:1 og L:2.
8.7. FJARSKIPTI UM TENGT YTRA VIÐTÆKI
(Mynd P)
Tengja verður ytri talstöð við aukagáttina (P:10).
Notaðu PTT-hnappinn á talstöðinni eða ytra PTT-millistykki til
að senda.
8.8. FLAUMRÆNT VIÐTÆKI
(Tafla G og H)
Flaumræn senditækni býr yfir möguleikanum til að stilla
mismunandi tíðnisvið fyrir móttöku og sendingu til að tryggja
að heyrnartólin geti átt samskipti um línumagnarakerfi.
Heyrnartólin styðja FM-mótun og lágtíðnitóna, bæði CTCSS
(1-38) og DCS (39-121) tóna. Sjá töflur G og H.
8.9. DMR-TÆKNI
DMR snýst um þrjár mismunandi samskiptaaðferðir:
Alhringing, hóphringing og einkahringing. Með alhringingu er
hægt að eiga samskipti við öll DMR-heyrnartól á sömu tíðni
og litakóða. Með hóphringingu er hægt að eiga samskipti
við öll heyrnartól á sömu tíðni, með réttan litakóða og rétt
hópauðkenni. Með einkahringingu er hægt að eiga samskipti
við öll heyrnartólin á sömu tíðni, með réttan litakóða og rétt
viðtækisauðkenni.
Þessi heyrnartól styðja DMR-staðalinn (1. og 2. stig) og gefa
kost á alhringingu og hóphringingu. Heyrnartólin styðja einnig
við stafræna lágtóna sem nefnast litakóðar (1-15).
Stafrænt gagnvirkt viðtæki getur haft mismunandi tíðnisvið
fyrir móttöku og sendingu. Þannig getur það átt samskipti við
línumagnarakerfi.
8.10. BLUETOOTH
8.10.1. BLUETOOTH MULTIPOINT FJÖLPUNKTATÆKNI
Heyrnartólin styðja Bluetooth Multipoint fjölpunktatækni.
Notaðu Bluetooth Multipoint fjölpunktatækni til að tengja
heyrnartólin við tvö Bluetooth-tæki samtímis.
Það ræðst af því hvaða Bluetooth-tæki eru tengd og hvaða
virkni er í gangi hverju sinni hvernig heyrnartólin stjórna
Bluetooth-tækjunum. Heyrnartólin forgangsraða og samhæfa
virkni tengdra Bluetooth-tækja.
8.10.2. AÐ PARA BLUETOOTH-TÆKI
Þegar heyrnartólin eru í gangi er þrýst á Bluetooth-hnappinn
á vinstri skál til að fara í pörunarham, sé ekkert tæki parað.
Raddskilaboð staðfesta "Bluetooth pairing on" (Bluetooth-
pörun í gangi).
Gættu þess að Bluetooth sé virkjað á Bluetooth-tækinu.
Leitaðu að tækjum og veldu „WS LiteCom Pro III Headset".
Raddskilaboð staðfesta að búið sé að para, „Pairing
complete" (Pörun lokið).
Hægt er að para heyrnartólin við tvö Bluetooth-tæki og þau
geta verið tengd við þau bæði samtímis.
Þrýstu stutt á On/Off/Mode hnappinn til að fara inn í valmynd
þegar para á annað tæki með Bluetooth-pörun. Notaðu On/
Off/Mode hnappinn til að fara um valmyndina, raddskilaboð
staðfesta stillinguna "Bluetooth pairing" (Bluetooth-pörun).
Þrýstu á [+] hnappinn til að setja heyrnartólin í pörunarham.
Þrýstu á [-] hnappinn til að fara út úr pörunarham.
Gættu þess að Bluetooth sé virkjað á Bluetooth-tækinu.
Leitaðu að tækjum og veldu „WS LiteCom Pro III Headset".
Raddskilaboð staðfesta að búið sé að para, "Pairing
complete" (pörun lokið).
IS
117