ATHUGASEMD: Rafhlöður varða ekki endingartíma vörunnar.
11. HREINSUN OG VIÐHALD
Skoðaðu ástandið á rafhlöðum vörunnar. Skiptu um þær ef
vart verður við rafhlöðuleka eða -galla.
Notaðu klút vættan í sápu og heitu vatni til þess að hreinsa
ytri skálar, höfuðspöng og eyrnapúða.
ATHUGASEMD: EKKI setja heyrnarhlífarnar ofan í vatn.
Ef heyrnarhlífarnar blotna í rigningu eða af svita, skaltu snúa
eyrnahlífunum út, fjarlægja eyrnapúða og frauðfóður og láta
allt þorna áður en þær eru settar saman á ný. Eyrnapúðar og
frauðfóður getur skemmst við notkun og leita ætti reglubundið
að sprungum í þeim og öðrum skemmdum. 3M mælir með því
að skipt sé um frauðfóður og eyrnapúða að minnsta kosti
tvisvar á ári við reglubundna notkun til þess að tryggja
áreiðanlega hljóðdeyfingu, hreinlæti og þægindi. Skemmist
eyrnapúði, ber að skipta um hann.
Sjá VARAHLUTI OG FYLGIHLUTI.
11.1. AÐ FJARLÆGJA UM EYRNAPÚÐA OG
SKIPTA UM ÞÁ
(Mynd M:1 - M:3)
M:1 Settu fingur undir innri brún eyrnapúðans og kipptu
honum ákveðið beint út til þess að fjarlægja hann.
M:2 Fjarlægðu frauðfóður sem fyrir er og settu nýtt í staðinn.
M:3 Komdu annarri hlið eyrnapúðans fyrir í grópinni á
eyrnaskálinni og þrýstu svo á hinum megin þar til
eyrnapúðinn smellur á sinn stað.
11.2. AÐ SKIPTA UM FESTIPLÖTU ÚTBÚNAÐAR
(Mynd K:1 - K:2)
Það gæti þurft að skipta um festiplötu útbúnaðarins til þess að
festa hann rétt á hinar ýmsu tegundir útbúnaðarfestinga.
Finndu þá festiplötu sem mælt er með í töflu E. Heyrnartólin
eru afhent með áfastri P3E-útbúnaðarfestingu. Aðrar plötur
fást hjá seljanda. Nota þarf skrúfjárn til þess að skipta um
plötu útbúnaðarfestingar.
K:1 Losaðu skrúfuna sem heldur plötunni og fjarlægðu hana.
K:2 Festu viðeigandi plötu á þannig að platan fyrir vinstri (L)
og hægri (R) sé á réttri eyrnahlíf, eftir því sem við á, og
hertu svo skrúfuna.
11.3. AÐ SETJA Á HLÍFÐARLÍMBAND
HLJÓÐNEMA
(Mynd N:1 - N:5)
Notaðu HYM1000 hljóðnemahlíf til þess að vernda talnemann
gegn raka og óhreinindum.
Að koma hlífinni fyrir:
N:1 Notaðu skæri til að klippa 100 mm langan bút af
hljóðnemahlíf HYM1000. Fjarlægðu verndarrenninginn.
N:2 Settu hljóðnemann á enda límbandsins eins og sýnt er á
myndinni.
N:3 Brettu hljóðnemalímbandið og gættu þess að það þeki
hljóðnemann.
N:4 Þrýstu vel á svo hlífðarlímbandið lokist vel.
N:5 Hljóðneminn er nú tilbúinn til notkunar.
12. VARAHLUTIR OG FYLGIHLUTIR
ATHUGASEMD: Fylgihlutirnir í listanum hér að neðan eru
ekki ætlaðir fyrir eiginöruggar vörur. Nánari upplýsingar um
vottaða varahluti og fylgihluti fyrir eiginörugg tæki er að finna í
sjálfstæðum Öryggisleiðbeiningum sem fylgja neð umbúðum
vörunnar.
Vörunúmer
ACK081
Hleðslurafhlaða, 3,7 V.
Aðeins ætlað til notkunar með WS™
LiteCom Pro III ekki eiginöruggum
heyrnarhlífum.
ACK082
Hleðslurafhlaða, 3,7 V.
AL2AI/SP
USB-hleðslukapall til hleðslu á ACK081.
AL2AH
USB-hleðslukapall fyrir ACK082.
FR08
Aflgjafi með USB-tengi.
FL5602-50
Ytra PTT (ýta-og-tala) fyrir WS™
LiteCom Pro III heyrnartól, EX/IS.
FL6BR
Tengikapall með J11 tengi (gerð Nexus
TP-120) til að nota með PELTOR
millistykki og ytri talstöð.
HY100A
Clean - einnota hlífar.
Einnota hlíf á eyrnapúðana. 100 para
pakki.
HY83
Útskiptanleg hreinlætishlíf með
frauðfóðri og ásmelltum eyrnapúðum
fyrir báðar skálar.
HYM1000
Hljóðnemahlíf.
Raka- og vindhelt límband. Verndar
talnemann. Í pakkanum eru 4,5 metrar
sem duga til um 50 skipta.
M171/2
Vindhlíf fyrir MT73 talnema. Tvær í
pakka.
M60/2
Vindhlíf fyrir umhverfishljóðnema.
Í hverjum pakka er ein hlíf.
MT73/1
Dýnamískur talnemi.
MT90-02
Hálshljóðnemi.
MT7V/1
Dýnamískur talnemi með festingu fyrir
Versaflo M-300 vörulínuna.
13. GEYMSLA
• Geymdu vöruna á þurrum og hreinum stað fyrir og eftir
notkun.
• Geymdu vöruna alltaf í upprunalegum umbúðum, fjarri
hitagjöfum og þar sem hún verður ekki fyrir áhrifum af
sólarljósi, ryki eða kemískum efnum sem geta skaðað
hana.
• Hitastig við geymslu: -20°C (-4°F) til 40°C (104°F).
• Loftraki: <90%.
• Útgáfur fyrir höfuðspöng og hálsspöng:
Gættu þess að enginn þrýstingur sé á höfuðspöngina eða
hálsspöngina og að púðarnir þrýstist ekki saman.
IS
Lýsing
-
TM
119