3M™ PELTOR™ WS™ LITECOM PRO III
HEYRNARTÓL
MT73H7A4D10EU, MT73H7B4D10EU, MT73H7P3E4D10EU,
MT73H7A4D10EU GB, MT73H7B4D10EU GB,
MT73H7P3E4D10EU GB
MT73H7B4D10EU-50, MT73H7F4D10EU-50,
MT73H7P3E4D10EU-50
1.
INNGANGUR
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja PELTOR heyrnartól
sem samskiptalausnir!
1.1. ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum heyrnartólum er ætlað að veita starfsmönnum vernd
gegn hættulegum hávaða og háværum hljóðum um leið og þeir
geta átt fjarskipti með innbyggðu talstöðinni eða Bluetooth og
heyrt umhverfishljóð um umhverfishljóðnema. Gert er ráð fyrir
því að allir notendur lesi og skilji meðfylgjandi leiðbeiningar
notenda ásamt því að kunna að nota tækið.
1.2. ÚTBÚNAÐUR
Með orðinu útbúnaður er í þessu skjali átt við höfuðhlífar,
andlitshlífar og/eða búnað sem ekki veitir vernd.
2.
ÖRYGGI
2.1. MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu eftir
þeim áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar. Hafðu
samband við tæknideild 3M (samskiptaupplýsingar er að
finna á öftustu síðu).
2.2. EIGINÖRYGGI
3M™ PELTOR™ WS™ LiteCom Pro III heyrnartól,
MT73H7B4D10EU-50, MT73H7F4D10EU-50 og
MT73H7P3E4D10EU-50 hafa verið vottuð sem eiginörugg til
notkunar í mögulega sprengifimu umhverfi. Notandinn ber
ábyrgð á því að tryggja að eiginörugg 3M™ PELTOR™ WS™
LiteCom Pro III heyrnartól og fylgihlutir séu notaðir í viðeigandi
umhverfi eins og það er skilgreint í samþykktum
svæðaflokkunum og í samræmi við leiðbeiningar notanda. Sé
það ekki gert, getur það leitt til alvarlegra meiðsla eða dauða.
Nánari upplýsingar er að finna í sérstökum meðfylgjandi
öryggisleiðbeiningum.
Sé einhver ástæða til þess að draga öryggi tækisins eða
áreiðanleika þess í efa, ber að hætta notkun þess
umsvifalaust og fjarlægja það úr mögulega sprengifimu
umhverfi án tafar. Grípa skal til aðgerða til þess að koma í
veg fyrir að tækið verði óvart tekið í notkun á ný. Leitaðu til
tæknideildar 3M með þjónustu og viðgerðir.
!
VIÐVÖRUN
Dragðu úr áhættu í tengslum við sprengingu sem annars
gæti leitt til alvarlegra meiðsla eða dauða:
• Gakktu úr skugga um að 3M™ PELTOR™ WS™ LiteCom
Pro III heyrnartól, MT73H7B4D10EU-50,
MT73H7F4D10EU-50, MT73H7P3E4D10EU-50 og allir
eiginöruggir fylgihlutir séu aðeins notaðir á öryggisflokkuðum
svæðum í samræmi við áritaðar merkingar á búnaði.
• Tengdu aldrei rafræna íhluti eða tæki við heyrnartólin í
mögulega sprengifimu umhverfi.
• Tengdu heyrnartólin eingöngu við þá 3M™ PELTOR™
vara- og fylgihluti sem tilgreindir eru í leiðbeiningum notanda.
ÞAÐ GETUR DREGIÐ ÚR EIGINÖRYGGI TÆKISINS AÐ
SKIPTA ÚT ÍHLUTUM ÞESS.
• Notaðu eingöngu 3M™ PELTOR™ rafhlöðuna ACK082,
3M™ PELTOR™ hleðslusnúru AL2AH og 3M™ PELTOR™
aflgjafa FR08.
• Það má aldrei skipta um ACK082 rafhlöðu eða hlaða hana í
mögulega sprengifimu umhverfi.
• Ekki nota heyrnartólin eða fylgihluti þeirra, hafi þau orðið fyrir
skemmdum eða bilun af einhverju tagi.
• Farðu eingöngu með tækið í þjónustuskoðun eða viðgerðir
hjá viðurkenndum 3M™ PELTOR™ þjónustumiðstöðvum.
!
VIÐVÖRUN
• Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða
og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar rangt
eða notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í
hættulegum hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar eða
-taps. Ræddu við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar
notenda eða hafðu samband við tæknideild 3M til að kynna
þér rétta notkun. Ef þér finnst eins og þú sért með bómull í
eyrunum eða heyrir són eða suð í eða eftir hávaða
(byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra ástæðu
til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu yfirgefa
hávaðasama umhverfið umsvifalaust og hafa samband við
lækni og/eða verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það leitt til
alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
a. Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð, getur það
dregið úr athygli á umhverfinu og getunni til þess að heyra
viðvörunarmerki.
Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt stillt og mögulegt er
að sætta sig við.
b. Þessar heyrnarhlífar gefa kost á flutningi hljómlistar til
afþreyingar. Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð,
getur það dregið úr athygli þinni gagnvart umhverfinu og
getunni til þess að heyra viðvörunarmerki á tilteknum
vinnustað. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt stillt og
mögulegt er að sætta sig við.
c. Dragðu úr þeirri hættu sem getur fylgt sprengingu með því
að nota ekki ekki eiginöruggan búnað eða fylgihluti í
mögulega sprengifimu umhverfi.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það dregið
úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt til
heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að hver og einn notandi felli
allar heyrnarhlífar vandlega að sér. Rannsóknir benda til
þess að stundum sé hljóðeinangrun minni en
hljóðdeyfingargildi á umbúðum gefa til kynna vegna frávika
við að fella hlífarnar að hverjum notanda fyrir sig og færni
viðkomandi og hvatningu til þess. Kynntu þér viðeigandi
reglur og leiðbeiningar á merkimiða um aðlögun gilda. Séu
viðeigandi reglur ekki fyrir hendi er mælt með því að lækka
suðhlutfall/föll til merkis til að geta betur metið dæmigerða
vernd.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim komið
fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum komið fyrir
IS
113