Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M PELTOR HT 79-Serie Bedienungsanleitung Seite 67

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 22
3M™ PELTOR™ Headset
MT7H79* Series
HT*79* Series
TwinCup™ MT7*H540*
INNGANGUR
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja 3M™ PELTOR™
heyrnartólin til verndar heyrninni og samskipta. Velkomin að
næstu kynslóð hlífðarbúnaðar!
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum öryggisupp-
lýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu eftir þeim áður
en þú tekur þessi fjarskiptaheyrnartól í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar.
ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum 3M™ PELTOR™ heyrnartólum er ætlað að veita
vernd gegn hávaða sem fer yfir hættumörk um leið og
notandinn getur hlutstað á tengda hljóðgjafa. Gert er ráð fyrir
því að allir notendur lesi og skilji meðfylgjandi leiðbeiningar
notenda ásamt því að kunna að nota tækið.
!
VIÐVÖRUN
Dragðu úr áhættu í tengslum við sprengingu sem
annars gæti leitt til alvarlegra meiðsla eða dauða:
• Gakktu úr skugga um að 3M™ PELTOR™ heyrnartólin
og allir eiginöruggir fylgihlutir séu eingöngu notaðir og
geymdir á öryggisflokkuðum svæðum í samræmi við
áritaðar merkingar tækisins.
• Tengdu aldrei rafræna íhluti eða tæki við heyrnartólin í
mögulega sprengifimu umhverfi.
• Tengdu heyrnartólin eingöngu við þá 3M™ PELTOR™
vara- og fylgihluti sem tilgreindir eru í leiðbeiningum
notanda. ÞAÐ GETUR DREGIÐ ÚR EIGINÖRYGGI
TÆKISINS AÐ SKIPTA ÚT ÍHLUTUM ÞESS.
• Ekki nota heyrnartólin eða fylgihluti þeirra, hafi þau orðið
fyrir skemmdum eða bilun af einhverju tagi.
• Farðu eingöngu með tækið í þjónustuskoðun eða viðgerð
hjá viðurkenndum 3M™ PELTOR™ þjónustumiðstöðvum.
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða
og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar
rangt eða notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í
hættulegum hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar
eða -taps. Ræddu við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar
notenda eða hafðu samband við tæknideild 3M til þess að
kynna þér rétta notkun. Ef þér finnst eins og þú sért með
bómull í eyrunum eða heyrir són eða suð í eða eftir hávaða
(byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra ástæðu
til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu yfirgefa
hávaðasama umhverfið umsvifalaust og hafa samband við
lækni og/eða verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það leitt
til alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
a. Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð, getur það
dregið úr athygli á umhverfinu og getunni til þess að heyra
viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt stillt
og mögulegt er að sætta sig við. Erfiðara getur reynst að
heyra viðvörunarmerki á vinnustaðnum á meðan hlustað er
á afþreyingu.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
dregið úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt til
heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að kanna hvort heyrnarhlífar
passa. Rannsóknir benda til þess að hjá mörgum notendum
sé hljóðeinangrun minni en hljóðdeyfingartöflur á umbúðum
benda til vegna frávika við að fella hlífarnar að hverjum
notanda fyrir sig og færni hans og hvatningu til þess.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim
komið fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum komið
fyrir á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans til þess
að deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi upplýsingar um
rétta notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða forðastu
hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum
(t.d. öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að
velja sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess
að þau hafi sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana.
Fjarlægðu allt annað (t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól,
hreinlætishlífar o.s.frv.) sem gæti dregið úr einangrunargildi
heyrnarhlífapúðanna og verndargildi hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspöng eða hálsspöng
og gættu þess að hún sé nógu öflug til þess að halda
heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f. Heyrnarhlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir
með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu millibili í
leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu heyrnarhlífapúðarnir
notaðir reglulega, ber að skipta um þá og frauðhringina að
minnsta kosti tvisvar á ári til þess að viðhalda fullnægjandi
vernd, hreinlæti og þægindum.
g. Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur farið
fram yfir dagleg hávaðamörk. Hafðu hljóðið eins lágt stillt og
mögulegt er að sætta sig við.
h. Sé ekki farið eftir ofangreindum kröfum, skerðir það
verndareiginleika heyrnarhlífanna verulega.
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika eyrnahlífanna.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru þessari.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Þessar heyrnarhlífar eru í stærðinni stórar. Eyrnahlífar
sem uppfylla kröfur EN 352-1 eru í „millistærð" eða „lítilli
stærð" eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í „millistærð" henta
meirihluta notenda. Heyrnarhlífar í „lítilli stærð" eða „stórri
stærð" eru hannaðar fyrir notendur sem ekki geta notað
millistærðina.
61
IS

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Mt7h79-serieMt7 h540-serie

Inhaltsverzeichnis