Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Flutningur Og Geymsla; Viðmiðunarreglur Um Flutninga; Geymsluleiðbeiningar; Vörulýsing - Lowara SV-B Montage, Betrieb Und Wartung

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 29
is - Þýðing á upprunalegum leiðbeiningum
UPPFYLLIR VIÐEIGANDI GREINAR EFTIRFARANDI EVRÓPSK-
RA TILSKIPANA:
• VÉLBÚNAÐUR 2006/42/EC (TÆKNILEG GÖGN ERU FÁANLEG
FRÁ LOWARA SRL UNIPERSONALE).
OG EFTIRFARANDI TÆKNISTAÐLA:
• EN 809
MONTECCHIO MAGGIORE, 16.04.2012
AMEDEO VALENTE
(FORSTJÓRI VERKFRÆÐIDEILDAR OG
DEILDAR FYRIR RANNSÓKNIR OG ÞRÓ-
UN)
rev.01
Lowara er vörumerki Lowara srl Unipersonale, dótturfélags Xylem Inc.

2 Flutningur og geymsla

2.1 Farðu yfir pöntunina
1.
Kannaðu ytra byrði pakkans í leit að merkjum um skemmdir.
2.
Hafðu samband við dreifingaraðila okkar innan átta daga frá móttöku
ef sýnilegar skemmdir eru á vörunni.
Fjarlægðu einingu úr pakkningunum
1.
Fylgdu viðkomandi skrefum:
Ef einingunni er pakkað í pappa, fjarlægðu heftin og opnaðu
pappann.
Ef einingunni er pakkað í viðarkassa, skal losa lokið á meðan gætt
er að nöglum og ólum.
2.
Fjarlægðu skrúfur eða ólar sem notaðar eru til að festa viðargrunninn.
Skoðaðu eininguna
1.
Fjarlægðu umbúðirnar.
Fargaðu öllum umbúðum í samræmi við reglugerðir á staðnum.
2.
Kannaðu vöruna til að sjá hvort einhverjar einingar hafi skaddast eða
vanti.
3.
Ef við á, skal losa vöruna með því að fjarlægja skrúfur, bolta og ólar.
Öryggis skal gætt við meðhöndlum nagla og óla.
4.
Hafðu samband við sölu- og þjónustudeild ef eitthvað virkar ekki sem
skyldi.
2.2 Viðmiðunarreglur um flutninga
Varúðarráðstafanir
AÐVÖRUN:
• Fylgið slysavarnarreglum sem eru í gildi.
• Hætta á að kremjast. Samstæðan og íhlutir geta verið þungir.
Notið réttar lyftiaðferðir og klæðist ávallt skóm með stáltá.
Athugið brúttóþyngd sem sýnd er utan á umbúðum til að geta valið réttan
lyftibúnað.
Staðsetning og festingar
Flytja má samstæðuna annaðhvort lárétt eða lóðrétt. Gangið úr skugga um
að falliðl sé tryggilega fest meðan hún er flutt og geti hvorki skriðið né oltið.
AÐVÖRUN:
Ekki skal nota augabolta sem skrúfaður er á vélina til að lyfta
með allri dælusamstæðunni.
Varðandi frekari upplýsingar um hvernig eigi að koma tryggilega böndum á
dæluna, sjá Mynd 4.
Samstæða án vélar
Ef samstæðan er ekki afgreidd með vél, er þegar búið að koma fyrir gaffal-
laga skinnu á milli breytistykkis og tengis. Millileggið er sett á milli til að
halda dæluhjólunum í réttri öxulstöðu. Á meðan á flutningi stendur er öxlin-
um líka haldið í stöðu með einangrunarplasti og plastólum til að koma í veg
fyrir skemmdir.
90
Boltar og rær til að festa vélina fylgja ekki. Varðandi frekari upplýsingar um
hvernig eigi að tengja vélina, sjá Mynd 26.
AÐVÖRUN:
Dælu og vél, sem keypt eru sitt í hvoru lagi og síðan tengd sam-
an, er litið á sem nýja vél undir Vélatilskipuninni 2006/42/EC.
Sá sem tengir saman samstæðuna er ábyrgur fyrir öllum öryggisa-
triðum varðandi hana.
2.3 Geymsluleiðbeiningar
Geymslustaður
Vöruna skal geyma á lokuðum og þurrum stað sem er laus við mikinn hita,
óhreinindi og titring.
ATHUGA:
• Verjið vöruna fyrir raka, hitagjöfum og áverkum.
• Setjið ekki mikinn þunga ofan á pakkaða vöruna.
Umhverfishiti
Vöruna skal geyma við umhverfishitastig frá -5°C til +40°C (23°F til 104°F).
3 Vörulýsing
3.1 Gerð dælu
Þetta er lóðrétt, fjölþrepa dæla sem ekki præmar sig og sem hægt er að tengja
við staðlaðar rafvélar.
Hægt er að nota dæluna til að dæla heitu vatni með eftirfarandi aðferðum:
• SV-H útgáfan er með sérstaka skoltækni til að koma vatni í til þess gert
ásþétti.
• SV-B útgáfan er með varmaskiptishólf til að halda ásþéttinu við 100°C.
Raðir
Efni
SV-H
AISI 316, AISI 304 eða steypujárn
SV-B
AISI 316
Báðar útgáfurnar eru útbúnar styrktum grindum og hafa verið bættar vökva-
fræðilega.
Hægt er að afgreiða dælusamstæðuna (dælu og rafvél) eða dæluna sér.
ATHUGA:
Ef keypt hefur verið dæla án vélar, skal tryggja að vélin henti til að tengjast
dælunni.
Pakkdós
VARÚÐ:
Verið ávallt með hlífðarhanska þegar fengist er við dælur og vél.
Þegar dælt er heitum vökvum geta dælan og hlutar hennar farið
upp fyrir 40°C (104°F).
Raðir
Helstu dælueiginleikar
1, 3, 5
Nafnþvermál 12 mm (0,47 tommur), jafnvægisstillt, snýst
réttsælis, K útgáfa (EN 12756)
10, 15, 22
Nafnþvermál 16 mm (0,63 tommur), jafnvægisstillt, snýst
réttsælis, K útgáfa (EN 12756)
Jafnvægisstillt við vélarafl ≥ 5 kW
33, 46, 66, 92,
Nafnþvermál 22 mm (0,86 in.), jafnvægisstillt, snýst til hæg-
125
ri, K gerð (EN 12756)
Notkunarsvið
Dælan er gerð fyrir:
• Fæðivatn í katla
• Notkun við háan hita þar sem inntaksaðstæður geta verið slæmar
• Notkun við hreinsun og þvott
e-SV - Íslenska

Werbung

Inhaltsverzeichnis

Fehlerbehebung

loading

Diese Anleitung auch für:

Sv-h

Inhaltsverzeichnis