Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

schellenberg TWIN 300 Handbuch Seite 271

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für TWIN 300:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 1
A SKÝRINGAR Á ROFUM FYRIR STILLINGU
Til að tryggt sé að stillingar virki rétt verður að velja allar stillingar áður en búnaðurinn er tekinn í notkun og áður en
stýribúnaðurinn er tengdur við rafmagn.
SW1:
1. Slow: Valfrjáls stilling mjúkræsingar og mjúkstöðvunar
ON: Við opnun og lokun fara mótorarnir í endastöðu með jöfnum hraða.
OFF: Við opnun og lokun draga mótorarnir úr hraða áður en komið er í endastöðu (það hlífir drifinu).
2.-3. Over_C1 + Over_C2: Valfrjáls átaksstilling
Átakið sem stillt er á í verksmiðju (gildi 1) tryggir snurðulausa virkni með venjulegum hliðum (sem nota má með þessum
opnara). Í flestum tilvikum ætti verksmiðjustillingin að gefa nægan kraft til að opna og loka hliðinu að fullu. Í verksmiðjustillin-
gu samræmist drifið þeim kröfum sem gerðar eru til vinnsluafls og þar með mesta leyfilega afls í lögbundnum eða gildandi
stöðlum (til dæmis EN 12455, EN 12453 og EN 60335-2-95). Hægt er að auka afl drifsins eftir þörfum samkvæmt leiðbeinin-
gunum hér á eftir (gildi 2-4).
ATHUGIÐ
Þetta þarf til dæmis að gera þegar endastöðu fyrir opnun eða lokun hliðsins er ekki náð í verksmiðjustillingu (gildi 1). Skal þá
auka stillinguna fyrir hámarksafl í þrepum þar til endastöðu er náð.
Vetrarstilling:
Við mælum með því að stillt sé á meira afl yfir vetrarmánuðina ef endastöðu fyrir opnun eða lokun hliðsins er ekki náð í
verksmiðjustillingu (gildi 1). Skal þá auka stillinguna fyrir hámarksafl í þrepum þar til endastöðu er náð.
VARÚÐ
Ef aflið er stillt á hærra gildi en verksmiðjustillingu (gildi 1) getur það valdið mjög alvarlegum og jafnvel lífshættulegum sly-
sum á fólki sem og eignatjóni!
Þegar aflið er stillt á hærra gildi en verksmiðjustillingu (gildi 1) er notað meira afl við að opna og loka hliðinu. Ef stillt er á
hærra gildi en verksmiðjustillingu fer aflið yfir leyfilega hámarksaflið sem tilgreint er hér að ofan og getur það valdið mjög
alvarlegum og jafnvel lífshættulegum slysum á fólki sem og eignatjóni, til dæmis ef fólk eða hlutir klemmast á milli hjá hliðinu.
Gætið því að eftirfarandi:
Ef stillt er af verksmiðjustillingu (gildi 1) á annað gildi (gildi 2-4) verður aðili með sérþekkingu á þessu sviði að kanna, prófa
og skjalfesta að aflstillingin sé í samræmi við kröfur lögbundinna eða gildandi staðla til að fyrirbyggja hættu á slysum og tjóni.
Frekari upplýsingar á bls 269.
4.-6. Auto_C1 - Auto_C3: Valfrjáls sjálfvirk lokun
Þegar hliðið er komið í endastöðu fyrir opnun lokast það sjálfkrafa að tilgreindum tíma liðnum. Af öryggisástæðum má ekki
gera sjálfvirka lokun virka nema að frekari öryggisbúnaður sé notaður í kerfinu, t.d. ljóshlið.
Frekari upplýsingar á bls 270.
7. P_Mode: Valfrjáls virkni fyrir fótgangandi
ON: Stutt er á hnapp B á fjarstýringunni til að opna aðeins annan vænginn á hliðinu (45° opnunarhorn).
OFF: Slökkt er á virkni fyrir fótgangandi. Drifið opnar og lokar hliðinu alveg.
8. Light: Valfrjáls stilling fyrir merkjaljós
Hægt er að tengja 24 V merkjaljós við kerfið.
ON: Merkjaljósið blikkar í þrjár sekúndur áður en hliðið fer af stað og á meðan verið er að opna og loka hliðinu.
OFF: Merkjaljósið blikkar á meðan verið er að opna og loka hliðinu.
271

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis