Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

KitchenAid ARTISAN 5KFPM776 Bedienungsanleitung Und Rezepte Seite 334

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für ARTISAN 5KFPM776:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 89
Spergilkálsúpa með Cheddar-osti
230 gr sterkur Cheddar-
ostur, kældur
1 lítill laukur, skorinn í
helminga langsum
1 sellerístöngull, skorinn
í 6 cm bita
2 matskeiðar smjör eða
smjörlíki
1 stórt sperkilkálhöfuð
(u.þ.b. 450 gr)
700 ml (3 bollar)
kjúklingasoð
475 ml (2 bollar) mjólk
30 gr (¼ bolli) hveiti
2 teskeiðar Dijon sinnep
1 teskeið karrýduft,
ef vill
teskeið sterk
1
8
sílípiparsósa
Setjið 4 mm rifdiskinn í vinnsluskálina. Setjið ostinn
út í. Rífið. Leggið til hliðar.
Skiptið rifdisknum út fyrir 2 mm sneiðdiskinn í
vinnsluskálinni. Setjið lauk og sellerí út í. Sneiðið. Bræðið
smjör í potti við meðalhita. Færið laukinn og selleríið yfir
í pottinn. Svissið í 2 til 3 mínútur þar til grænmetið er
stökkt og hrærið vel.
Skerið stönglana af sperkilkálinu og hreinsið þykkasta
hýðið af. Skerið blómin í litla bita. Látið 2 mm
sneiðdiskinn í vinnsluskálina. Setjið spergilkálstilkana út í.
Sneiðið. Færið yfir í pottinn.
Bætið spergilkálblómunum og soðinu í pottinn. Hitið að
suðu yfir meðalhita. Lækkið hitann, lokið pottinum að
hluta og sjóðið í 6 til 10 mínútur, eða þar til spergilkálið
er mjúkt, hrærið annað slagið í súpunni. Takið af hitanum.
Takið sneiðdiskinn úr vinnsluskálinni og setjið fjölnota
blaðið í staðinn. Færið grænmetið úr pottinum yfir í
vinnsluskálina með gataspaða. Bætið við 180 ml (¾ bolla)
af mjólk. Vinnið þar til fínhakkað, 5 til 8 sekúndur. Setjið
til hliðar.
Þeytið vel saman í annarri skál hveitið og afganginn af
mjólkinni (300 ml/1 ¼ bolli). Bætið við sinnepi, karrýdufti,
ef vill, og sterkri sílípiparsósu. Hrærið vel saman.
Hellið mjólkurblöndunni út í soðið í pottinum. Hrærið
vel í og sjóðið við meðalhita þar til súpan fer að þykkna.
Lækkið hitann. Bætið við öllu nema 30 gr
(¼ bolla) af rifnum osti, hrærið þar til osturinn er bráðinn.
Bætið spergilkálblöndunni í pottinn. Hitið vel. Skreytið
með afgangnum af ostinum (30 gr/¼ bolli).
Magn: 7 skammtar (240 ml/1 bolli í skammti).
Orka í hverjum skammti: um 250 hitaeiningar.
23

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Artisan 5kfpm771Artisan 5kfpm775

Inhaltsverzeichnis