Herunterladen Diese Seite drucken

Bosch Component Connector Originalbetriebsanleitung Seite 26

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 3
Íslenska – 2
Atr. Tenging
Litur
2.2 HPP (High Power Port)
gulur
fyrir viðbótareiginleika
A) Útgangsstraumur fyrir HPP: 1 A langtíma málstraumur, 3,5 A
hámarksstraumur mögulegur í að hámarki 4 sek.
Notkun
Þegar búið er að setja Component Connector upp þarf ekki
að taka búnaðinn sérstaklega í notkun.
Þar sem enginn aflrofi er á Component Connector er
búnaðurinn alltaf virkur þegar kveikt er á rafhjólinu. Ekki þarf
heldur að kveikja sérstaklega á tengdum búnaði á borð við
Bosch eBike ABS eða eShift-búnaði. Þegar um annan
rafbúnað frá þriðja aðila er að ræða getur þurft að kveikja/
slökkva sérstaklega á honum með aflrofa á viðkomandi
búnaði.
Viðhald og þjónusta
Viðhald og þrif
Component Connector þarfnast ekki viðhalds. Ef
búnaðurinn verður fyrir skemmdum eða bilar skal snúa sér
beint til viðurkennds söluaðila. Ef búnaður sem tengdur er
við Component Connector virkar ekki jafnvel þótt kveikt sé
á honum skal snúa sér beint til söluaðila reiðhjólsins.
Flutningur
Við flutning á rafhjólinu (t.d. í kerru aftan í bíl, lest eða
flugvél) mælum við með því að slökkt sé sérstaklega á
hverjum búnaði frá þriðja aðila fyrir sig. Þetta á ekki við um
tengt Bosch eBike ABS-kerfi eða tengdan eShift-búnað.
Notendaþjónusta og ráðleggingar um notkun
Ef óskað er upplýsinga um rafhjólið og hluta þess skal snúa
sér til viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Finna má samskiptaupplýsingar fyrir viðurkennda söluaðila
reiðhjóla á vefsíðunni www.bosch-ebike.com.
Nánari upplýsingar um hluta rafhjólsins og
virkni þeirra er að finna í Bosch eBike Help
Center.
Förgun og framleiðsluefni
Nálgast má upplýsingar um framleiðsluefni á eftirfarandi
vefslóð: www.bosch-ebike.com/en/material-compliance.
Ekki má fleygja rafhjólum og íhlutum þeirra með venjulegu
heimilissorpi!
Hægt er að skila tækinu til söluaðila ef hann býður upp á slíkt
eða ber lagaleg skylda til þess. Fara skal eftir gildandi lögum
og reglum hvað þetta varðar.
Skila skal drifeiningunni, hjólatölvunni ásamt
stjórnbúnaðinum, rafhlöðu rafhjólsins,
hraðaskynjaranum, aukabúnaði og umbúðum
til endurvinnslu með umhverfisvænum hætti.
0 275 007 3CC | (11.02.2024)
Notandi skal sjálfur ganga úr skugga um að
Spenna
persónuupplýsingum hafi verið eytt úr tækinu.
A)
12 V
Ef hægt er að taka rafhlöður úr raftækinu án þess að
eyðileggja þær skal taka þær úr og skila þeim til sérstakrar
söfnunarstöðvar fyrir rafhlöður áður en tækinu er fargað.
Með því að flokka raftækin sérstaklega er stuðlað að því að
hægt sé að meðhöndla þau og endurnýta hráefni með
viðeigandi hætti og vernda þannig heilsu manna og
umhverfið.
Breytingar áskildar.
Flokka verður úr sér gengin raftæki (samkvæmt
Evróputilskipun 2012/19/EU) og bilaðar eða úr
sér gengnar rafhlöður/hleðslurafhlöður
(samkvæmt Evróputilskipun 2006/66/EC)
sérstaklega og skila þeim til endurvinnslu með
umhverfisvænum hætti.
Bosch eBike Systems

Werbung

loading

Diese Anleitung auch für:

Bcc3111