ÍSLENSKA
•
Ónóg loftræsting bak við tækið eykur orkunotkun
og dregur úr kælinýtni.
•
Umhverfishiti, opnunartíðni sem og staðsetning
heimilistækisins geta haft áhrif á hitastig inni í
heimilistækinu. Hitastillingin ætti að miðast við
þessa þætti.
•
Látið heit matvæli og drykki kólna áður en þau eru
sett í heimilistækið.
•
Ekki láta matvæli hindra viftuna (ef hún er til
staðar).
•
Þegar matvæli eru sett í eða tekin úr ísskápnum
skal tryggja að dyrnar séu vel lokaðar.
•
Lágmarkið opnun á hólfum.
•
Við þíðingu matvæla skal láta þau í kæliskápinn.
Lága hitastigið á frosnum matvælum kælir niður
matvælin í ísskápnum.
Þrif og viðhald
Almenn ráð
•
Þrífið heimilistækið reglulega með klút og
volgri vatnslausn með hlutlausu hreinsiefni sem
sérstaklega er ætlað innra borði kælisins. Forðist
hreinsiefni og verkfæri sem rispa.
•
Til að tryggja að affrystivatnið renni vel frá skal
nota drensíuna reglulega úr fittingspokanum til
að þrífa drenúttakið fyrir affrystivatnið. Þetta úttak
er staðsett aftan á ísskápnum (sjá mynd 1). Látið
ávallt drensíuna vera í drenúttakinu til að koma í
veg fyrir að það stíflist af óhreinindum.
•
Áður en heimilistækið er þjónustað eða þrifið skal
taka það úr sambandi eða aftengja rafmagni.
Afþíðing í kælihólfi
Uppgufun af matnum inni í ísskápnum eða blöndun
loftraka í kælihólfið við daglega notkun geta hvort
tveggja leitt til ísmyndunar í kælihólfinu. Í slíkum
tilfellum getur auðveldað sjálfvirka affrystingu að
hækka hitastillingu ísskápsins handvirkt.
Ef það myndast vatnsdropar á bakvegg kælihólfsins
er það til merkis um að sjálfvirk afþíðing sé að hefjast.
Afþíðingarvatnið fer sjálfkrafa í drenopið og síðan í
ílát þar sem það gufar upp.
VARÚÐ!
Ekki má láta fylgihluti kælis í
uppþvottavél.
Mynd 1
•
Fyrirkomulag á hillum í kæliskáp hefur engin áhrif
á orkunýtni. Matvæli skal setja þannig á hillur
að það tryggi næga loftun (matvæli eiga ekki að
snertast og halda skal fjarlægð á milli matvæla og
bakhliðar).
•
Skipta skal sem fyrst um skemmdar þéttingar.
Geymsla vínflösku eftir að hún hefur verið opnuð
•
Skiptu út korktappanum eða notaðu víntappa,
láttu síðan flöskuna lóðrétt í ísskápinn. Einnig má
nota lofttæmistappasett sem fjarlægir súrefni
úr flöskunni til að varðveita bragð og viðhalda
ferskleika vínsins.
•
Vínið ætti að endast 2 til 5 daga eftir tegundum. Ef
vín er skilið eftir of lengi í kælinum getur það orðið
bragðdauft, brúnlitað eða bragðast og lyktað eins
og vínedik.
Hreinsið hurðaþéttingar
•
Hægt er að fjarlægja
hurðaþéttingu við þrif.
•
Þurrkaðu eða þvoðu
hurðaþéttinguna með hreinu
vatni og þurrkaðu vandlega með
klút. Settu síðan þéttinguna rétt í
aftur.
•
Gættu þess að hurðaþéttingin sé
laus við olíu og feiti.
•
Ekki brjóta upp á þéttinguna.
Ef heimilistækið er ekki í notkun langtímum
saman
1. Slökkvið á heimilistækinu.
2. Takið heimilistækið úr sambandi.
3. Fjarlægið öll matvæli.
4. Afþíðið og þrífið heimilistækið.
5. Skiljið hólfin eftir opin rétt nægilega mikið til að
loft nái að hringrása í hólfunum. Þetta kemur í veg
fyrir að myndist mygla og óþægileg lykt.
Ef rafmagnið fer af
•
Taktu eftir hvenær rafmagnið fer og kemur aftur á.
Það hjálpar þér að rekja hve lengi ísskápurinn var
rafmagnslaus.
•
Halda skal heimilistækinu lokuðu. Þannig haldast
matvælin köld sem lengst.
Skipt um ljós
Heimilistækið er búið LED-innilýsingu.
Einungis viðurkenndur tæknimaður má skipta
um ljósgjafann. Hafið samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð. Til að flýta fyrir þjónustu
skal ávallt skoða heildarlista yfir viðurkenndar
þjónustumiðstöðvar sem finna má aftast í
handbókinni og hringja í uppgefin símanúmer.
329