Herunterladen Diese Seite drucken

IKEA FORSNAS Bedienungsanleitung Seite 325

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für FORSNAS:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 16
ÍSLENSKA
VIÐVÖRUN:
Ekki setja mörg fjöltengi
eða spennubreyta fyrir aftan tækið.
• Ef hurðin er opin í langan tíma getur það
valdið verulegri hitastigshækkun í hólfum
heimilistækisins.
• Hreinsið reglulega yfirborð sem geta
komist í snertingu við mat og aðgengilegt
frárennsliskerfi.
• Hreinsið vatnsgeymi ef þeir hafa ekki
verið notaðir í 48 klukkustundir; skolaðu
vatnskerfið sem er tengt vatnsveitu ef
vatn hefur ekki verið losað í 5 daga.
• Geymið hrátt kjöt og fisk í viðeigandi
ílátum í kæli, svo að það komist ekki í
snertingu við eða dreypi á annan mat.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
Tvo eða fleiri þarf til að handleika og setja upp
heimilistækið.
Framleiðandi eða viðurkenndur tæknimaður
skulu sjá um uppsetningu og viðhald, m.a. skipti á
rafsnúru, í samræmi við fyrirmæli framleiðanda og
gildandi reglugerðir um öryggismál. Til að forðast
hættu skal ekki gera við eða skipta um varahlut í
heimilistækinu, þ.m.t. rafsnúru, nema það komi
sérstaklega fram í notendahandbók.
Fjarlægið allar umbúðir.
Ekki setja upp né nota skemmt heimilistæki.
Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu sem fylgja
með heimilistækinu.
Alltaf skal sýna aðgát þegar heimilistækið er
fært vegna þess að það er þungt. Notaðu alltaf
hlífðarhanska og lokaðan skóbúnað.
Gætið þess að skemma ekki gólf (t.d. parket) þegar
heimilistækið er flutt til.
Gætið þess að heimilistækið sé ekki nálægt
hitagjafa.
Setjið upp heimilistækið og réttið af á gólfi sem
er nógu sterkt til að bera það á stað sem hentar
stærð og notkun.
Tryggið gott loftstreymi kringum heimilistækið.
Við fyrstu uppsetningu og eftir að búið er að
snúa við hurðinni skal bíða í að minnsta kosti
4 klukkustundir áður en heimilistækið er tengt við
rafmagn. Þetta er til að láta olíuna streyma til baka
í þjöppuna.
Áður en þú framkvæmir einhverjar aðgerðir á
heimilistækinu (t.d. að snúa við hurðinni) skaltu
taka tækið úr sambandi.
Ekki má setja heimilistækið upp þar sem sól skín
beint á það.
Ekki setja upp heimilistækið á of rökum eða
köldum svæðum, svo sem í vínkjöllurum.
• Ef kæliskápurinn er tómur í langan tíma,
slökktu þá á honum, affrystu, hreinsaðu,
þurrkaðu og skildu hurðina eftir opna
til að koma í veg fyrir að mygla myndist
innan í tækinu.
• Þetta kælitæki hentar ekki til að frysta
matvæli.
• Tveggja stjörnu hólf fyrir frosinn mat eru
hentug til að geyma forfrystan mat, geyma
eða búa til ís og búa til ísmola.
• Einnar, tveggja og þriggja stjörnu hólf
henta ekki til frystingar á ferskum mat.
VIÐVÖRUN:
Til að forðast hættu vegna
óstöðugleika tækisins verður að festa það
í samræmi við leiðbeiningarnar.
Setjið upp heimilistækið á stöðum þar sem
umhverfishitastig samsvarar loftslagsflokki sem er
gefinn til kynna á merkiplötu heimilistækisins. Það
tryggir að heimilistækið vinni rétt. Loftslagsflokkar
eru skýrðir þannig:
-
„SN" táknar að þessi kæliskápur er ætlaður til
notkunar við umhverfishitastig frá 10 °C til 32 °C.
-
„N" táknar að þetta kælitæki sé ætlað til notkunar
við umhverfishitastig frá 16 °C til 32 °C.
-
„ST" táknar að þetta kælitæki sé ætlað til notkunar
við umhverfishitastig frá 16 °C til 38 °C.
-
„T" táknar að þetta kælitæki sé ætlað til notkunar
við umhverfishitastig frá 16 °C til 43 °C.
Rafmagnstenging
VIÐVÖRUN!
Eldhætta og hætta á raflosti.
VIÐVÖRUN!
Þegar tækið er staðsett skal
ganga úr skugga um að snúran sé ekki föst eða
skemmd.
VIÐVÖRUN!
Ekki nota fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
Heimilistækið verður að vera jarðtengt.
Gakktu úr skugga um að færibreyturnar á
merkiplötunni séu samhæfar við rafmagnsflokkun
aðalæðar aflgjafa.
Notið ávallt rétt uppsetta innstungu sem slær ekki
út.
Gætið þess vel að skemma ekki rafmagnsíhluti
(t.d. rafklóna, rafsnúruna eða þjöppuna). Hafðu
samband við viðurkennda þjónustumiðstöð eða
rafvirkja til þess að skipta um rafmagnsíhluti.
Rafmagnssnúran þarf að vera fyrir neðan
rafmagnsklóna.
325

Werbung

loading