9 Dragið hleðsluklóna úr hleðslutenglinum
á vegghleðslustöðinni og gangið frá
hleðslusnúrunni: Hleðslulúgan lokast
sjálfkrafa.
10 Vegghleðslustöðin er tilbúin til notkunar og
bíður næstu hleðslu (framsetning: 1 lota).
Villur og bilanir lagfærðar
Komið geta upp villur og bilanir við notkun vegghleðslustöðvarinnar.
Lýsing
Bíllinn er tengdur við vegghleðslustöðina með
hleðslusnúrunni, en stöðuvísirinn leiftrar samt áfram
í grænum lit: Bíllinn greinist ekki (framsetning:
1 lota).
Orsök og tillaga að úrlausn
Hleðslusnúrunni hefur ekki verið stungið rétt í samband.
Takið hleðslusnúruna úr sambandi við hleðslutengið á bílnum og takið hleðsluklóna úr hleðslutenglinum
x
á vegghleðslustöðinni. Að því loknu skal fyrst stinga hleðslusnúrunni aftur í samband við bílinn og stinga
hleðsluklónni síðan í samband við vegghleðslustöðina.
Skoðið hleðslusnúruna og skiptið um hana ef þess þarf.
x
Lýsing
Stöðuvísirinn leiftrar í rauðum lit (framsetning: 1 lota).
Orsök og tillaga að úrlausn
Vegghleðslustöðin greindi villu eða bilun sem gerir að verkum að ekki er hægt að hlaða eða hleðslan er stöðvuð.
Stöðuvísirinn leiftrar í rauðum lit þar til búið er að lagfæra villuna.
Takið hleðslusnúruna úr sambandi við hleðslutengið á bílnum og takið hleðsluklóna úr hleðslutenglinum
x
á vegghleðslustöðinni. Að því loknu skal fyrst stinga hleðslusnúrunni aftur í samband við bílinn og stinga
hleðsluklónni síðan í samband við vegghleðslustöðina.
Ef villan kemur aftur upp skal taka hleðslusnúruna úr sambandi við bílinn og vegghleðslustöðina. Takið
x
lúguna fyrir lekastraumsrofann á vegghleðslustöðinni úr lás, opnið hana, sláið út með lekastraumsrofanum
(staða 0), sláið aftur inn (staða I) og lokið síðan og læsið lúgunni fyrir lekastraumsrofann aftur (sjá einnig
„Wallbox eM4 Single tekin úr notkun" á bls. 170). Að því loknu skal stinga hleðslusnúrunni aftur í
samband við bílinn og síðan við vegghleðslustöðina.
168 |
Villur og bilanir lagfærðar