Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M STIHL G22 Bedienungsanleitung Seite 205

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für STIHL G22:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

HREINSUN OG VIÐHALD
Notaðu klút vættan í sápu og heitu vatni til þess að
hreinsa ytri skálar, höfuðspöng og eyrnapúða.
ATHUGASEMD: EKKI setja heyrnarhlífarnar ofan í vatn.
Ef heyrnarhlífarnar blotna í rigningu eða af svita, skaltu
snúa eyrnahlífunum út, fjarlægja eyrnapúða og frauðfóður
og láta allt þorna áður en þær eru settar saman á ný.
Eyrnapúðar og frauðfóður getur skemmst við notkun og
leita ætti reglubundið að sprungum í þeim og öðrum
skemmdum. 3M mælir með því að skipt sé um frauðfóður
og eyrnapúða að minnsta kosti tvisvar á ári við
reglubundna notkun til þess að tryggja áreiðanlega
hljóðdeyfingu, hreinlæti og þægindi. Skemmist eyrnapúði,
ber að skipta um hann.
AÐ FJARLÆGJA UM EYRNAPÚÐA OG SKIPTA UM ÞÁ
D:1 Settu fingur undir innri brún eyrnapúðans og kipptu
honum ákveðið beint út til þess að fjarlægja hann.
D:2 Fjarlægðu frauðfóður sem fyrir er og settu nýtt í
staðinn.
D:3 Komdu annarri hlið eyrnapúðans fyrir í grópinni á
eyrnaskálinni og þrýstu svo á hinum megin þar til
eyrnapúðinn smellur á sinn stað.
HREINLÆTISBÚNAÐUR
3M™ PELTOR™ HY51 fyrir Optime I
3M™ PELTOR™ HY52 fyrir Optime II og H31
3M™ PELTOR™ HY54 fyrir Optime III
ÁBYRGÐ OG TAKMÖRKUÐ SKAÐABÓTASKYLDA
ÁBYRGÐ: Komi í ljós að einhver vara frá 3M Personal
Safety Division sé gölluð hvað efnivið eða handbragð
varðar og ekki í samræmi við ótvíræða ábyrgð varðandi
sérstakan tilgang, er eina skuldbinding 3M og úrbót þér til
handa sú að 3M velur sjálft um að gera við, skipta um
eða endurgreiða þér kaupverð viðkomandi hluta eða
vöru, að því tilskyldu að þú hafir tilkynnt í tíma um
vandamálið og að staðfest sé að varan hafi verið geymd,
henni viðhaldið og hún notuð í samræmi við skriflegar
leiðbeiningar 3M. ÁBYRGÐ ÞESSI EINSKORÐAST VIÐ
OG KEMUR Í STAÐINN FYRIR ALLA YFIRLÝSTA
ÁBYRGÐ EÐA ÁBYRGÐ SEM GEFIN ER Í SKYN UM
SELJANLEIKA, GAGNSEMI Í ÁKVEÐNUM TILGANGI
EÐA AÐRA ÁBYRGÐ UM GÆÐI EÐA ÁBYRGÐ SEM
SPRETTUR AF SÖLU, VENJU EÐA NOTKUN Í STARFI,
NEMA HVAÐ VARÐAR TILKALL OG VEGNA BROTA
GEGN EINKALEYFI. 3M ber samkvæmt ábyrgð þessari
engar skyldur vegna neinnar vöru sem ekki skilar
ætluðum árangri vegna ófullnægjandi eða rangrar
geymslu, meðferðar eða viðhalds, þegar ekki er farið eftir
leiðbeiningum með vörunni eða þegar henni er breytt eða
hún skemmd af slysni eða vegna vanrækslu eða rangrar
notkunar.
TAKMÖRKUN Á ÁBYRGÐ: 3M SKAL AÐ ENGU LEYTI
BERA ÁBYRGÐ Á NEINU BEINU, ÓBEINU, SÉRSTÖKU,
TILFALLANDI EÐA AFLEIDDU TJÓNI EÐA SKEMMDUM
(ÞAR MEÐ TALIÐ HAGNAÐARTAP) SEM SPRETTUR
AF VÖRU ÞESSARI, BURTSÉÐ FRÁ ÞVÍ HVAÐA
LAGAKENNINGUM ER BEITT, NEMA ÞAR SEM ÞAÐ
ER LÖGUM SAMKVÆMT BANNAÐ. ÚRRÆÐI
EINSKORÐAST VIÐ ÞAÐ SEM HÉR ER GREINT FRÁ.
ENGAR BREYTINGAR: Ekki skal gera neinar breytingar
á tæki þessu nema með skriflegu samþykki 3M
fyrirtækisins. Óheimilar breytingar gætu ógilt ábyrgð og
heimild notanda til þess að nota tækið.
42
i

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis