Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M MT73H7*4*10WS6 series Handbuch Seite 115

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 37
3M™ PELTOR™ LiteCom Plus Headset heyrnartól
MT73H7A4310WS6EU, MT73H7P3E4310WS6EU,
MT73H7B4310WS6EU, MT73H7A4410WS6EU,
MT73H7P3E4410WS6EU, MT73H7B4410WS6EU,
MT73H7A4710WS6AZ, MT73H7P3E4710WS6AZ,
MT73H7B4710WS6AZ
INNGANGUR
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja samskiptalausn frá
3M™ PELTOR™! Velkomin að næstu kynslóð persónuhlífa
með samskiptabúnaði.
ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum 3M™ PELTOR™ heyrnartólum er ætlað að veita
starfsmönnum vernd gegn hættulegum hávaða og háværum
hljóðum, jafnframt því sem þeir geta átt fjarskipti með
innbyggðu talstöðina eða Bluetooth
um umhverfishljóðnema. Gert er ráð fyrir því að allir notendur
lesi og skilji meðfylgjandi leiðbeiningar notenda ásamt því að
kunna að nota tækið.
MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu eftir
þeim áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar. Hafðu
samband við tæknideild 3M (samskiptaupplýsingar er að
finna á öftustu síðu).
!
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða
og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar rangt
eða notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í
hættulegum hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar eða
-taps. Ræddu við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar
notenda eða hafðu samband við tæknideild 3M til að kynna
þér rétta notkun. Ef þér finnst eins og þú sért með bómull í
eyrunum eða heyrir són eða suð í eða eftir hávaða
(byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra ástæðu
til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu yfirgefa
hávaðasama umhverfið umsvifalaust og hafa samband við
lækni og/eða verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það leitt
til alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
a. Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð, getur það
dregið úr athygli á umhverfinu og getunni til þess að heyra
viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt stillt
og mögulegt er að sætta sig við. Erfiðara getur reynst að
heyra viðvörunarmerki á vinnustaðnum á meðan hlustað er á
afþreyingu.
b. Notaðu ekki búnaðinn í mögulega sprengifimu umhverfi
til að draga úr hættu á því að sprenging verði.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
dregið úr verndargetu eyrnahlífanna/eyrnatappanna og
jafnvel leitt til heyrnartjóns:
104
og heyrt umhverfishljóð
®
VIÐVÖRUN
a. Rannsóknir 3M benda til þess að hjá mörgum notendum
sé hljóðeinangrun minni en hljóðdeyfingargildi á umbúðum
gefa til kynna vegna frávika við að fella hlífarnar að hverjum
notanda fyrir sig og færni hans og hvatningu til þess. Kynntu
þér viðeigandi reglur um leiðbeiningar um aðlögun gilda á
merkimiða og mat á hljóðdeyfingu. 3M mælir auk þess
eindregið með því að kanna hvort heyrnarhlífar passa.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim
komið fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum komið
fyrir á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans til þess að
deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi upplýsingar um rétta
notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða forðastu
hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum (t.d.
öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að velja
sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess að þau
hafi sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana. Fjarlægðu allt
annað (t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól, hreinlætishlífar
o.s.frv.) sem gæti dregið úr einangrunargildi
eyrnahlífapúðanna og verndargildi hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspöng eða hálsspöng
og gættu þess að hún sé nógu öflug til þess að halda
heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f. Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir
með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu millibili í
leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu heyrnarhlífapúðarnir
notaðir reglulega, ber að skipta um þá og frauðhringina að
minnsta kosti tvisvar á ári til þess að viðhalda fullnægjandi
vernd, hreinlæti og þægindum.
g. Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur farið
fram yfir dagleg hávaðamörk. Hafðu hljóðið eins lágt stillt og
mögulegt er að sætta sig við.
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti
farið fram yfir ytri hávaðamörk.
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika eyrnahlífanna.
• Afköst geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla minnkar.
Gera má ráð fyrir því að rafhlaða í eyrnatöppunum endist
dæmigert við samfellda notkun í 18 klukkustundir.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru þessari.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Þessar hálsspangareyrnahlífar eru í stærðinni stórar.
Eyrnahlífar sem uppfylla kröfur EN 352-1 eru í „millistærð"
eða „lítilli stærð" eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í „millistærð"
henta meirihluta notenda. Eyrnahlífar í „lítilli stærð" eða
„stórri stærð" eru hannaðar fyrir notendur sem ekki geta
notað millistærð af eyrnahlífum.
• Þessar eyrnahlífar fyrir hjálma eru í „stórri stærð".
Eyrnahlífar fyrir hjálma sem uppfylla kröfur EN 352-3 eru í
„millistærð" eða „lítilli stærð" eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í
„millistærð" fyrir hjálma henta meirihluta notenda. Eyrnahlífar
í „lítilli stærð" eða „stórri stærð" fyrir hjálma eru hannaðar
fyrir notendur sem ekki geta notað eyrnahlífar af millistærð.
IS

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis