Herunterladen Diese Seite drucken

ABL Wallbox eM4 Twin Bedienungsanleitung/Sicherheitshinweise Seite 148

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 11
Ekki má setja neinn vökva eða ílát með vökva á vöruna.
x
Ekki má byrja að nota vöruna fyrr en faglærður rafvirki hefur yfirfarið hana.
x
Tilskipanir og reglur
Vinsamlegast athugið að raforkufyrirtæki, veitufyrirtæki eða innlendar reglugerðir geta krafist tilkynningar eða leyfis
fyrir uppsetningu eða rekstri hleðslustöðvar.
Framleiðandaábyrgð felld úr gildi
Alls ekki má breyta vörunni með neinum hætti. Ef ekki er farið eftir þessu teflir það öryggi í hættu og felur í sér alvarlegt
brot gegn ábyrgðarskilmálum sem getur leitt til þess að ábyrgðin falli tafarlaust úr gildi.
Takmörkun á notendahópi
Einstaklingar (þ.m.t. börn) með skerta líkamsgetu, skyngetu eða andlega getu eða einstaklingar sem skortir
x
reynslu og/eða þekkingu skulu ekki nota vöruna nema að þeir séu undir eftirliti aðila sem gætir öryggis þeirra eða
veitir þeim tilsögn í notkun vörunnar.
Hafa verður eftirlit með börnum til að tryggja að þau leiki sér ekki með vöruna.
x
Fylgibúnaður
Notið eingöngu hleðslusnúrur sem eru vottaðar samkvæmt gildandi framleiðslustaðli og samræmast IEC 62196-1
x
og IEC 62196-2.
Mælt er með því að nota eingöngu þann fylgibúnað sem ABL býður upp á fyrir vöruna.
x
Bannað er að nota framlengingarsnúrur.
x
Bilanir lagfærðar
Athugið að ef þráðlausir sendar eru notaðir nálægt vörunni (< 20 cm) getur það valdið truflunum á virkni hennar.
x
Eingöngu faglærðir rafvirkjar mega gera við bilanir sem öryggi fólks eða vörunni sjálfri stafar hætta af.
x
Ef einhver eftirfarandi bilana kemur upp skal snúa sér til faglærða rafvirkjans sem annaðist uppsetningu:
x
Ytra byrðið hefur orðið fyrir hnjaski, lokið hefur verið fjarlægt eða ekki er hægt að loka því.
x
Varan virkar ekki eins og hún á að gera.
x
Hleðslutengillinn, tengda hleðslusnúran eða hleðslukló hennar hafa orðið fyrir sjáanlegum skemmdum eða
x
virka ekki rétt.
Notkunarleiðbeiningar
Fylgið ávallt gildandi öryggisreglum um notkun raftækja á staðnum þar sem varan er notuð.
x
Til þess að taka vöruna alveg úr sambandi við rafmagn verður að slá út sjálfvörum og lekastraumsrofum í
x
rafmagnstöflu hússins.
Gætið þess að strekkja aldrei of mikið á hleðslusnúrunni.
x
Gætið þess að varan sé ávallt lokuð og læst á meðan hún er í notkun.
x
Gætið þess að aka ekki yfir hleðslusnúruna, brjóta upp á hana eða klemma hana. Sýnið alltaf sérstaka aðgát við
x
meðhöndlun hleðsluklóa og hleðslutengla.
Látið eingöngu gera við vöruna hjá rafvirkjum sem ABL viðurkennir.
x
148
Notkunarleiðbeiningar

Werbung

loading