Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Outdoorchef LUGANO 570 G Bedienungsanleitung Seite 181

Gas-kugelgrill
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 1
Ef um ábyrgðartilvik er að ræða mun OC annaðhvort skipta um skemmda eða gallaða hluti eða skipta út vörunni í heild sinni, að eigin vali. Að því
marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að vörunni verði skipt út fyrir sambærilega vöru af nýrri gerð, t.d. fyrir
aðra tegund. Svo framarlega sem virkni vörunnar er ekki skert vegna gallans og að því marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur
einnig hugsast að þér verði boðnar fullnægjandi fébætur í stað viðgerðar.
Á meðan unnið er úr ábyrgðarkröfu (skoðun og hugsanlega skipti á vöru) er ekki hægt að leggja fram kröfu gegn OC um nýja vöru eða frekari
bætur. Úrbætur vegna galla lengja hvorki ábyrgðartímann né endurnýja hann. Hlutir sem skipt hefur verið út verða eign OC. Aðeins þegar skipt
hefur verið um alla vöruna hefst ábyrgðartíminn að nýju.
Allar frekari kröfur á hendur ábyrgðarveitanda falla ekki undir þessa ábyrgð. Kröfur af öðrum lagalegum ástæðum eru þó ekki útilokaðar eða
takmarkaðar (sjá einnig hér að framan í kafla 1).
4. Undanskilið ábyrgð
Ábyrgðin gildir ekki í eftirfarandi tilvikum:
Eðlilegt slit við fyrirhugaða notkun, einkum á almennum slithlutum eins og trekt, neistaþökum, brennara, hitamæli, kveikingu og rafhlöðu,
rafskauti, kveikitaug, gasslöngu, gasþrýstijafnara, hitaelementi, endurkastara, hlífðarfilmu úr áli, grill- eða kolagrind, kveikigrind og kola-/
fitusafnbakka.
Skemmdir í gljábrenningu á notuðum vörum ef ekki er hægt að sanna að skemmdin var til staðar fyrir fyrstu notkun.
Bilanir og/eða skemmdir af völdum óviðeigandi eða rangrar notkunar, einkum vegna
þess að ekki var farið eftir notkunar- og öryggisleiðbeiningum eða viðhaldsleiðbeiningum (t.d. notkun á útigrillum innandyra, skemmdir vegna
rangrar samsetningar, rangra þrifa á gljábrenndum yfirborðsfleti trektarinnar eða grillgrindinni, vegna þess að lekaprófun var ekki framkvæmd
eins og ráðlagt er í notkunarleiðbeiningunum, vegna notkunar á skaðlegum íðefnum, vegna annarrar notkunar en fyrirhugaðrar o.s.frv.).
Bilun og/eða skemmdir sem stafa af inngripi eða viðgerðum framkvæmdum af aðilum sem OC hefur ekki viðurkennt.
Bilun og/eða skemmdir vegna veðurs (t.d. haglél eða eldingar).
Bilun og/eða skemmdir sem valdið er af ásetningi eða gáleysi, svo framarlega sem OC ber ekki ábyrgð á þeim.
Bilun og/eða skemmdir sem verða við flutning til kaupandans, svo framarlega sem ábyrgðarveitandinn ber ekki ábyrgð á þeim.
Bilun og/eða skemmdir af völdum óviðráðanlegra orsaka.
Bilun og/eða slitskemmdir vegna notkunar í atvinnuskyni (t.d. í hótel- eða veitingarekstri).
5. Úrvinnsla ábyrgðar
Ef um ábyrgðartilvik er að ræða skaltu hafa samband eins fljótt og auðið er við okkur eða viðurkenndan söluaðila (lista yfir söluaðila er að
finna á www.outdoorchef.com) og tilgreina eftir því sem hægt er vöruna/hluta vörunnar, sölukvittun, raðnúmer og vörunúmer (koma bæði
fram á upplýsingalímmiða á grillinu; sjá fyrsta kaflann í notkunarleiðbeiningunum), ásamt heimilisfangi þínu. Þú mátt gjarnan láta mynd fylgja
með lýsingunni á gallanum. Skilaðu vörunni til söluaðilans eða okkar svo við getum prófað vöruna og kannað hvort ábyrgðin gildi. Í réttmætum
ábyrgðartilvikum munum við endurgreiða nauðsynlegan flutnings- og sendingarkostnað, annars munum við senda vöruna til baka á þinn kostnað.
Eftirfarandi fyrirtæki er fulltrúi fyrir skráða vörumerkið OUTDOORCHEF
Outdoorchef AG | Eggbühlstrasse 28 | Pósthólf | 8050 Zürich-Sviss | www.outdoorchef.com
*
Listi yfir söluaðila er á vefsíðunni okkar undir OUTDOORCHEF.COM
**
Raðnúmer og vörunúmer eru á upplýsingalímmiðanum á grillinu
(sjá fyrsta kafla í þessum NOTKUNARLEIÐBEININGUM).
181
OUTDOORCHEF.COM

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis