Herunterladen Diese Seite drucken

Bosch Drive Unit Performance Line Originalbetriebsanleitung Seite 49

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für Drive Unit Performance Line:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 1
Aðeins er hægt að taka CenterLock-segulinn (4) af og setja
hann aftur á að hámarki fimm sinnum.
Gjarðarsegull (rim magnet)
Viðvörun vegna hættu á að hlutir sem
dragast að seglinum valdi áverkum á
höndum: Hætta er á meiðslum ef fingur eða
hönd lenda á milli segulsins og hluta sem
dragast að honum. Slíkt getur valdið áverkum á húð (t.d.
vegna málmflísa sem dragast að seglinum), mari,
höggáverkum eða beinbrotum. Forðast má þetta með því
að sýna aðgát og klæðast viðeigandi hlífðarfatnaði.
Athugaðu: Ekki má breyta afstöðu gjarðarsegulsins gagnvart
gjörðinni (sjá mynd A).
Þegar gjarðarsegull er notaður þarf ekki skynjara til að greina
snúning hjólsins. Drifeiningin greinir sjálf þegar segullinn er
nálægt og reiknar hraða og aðrar nauðsynlegar upplýsingar
út frá því hversu oft segulsviðið kemur fyrir.
Þar sem drifeiningin er viðkvæm fyrir segulsviðum skal gæta
þess að ekki séu fleiri segulsvið nálægt henni (t.d. fótstig
með seglum, segulmælar fyrir snúningshraða sveifar,
segulverkfæri eða segulmögnuð verkfæri o.s.frv.) sem valdið
geta truflunum í drifeiningunni.
Notkun
Til þess að geta sett rafhjólið í gang þarf stjórnbúnað sem
tilheyrir kynslóðinni the smart system. Sjá
notendahandbókina fyrir stjórnbúnaðinn og e.t.v. annan
búnað sem tilheyrir kynslóðinni the smart system.
Upplýsingar um hvernig hjólað er á rafhjólinu
Hvenær vinnur drifið?
Drifið aðstoðar þig við að hjóla þegar þú stígur á fótstigin.
Ekki er veittur stuðningur nema að stigið sé á fótstigin.
Afköst drifsins fara alltaf eftir því hversu miklu afli er beitt á
fótstigin og hversu hratt þeim er snúið.
Ef litlu afli er beitt og snúið er hægt er stuðningurinn minni en
ef miklu afli er beitt og snúið hratt. Þetta gildir óháð því
hvaða akstursstilling er valin.
Drifið slekkur sjálfkrafa á sér þegar hraðinn fer yfir 25 km/h.
Þegar hraðinn fer niður fyrir 25 km/h stendur drifið
sjálfkrafa aftur til boða.
Undantekning á þessu er teymingarhjálpin sem gerir kleift að
teyma rafhjólið á litlum hraða án þess að stíga á fótstigin.
Þegar teymingarhjálpin er notuð geta fótstigin snúist með.
Einnig er hvenær sem er hægt að hjóla á rafhjólinu eins og
venjulegu hjóli, annaðhvort með því að slökkva á því eða með
því að stilla akstursstillinguna á OFF. Hið sama á við þegar
rafhlaða rafhjólsins er tóm.
Samspil drifeiningar og gírskiptingar
Jafnvel þótt um rafhjól sé að ræða er gírskiptingin notuð með
sama hætti og á venjulegu reiðhjóli (sjá notendahandbók
rafhjólsins).
Bosch eBike Systems
Óháð því um hvernig gírskiptingu er að ræða er mælt með því
að stíga léttar á fótstigin í stutta stund á meðan skipt er um
gír. Þannig verður auðveldara að skipta um gír og dregið er úr
sliti á aflrásinni.
Með því að setja í réttan gír er hægt að auka hraðann og
drægið án þess að leggja meira á sig.
Byrjað að kynnast rafhjólinu
Mælt er með því að byrjað sé á því að kynnast rafhjólinu utan
fjölfarinna gatna.
Prófaðu mismunandi akstursstillingar. Byrjaðu á
akstursstillingu með minni stuðningi. Um leið og þér finnst þú
hafa náð góðum tökum á rafhjólinu getur þú byrjað að hjóla á
því í umferðinni.
Prófaðu drægi rafhjólsins við mismunandi skilyrði áður en þú
ferð að skipuleggja lengri og meira krefjandi ferðir.
Áhrif á drægi
Ekki er hægt að reikna drægið út nákvæmlega áður lagt er af
stað eða meðan á ferðinni stendur, þar sem ýmsir þættir
hafa áhrif á drægið.
Færa skal þessa þætti inn í drægishjálpina til að fá skýrari
mynd af því hvaða áhrif þeir hafa á drægið.
Skannaðu kóðann til þess að opna
drægishjálpina.
Góð umhirða rafhjólsins
Gæta skal að réttu notkunar- og geymsluhitastigi fyrir íhluti
rafhjólsins. Verja skal drifeininguna, skjáinn og rafhlöðu
rafhjólsins fyrir mjög lágu eða mjög háu hitastigi (t.d. vegna
mikils sólskins án loftræstingar). Íhlutirnir (sérstaklega
rafhlaða rafhjólsins) geta orðið fyrir skemmdum vegna mjög
lágs eða mjög hás hitastigs.
Viðhald og þjónusta
Viðhald og þrif
Þegar skipt er um perur skal gæta þess að perurnar séu
samhæfar við Bosch-rafhjólskerfi af kynslóðinni the smart
system (fá má upplýsingar um þetta á viðurkenndu
verkstæði) og að uppgefin spenna sé rétt. Nýju perurnar
verða að vera með sömu spennu og þær gömlu.
Aðeins má skipta íhlutum á drifeiningunni og öðrum íhlutum í
drifinu (t.d. framtannhjóli, festingu framtannhjóls, fótstigum,
sveifum) út fyrir varahluti sem eru af sömu gerð eða sem
framleiðandi rafhjólsins leyfir sérstaklega til notkunar á því.
Þannig er komið í veg fyrir að drifeiningin verði fyrir of miklu
álagi og skemmist.
Halda skal drifeiningunni hreinni og gæta þess að hún komist
ekki í snertingu við tærandi efni og eldsneyti, t.d. dísilolíu.
Sýna skal aðgát þegar drifeiningin er þrifin.
Ekki má þrífa neina hluta reiðhjólsins, þ.m.t. drifeininguna,
með því að dýfa þeim í vatn eða sprauta á þá vatni.
Íslenska – 3
0 275 007 3D5 | (10.02.2025)

Werbung

loading