ÍSLENSKA
Kælihólfið
Ábendingar um kælingu á ferskum matvælum
•
Breiddu yfir eða pakkaðu inn matnum, sérstaklega
ef hann er bragðsterkur.
•
Staðsettu matinn þannig að loft geti leikið
óhindrað um hann.
•
Til að ná sem bestum árangri skaltu skilja nóg
pláss eftir í kælihólfinu til að loft geti streymt um
umbúðirnar. Einnig skal skilja eftir nægilegt rými
framan við svo að hægt sé loka dyrunum vel.
•
Ekki skal geyma heitan mat eða vökva sem gufar
upp af í kæliskápnum.
•
Kjöt (allar tegundir): setjið í hæfilegar pakkningar
og látið á glerhilluna ofan við grænmetisskúffuna.
Kjöt skal ekki geyma lengur en 1-2 daga.
•
Eldaður matur og kaldir réttir: hyljið og setjið á
einhverja hillu.
•
Ávextir og grænmeti: hreinsið vel og látið í
grænmetisskúffuna. Banana, kartöflur, lauk
og hvítlauk má ekki geyma í kæliskápnum án
umbúða.
•
Smjör og ostur: látið í sérstök loftþétt ílát eða
pakkið í álpappír eða plastpoka til að útiloka sem
mest loft.
•
Flöskur: lokið með loki og látið í hurðahillur.
Færanlegar hillur
Frystihólf
Ráð við frystingu á ferskum matvælum
•
Það kemur fram á merkiplötunni hve mikið af
ferskum matvælum má frysta á sólarhring.
•
Við gangsetningu eftir langt hlé skal láta
heimilistækið vera í gangi a.m.k 2 klst á kaldari
stillingu áður en matvæli eru látin í hólfið.
•
Ekki skal láta fersk, ófrosin matvæli snerta mat
sem þegar er frosinn til að komast hjá að hitinn
hækki í þeim síðarnefnda.
•
Pakkið inn matvælunum til að verja þau fyrir vatni,
raka eða þéttingu. Það kemur í veg fyrir að lykt
berist um frystinn jafnframt því að tryggja betur
gæði frystra matvæla.
•
Magurt fæði geymist betur og lengur en feitt fæði.
Salt dregur úr geymsluþoli fæðu.
•
Látið aldrei heit matvæli í frystinn. Með því að kæla
heit matvæli áður en þau eru fryst sparast orka og
heimilistækið endist lengur.
•
Ekki frysta aftur hálfþiðin matvæli.
•
Athugasemd: Látið aldrei mat eða drykk í flöskum
inn í frystihólfið.
•
Til að ná sem bestum árangri skaltu skilja nóg
pláss eftir í frystihólfinu til að loft geti streymt um
umbúðirnar. Einnig skal skilja eftir nægilegt rými
framan við svo að hægt sé loka dyrunum vel.
Mynd aðeins til viðmiðunar
•
Í hliðum kæliskápsins eru margar höldur, þannig
að hægt er að koma hillunum, sem eru úr
öryggisgleri, fyrir hvar sem óskað er.
Grænmetisskúffa
Mynd aðeins til viðmiðunar
•
Skúffan hentar vel til að geyma ávexti og
grænmeti.
•
Það má draga út skúffuna til hreinsunar.
Ráð um geymslu á frystum matvælum
Til þess að þetta heimilistæki starfi sem best skal:
•
Ganga úr skugga um að fryst matvæli sem keypt
eru út úr búð hafi verið geymd við rétt skilyrði hjá
smásöluaðila.
•
Tryggið að frystivara sé flutt úr búðinni og í
frystinn á sem skemmstum tíma.
•
Ekki opna dyrnar oft eða skilja eftir opnar lengur
en þörf er á.
•
Eftir afþiðnun skemmist matur fljótt og ekki er
hægt að frysta hann aftur.
•
Ekki geyma matvöru lengur en framleiðandi
vörunnar mælir með.
373