ÍSLENSKA
•
Setjið ekki rafmagnsklóna í samband fyrr en í
lok uppsetningar. Tryggið að auðvelt sé að taka
rafmagnsklóna úr sambandi eftir uppsetningu.
•
Ekki má toga í rafmagnsnúruna til að taka úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
•
Eingöngu Bretland og Írland:
Tækið er gert fyrir 13 A aðalöryggi. Ef skipta þarf
um aðalöryggi skal aðeins nota 13 A ASTA (BS 1362)
bræðivar.
Notkun
VIÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum, bruna,
raflosti eða eldsvoða.
Í kælivefjunum er svolítið af
umhverfisvæna en eldfima kælimiðlinum
R600a. Hann skaðar ekki ósonlagið og
eykur ekki gróðurhúsaáhrifin. Ef kælimiðill
lekur út getur hann skaðað augu eða
kviknað í honum. Ekki skemma kælivefjurnar.
•
Yfirborð þjöppunnar getur hitnað við eðlilega
notkun. Ekki snerta yfirborðið með berum
höndum.
•
Ekki má breyta tæknilýsingu ísskápsins.
•
Ekki má láta raftæki (t.d. ísvélar) inn í heimilistækið
nema framleiðandi segi þau henta til þess.
•
Ef skemmdir verða á kælihringrásinni skal tryggja
að hvorki sé opinn eldur né nokkuð sem geti kveikt
eld inni í herberginu. Loftræstið herbergið.
•
Ekki snerta plastíhluti heimilistækisins með heitum
hlutum.
•
Ekki geyma flöskudrykki í frystihólfi til að forðast
að flöskurnar springi eða annað tjón.
•
Ekki geyma eldfimar lofttegundir í heimilistækinu.
•
Ekki láta eldfima framleiðslu eða blauta hluti með
eldfimri framleiðslu í eða nálægt heimilistækinu.
•
Ekki má snerta þjöppuna eða þéttinn. Þau eru heit.
•
Ekki fjarlægja eða snerta hluti úr frystihólfinu ef þú
ert með blautar eða rakar hendur.
•
Ekki kyngja innihaldi (óeitrað) frystikubbanna.
•
Ekki borða ísmola eða íspinna beint úr frysti því
þeir geta valdið kali.
•
Þíddan mat ætti ekki að setja aftur í hólfið fyrir
frosna matvöru.
•
Fylgið geymsluleiðbeiningum á umbúðum frystra
matvæla.
Uppsetning
VIÐVÖRUN!
Áður en heimilistækið er sett
upp skal kynna sér öryggisupplýsingar í bæklingi
þessum.
Gátlisti uppsetningar
Hurð
Hurð þéttir við skápinn alls staðar
Hurð er lóðrétt
Hallastilling
Innri lýsing
VIÐVÖRUN!
Hætta á raflosti.
•
Ljósaperan í heimilistækinu er sérstaklega gerð
fyrir heimilistæki og hentar ekki í almenna
herbergislýsingu ((ESB) 2019/2020).
Umhirða og þrif
VIÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum eða
skemmdum á heimilistækinu.
•
Áður en viðhald hefst skal slökkva á heimilistækinu
og taka rafmagnssnúruna úr sambandi.
•
Þetta tæki inniheldur kolevetni í kælieiningunni.
Aðeins hæfir aðilar mega sinna viðhaldi og
endurhleðslu á einingunni.
•
Skoðið frárennsli tækisins reglulega og hreinsið
það ef þörf krefur. Ef drenið er stíflað safnast afþítt
vatn fyrir neðst í heimilistækinu.
Þjónusta
•
Ef gera þarf við tækið skal hafa samband við
viðurkenndan þjónustuaðila sem skráður er aftast
í handbókinni.
•
Notaðu aðeins upprunalega varahluti.
Förgun
VIÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum eða köfnun.
•
Takið heimilistækið úr sambandi.
•
Skerið rafmagnssnúruna í burtu og fleygið henni.
•
Fjarlægið hurðar til að koma í veg fyrir að börn eða
gæludýr lokist inni í heimilistækinu.
•
Kælirásin og einangrunarefnið í tækinu eru
ósonvæn.
•
Einangrunarfroðan inniheldur eldfimt gas.
Hafið samband við yfirvöld á staðnum varðandi
upplýsingar um hvernig farga skuli heimilistækinu
á réttan hátt.
•
Ekki skemma þann hluta kælieiningarinnar sem er
nálægt varmaskiptinum.
Framleiðandinn hafnar öllum bótakröfum vegna
áverka á fólki eða dýrum eða skemmda á eignum ef
ofannefnd ráð og varúðarráðstafanir eru ekki virt.
Kæliskápurinn er stöðugur
Rafmagn
Bíðið 4 klst.
Rafmagn á húsi
Ísskápur í sambandi
Lokaathuganir
Umbúðir fjarlægðar
Hitastig kæliskáps er stillt
370