Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 5
Íslenska
Áríðandi
Wok-pönnunni fylgir glerlok. Á lokinu er handfang.
Hertu skrúfurnar með skrúfjárni ef handfangið
losnar. Ekki skrúfa of þétt, þá gæti glerið brotnað.
Þrif
Áður en varan er tekin í notkun ætti að þvo
hana, skola og þurrka vandlega.
Þvoið vöruna alltaf í höndunum eftir notkun.
Notið ekki stálull eða annað sem getur rispað
yfirborðið.
Uppþvottalögur gæti haft áhrif á yfirborðið.
Botninn er aðeins íhvolfur þegar hann er kaldur
en þenst út og verður flatur þegar hann hitnar.
Leyfið alltaf vörunni að kólna áður en hún er
þrifin. Þannig nær botninn að ná lögun sinni
aftur og þetta kemur í veg fyrir að botninn verði
ójafn.
Gott að vita
Þetta eldunarílát hentar til notkunar á
allar tegundir af hellum, þar með töldum
spanhellum.
Með því að nota eldunarílátið á hellu sem er
jafnstór eða minni að þvermáli getur þú sparað
orku.
Lyftið alltaf eldunarílátinu þegar það er fært til á
keramikhelluborði til að forðast rispur.
Það er með viðloðunarfrírri húð. Það þýðir að
hægt er að elda mat með lítilli eða engri fitu.
Látið aldrei þurrsjóða í eldunarílátinu því
botninn skekkist og viðloðunarfría húðin tapar
eiginleikum sínum við ofhitnun.
Notið aðeins viðar- eða plastáhöld án hvassra
brúna.
Hafið í huga að eldunarílátið hitnar þegar það
er í notkun. Notið alltaf pottaleppa.
Handfangið getur skemmst í loganum þegar
eldað er á gaseldavél.
Ef handfangið virðist vera að losna þarf að
herða á skrúfunum með skrúfjárni.
10

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis