Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M PELTOR ComTac MT20H682 N-Serie Bedienungsanleitung Seite 79

Vi nib headset
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 25
IS
3M™ PELTOR™ ComTac™ VI NIB Headset
MT20H682**-**N**
INNGANGUR
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja samskiptalausn frá
3M™ PELTOR™! Velkomin að næstu kynslóð persónuhlífa með
samskiptabúnaði.
ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum 3M™ PELTOR™ heyrnartólum er ætlað að vernda
gegn hættulega háværum hávaða og háværum hljóðum,
samtímis og notandinn getur heyrt umhverfishljóð með
umhverfishljóðnemum, hlustað á tengd samskiptatæki og talað
við aðra maður-á-mann með aðstoð samþættrar NIB-tækni
(Natural Interaction Behavior) þar stöðugur hávaði er. Gert
er ráð fyrir því að allir notendur lesi og skilji meðfylgjandi
leiðbeiningar notenda ásamt því að kunna að nota tækið.
MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu eftir þeim
áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu leiðbeiningarnar
til þess að geta leitað í þær síðar. Hafðu samband við
tæknideild 3M (samskiptaupplýsingar er að finna á öftustu síðu).
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða og
annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar rangt eða
notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í hættulegum
hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar eða -taps. Ræddu
við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar notenda eða hafðu
samband við tæknideild 3M til að kynna þér rétta notkun. Ef þér
finnst eins og þú sért með bómull í eyrunum eða heyrir són eða
suð í eða eftir hávaða (byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur
einhverja aðra ástæðu til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda,
skaltu yfirgefa hávaðasama umhverfið umsvifalaust og hafa
samband við lækni og/eða verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það leitt til
alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
a. Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð, getur það
dregið úr athygli á umhverfinu og getunni til þess að heyra
viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt stillt
og mögulegt er að sætta sig við. Erfiðara getur reynst að
heyra viðvörunarmerki á vinnustaðnum á meðan hlustað er
á afþreyingu.
b. Notaðu ekki búnaðinn í mögulega sprengifimu umhverfi til að
draga úr hættu á því að sprenging verði.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
dregið úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt til
heyrnartjóns:
a. Rannsóknir benda til þess að hjá mörgum notendum sé
hljóðeinangrun minni en hljóðdeyfingartöflur á umbúðum
gefa til kynna vegna frávika við að fella hlífarnar að hverjum
notanda fyrir sig og færni hans og hvatningu til þess. Kynntu
þér viðeigandi reglur um leiðbeiningar um aðlögun gilda
á merkimiða og mat á hljóðdeyfingu. 3M mælir auk þess
eindregið með því að kanna hvort heyrnarhlífar passa.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim komið
fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum komið fyrir
á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans til þess að
deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi upplýsingar um rétta
notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða forðastu
hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum (t.d.
öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að velja
sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess að þau hafi
sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana. Fjarlægðu allt annað
(t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól, hreinlætishlífar o.s.frv.)
sem gæti dregið úr einangrunargildi eyrnahlífapúðanna og
verndargildi hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspöng eða hálsspöng
og gættu þess að hún sé nógu öflug til þess að halda
heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f. Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir með
tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu millibili í leit að
t.d. sprungum og hljóðleka. Séu heyrnarhlífapúðarnir notaðir
reglulega, ber að skipta um þá og frauðhringina að minnsta
kosti tvisvar á ári til þess að viðhalda fullnægjandi vernd,
hreinlæti og þægindum.
g. Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur farið
fram yfir dagleg hávaðamörk. Hafðu hljóðið eins lágt stillt og
mögulegt er að sætta sig við.
h. Sé ekki farið eftir ofangreindum kröfum, skerðir það
verndareiginleika heyrnarhlífanna verulega.
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti farið
fram yfir dagleg hávaðamörk.
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika eyrnahlífanna.
• Afköst geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla minnkar.
Gera má ráð fyrir því að rafhlaða í eyrnahlífunum endist
dæmigert við samfellda notkun:
• LDF og NIB: 30 klst.
• LDF: 50 klst.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru þessari.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Þessar heyrnarhlífar eru í stærðinni litlar. Eyrnahlífar sem
uppfylla kröfur EN 352-1 eru í „millistærð" eða „lítilli stærð"
eða „stórri stærð". Heyrnarhlífar í „millistærð" henta meirihluta
notenda. Eyrnahlífar í „lítilli stærð" eða „stórri stærð" eru
hannaðar fyrir notendur sem ekki geta notað millistærðina.
• Vara þessi hentar ekki fyrir háværan og samfelldan lágtíðni
hljóðstyrk.
VARÚÐ:
• Sé röng rafhlaða notuð, getur verið hætta á sprengingu.
• Notaðu ávallt sértilgreinda 3M varahluti. Sé notast við aðra
varahluti en upprunalega gæti það dregið úr verndinni sem
varan á að veita.
ATHUGASEMD
• Þegar heyrnarhlífarnar eru notaðar í samræmi við
leiðbeiningar notenda, draga þær bæði úr stöðugum
hávaða, svo sem í iðnaði eða frá ökutækjum og flugvélum,
73

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis