Herunterladen Diese Seite drucken

3M 6000 Serie Bedienungsanleitung Seite 24

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für 6000 Serie:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 7
HYVÄKSYNNÄT
Nämä tuotteet on tyyppihyväksynyt ja niiden vuosittaisesta auditoinnista vastaa joko: BSI Group, The Netherlands
B.V. Say Building, John M. Keynesplein 9, 1066 EP Amsterdam, The Netherlands, Ilmoitettu Laitos No.2797 ja / tai
BSI Assurance UK Ltd, Kitemark Court, Davy Avenue, Knowlhill, Milton Keynes MK5 8PP, UK, Ilmoitettu Laitos No.
0086. Nämä tuotteet vastaavat Eurooppalaisen Asetuksen vaatimuksia (EU) 2016/425 sekä asianomaisia paikallisia
säännöstöjä. Asianomaiset Eurooppalaiset/paikalliset lait sekä Ilmoitettu Laitos ilmenevät Sertifikaateista ja
vaatimustenmukaisuusvakuutuksesta jotka löytyvät osoitteestawww.3m.com/Respiratory/certs.
i Lesið þessar leiðbeiningar samhliða viðeigandi notendaleiðbeiningunum með 3M™ andlitshlíf og, þegar það á
við, 3M™ 5000-vörulínunni, þar sem finna má upplýsingar um:
• varahluti
• aukahluti.
Samþykktar samsetningar á 3M™ andlitsgrímum og 3M™ síum
Á mynd 1 er að finna leyfðar síusamsetningar.
KERFISLÝSING
Þessar vörur uppfylla kröfur eftirfarandi staðla: EN 14387:2004 + A1:2008 Þegar þessi vara er notuð í heild sinni veitir
hún vörn gegn tilteknum gas- og gufuhættum. (Sjá tæknilýsingu).Að auki má nota agnasíur úr 3M™ 5000-vörulínunni
með lofttegunda- og gufusíum úr 3M™ 6000-vörulínunni.
^ VIÐVARANIR OG TAKMARKANIR
^ Veitið viðvörunaryfirlýsingum sérstaka athygli þar sem í þær er vísað.
• Rétt val, þjálfun, notkun og viðeigandi viðhald eru allt nauðsynlegir þættir til að varan geti varið notandann fyrir
tilteknum aðskotaefnum í lofti. Ef öllum notkunarleiðbeiningum þessarar öndunarhlífar er ekki fylgt og/eða ef hún er
ekki höfð rétt á í heild sinni allan váhrifatímann getur það haft alvarleg áhrif á heilsufar notandans og leitt til alvarlegra
eða lífshættulegra sjúkdóma eða varanlegrar fötlunar.
• Gangið ávallt úr skugga um að varan í heild sinni:
– henti notkun hverju sinni,
– passi vel,
– sé notuð allan váhrifatímann, og
– sé endurnýjuð eftir þörfum.
• Til að varan henti og sé notuð rétt skal fylgja staðbundnum reglugerðum, fara eftir öllum upplýsingum sem með henni
fylgja eða hafa samband við öryggissérfræðing/fulltrúa 3M (upplýsingar um tengiliði á staðnum).
• Notið þetta öndunarhlífakerfi eingöngu í samræmi við allar leiðbeiningar:
• sem er að finna í þessum bæklingi,
• sem fylgja öðrum íhlutum kerfisins.
• Látið ekki síurnar í vökva.
• Notið ekki í andrúmslofti þar sem súrefnisinnihald er minna en 19,5%. (Skilgreining frá 3M. Í hverju landi fyrir sig
kunna að vera í gildi aðrar takmarkanir hvað varðar súrefnisskort. Leitið ráða ef vafi leikur á málum).
• Notið þessar vörur ekki í súrefni eða súrefnisauðguðu andrúmslofti.
• Notið ekki sem öndunarhlíf gegn mengunarvöldum í lofti eða styrkleika sem lélegar eða litlar viðvaranir eru til um,
gegn óþekktum mengunarvöldum eða þeim sem eru umsvifalaust hættulegir lífi eða heilsu (IDLH), né gegn
mengunarvöldum í lofti eða styrkleika sem myndar háan hita í snertingu við síur með íðefnum.
• Notið ekki þar sem styrkleiki er meiri en tilgreint er í tækniforskriftinni.
• Hafið samband við 3M ef fyrirhuguð er notkun á sprengihættustað.
• Vinna með opinn eld eða fljótandi málmdropa gæti valdið mikilli hættu þar sem kviknað getur í síunum.
• Yfirgefið mengaða svæðið umsvifalaust ef:
a) einhver hluti kerfisins skemmist,
b) loftstreymi í andlitshlífina minnkar eða hættir alveg,
c) erfitt verður að anda eða vart verður við aukið öndunarviðnám,
d) vart verður við svima eða önnur óþægindi,
e) vart verður við lykt eða bragð af aðskotaefnum eða ertingu.
• Ekki má breyta þessum búnaði eða gera við hann.
• Þessar vörur innihalda ekki íhluti sem gerðir eru úr náttúrulegu gúmmílatexi.
ATHUGIÐ: Geymið allar notendaleiðbeiningar til síðari nota.
UNDIRBÚNINGUR FYRIR NOTKUN
VARÚÐ: Sýna ætti aðgát við notkun sía sem hafa áður verið teknar úr pakkningum þar sem þær getu verið
með skemmri notkunartíma eða hafa verið notaðar áður.
Athugið hvort sían hentar verkinu sem vinna á – athugið litakóða, stafakóða og flokk.
Fyrir fyrstu notkun skal ávallt ganga úr skugga um að varan sé ekki komin fram yfir skráðan endingartíma
(lokadagsetningu).
24

Werbung

loading

Diese Anleitung auch für:

6051/069116055/ 069156054605760596075