Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M PELTOR WS LiteCom Plus Serie Handbuch Seite 115

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 35
IS
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti
farið fram yfir ytri hávaðamörk.
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika eyrnahlífanna.
• Afköst geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla minnkar.
Gera má ráð fyrir því að rafhlaða í eyrnatöppunum endist
dæmigert við samfellda notkun í 18 klukkustundir.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru þessari.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Þessar heyrnarhlífar eru í stærðinni stórar. Eyrnahlífar
sem uppfylla kröfur EN 352-1 eru í „millistærð" eða „lítilli
stærð" eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í „millistærð" henta
meirihluta notenda. Eyrnahlífar í „lítilli stærð" eða „stórri
stærð" eru hannaðar fyrir notendur sem ekki geta notað
millistærð af eyrnahlífum.
• Þessar eyrnahlífar fyrir hjálma eru í „lítilli stærð" eða „stórri
stærð" (eftir því sem við á). Eyrnahlífar fyrir hjálma sem
uppfylla kröfur EN 352-3 eru í „millistærð" eða „lítilli stærð"
eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í „millistærð" fyrir hjálma henta
meirihluta notenda. Eyrnahlífar í „lítilli stærð" eða „stórri
stærð" fyrir hjálma eru hannaðar fyrir notendur sem ekki geta
notað eyrnahlífar af millistærð.
VARÚÐ
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti
farið fram yfir ytri hávaðamörk.
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika eyrnahlífanna.
• Afköst geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla minnkar.
Gera má ráð fyrir því að rafhlaða í eyrnatöppunum endist
dæmigert í 18 klukkutíma við samfellda notkun.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru þessari.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Eyrnahlífar þessar festar á hjálm eru í stórri stærð.
Eyrnahlífar fyrir hjálma sem uppfylla kröfur EN 352-3 eru í
„millistærð" eða „lítilli stærð" eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í
„millistærð" fyrir hjálma henta meirihluta notenda. Eyrnahlífar í
„lítilli stærð" eða „stórri stærð" fyrir hjálma eru hannaðar fyrir
notendur sem ekki geta notað eyrnahlífar af „millistærð".
• Frálag hljóðrásar í þessum heyrnarhlífum getur farið fram
yfir dagleg vámörk hávaða.
• Vöru þessa skal ekki nota sé ekki hægt að tryggja að
spenna ílags fari ekki yfir hámarksgildi í töflu A:11.
ATHUGASEMD
• Þegar heyrnarhlífarnar eru notaðar í samræmi við
leiðbeiningar notenda, draga þær bæði úr stöðugum hávaða,
svo sem í iðnaði eða frá ökutækjum og flugvélum, og
skyndilegum hávaða, til dæmis byssuskotum. Erfitt er að
segja fyrir um þá heyrnarvernd sem þörf er á eða í raun er
veitt hvað varðar váhrif af skyndilegum hávaða. Það hefur
áhrif á vernd gegn hávaða frá byssuskotum um hvaða
tegund vopns er að ræða, hve mörgum skotum er hleypt af,
hvaða heyrnarhlífar eru valdar, hvernig þær passa og eru
notaðar, hvernig um þær er annast og fleira. Kynntu þér
107
betur heyrnarvernd gegn skyndilegum hávaða á
www.3M.com.
• Heyrnartólin eru búin styrkstýrðri hljóðdeyfingu. Notandi
ætti að kynna sér rétta notkun þeirra áður en hún hefst. Ef
hljóð er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita
ráða hjá framleiðanda um viðhald og hvernig skipta á um
rafhlöðu.
• Á heyrnarhlífunum er innstunga fyrir öryggishljóðtæki.
Notandi ætti að kynna sér rétta meðferð fyrir notkun. Ef hljóð
er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita ráða
framleiðanda.
• Á heyrnarhlífunum er innstunga fyrir hljóðtæki. Notandi
ætti að kynna sér rétta notkun þeirra áður en hún hefst. Ef
hljóð er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita
lausna í handbók framleiðanda.
• Heyrnarhlífarnar takmarka hljóðmerki við
afþreyingarhlustun við 82 dB(A) við eyra.
• Hitastig við notkun: -20°C (-4°F) til 55°C (131°F)
• Hitastig við geymslu: -20°C (-4°F) til 55°C (131°F)
• Þyngd heyrnarhlífanna: 435 - 470 g
VOTTANIR
3M Svenska AB lýsir því hér með yfir að Bluetooth
fjarskiptabúnaðurinn uppfyllir samræmiskröfur í tilskipun
2014/53/EU og öðrum viðeigandi tilskipunum til að uppfylla
kröfur um CE-merkingu. 3M Svenska AB lýsir því einnig yfir
að PPE-gerðar heyrnartólin séu í samræmi við reglugerð
(EU) 2016/425.
Hægt er að fá upplýsingar um viðeigandi löggjöf með því að
sækja samræmisyfirlýsingu (DoC) á www.3M.com/peltor/doc.
Samræmisyfirlýsingin sýnir einnig ef aðrar gerðarvottanir
gilda um þau. Þegar samræmisyfirlýsing er sótt, finndu
vinsamlegast hlutanúmer þitt. Þú finnur hlutanúmer
eyrnahlífanna neðst á annarri skálinni. Dæmi um það má sjá
á myndinni hér að neðan.
Persónuhlífarnar eru skoðaðar árlega af SGS Fimko Ltd.,
Takomotie 8, FI-00380 Helsinki, Finnlandi, vottunarstofu nr.
0598, og gerðarvottaðar af PZT GmbH, vottunarstofu nr.
1974, Bismarckstrasse 264 B, 26389, Wilhelmshaven,
Þýskalandi.
Varan hefur verið prófuð og vottuð í samræmi við
EN 352-1:2002 / EN 352-3:2002, EN 352-4:2001/A1:2005,
EN 352-6:2002, EN 352-8:2008 eða EN 352-1:2020,
EN 352-3:2020, EN 352-4:2020, EN 352-6:2020 og
EN 352-8:2020.
Viðeigandi útgáfu má finna í samræmisyfirlýsingunni.
Hægt er að fá send afrit af samræmisyfirlýsingu og
viðbótarupplýsingum sem krafist er í tilskipununum með því
að hafa samband við 3M í því landi sem varan var keypt.
Upplýsingar um tengiliði er að finna aftast í þessum
notendaleiðbeiningum.
og
®

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis