Herunterladen Diese Seite drucken

Kælihólfið - Ikea Ribbenas Bedienungsanleitung

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für RIBBENAS:
Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 23
ÍSLENSKA
Kælihólfið
Ábendingar um kælingu á ferskum matvælum
Breiddu yfir eða pakkaðu inn matnum, sérstaklega
ef hann er bragðsterkur.
Staðsettu matinn þannig að loft geti leikið
óhindrað um hann.
Til að ná sem bestum árangri skaltu skilja nóg
pláss eftir í kælihólfinu til að loft geti streymt um
umbúðirnar. Einnig skal skilja eftir nægilegt rými
framan við svo að hægt sé loka dyrunum vel.
Ekki skal geyma heitan mat eða vökva sem
uppgufun er af í kæliskápnum.
Kjöt (allar tegundir): setjið í hæfilegar pakkningar
og látið á glerhilluna ofan við grænmetisskúffuna.
Kjöt skal ekki geyma lengur en 1-2 daga.
Eldaður matur og kaldir réttir: hyljið og setjið á
einhverja hillu.
Ávextir og grænmeti: hreinsið vel og látið í
grænmetisskúffuna. Banana, kartöflur, lauk
og hvítlauk má ekki geyma í kæliskápnum án
umbúða.
Smjör og ostur: látið í sérstök loftþétt ílát eða
pakkið í álpappír eða plastpoka til að útiloka sem
mest loft.
Flöskur: lokið með loki og látið í hurðahillur.
Fjarlægja lykt
Í kælihólfinu er lofthreinsir sem notar einstæða tækni
til platínudauðhreinsunar við að hreinsa óæskilega
lykt úr loftinu. Hægt er að losa náttúrulegar jónir
stöðugt við að búa til dauðhreinsað og heilbrigt
umhverfi í frystihólfinu.
Ekki þarf að skipta um síu í platínuhreinsinum.
Ratsjárnemi fylgist með kælingu
Í kælihólfinu eru tveir ratsjárskynjarar settir upp á
hægri hlið að innan.
Nemarnir geta greint sjálfkrafa innri hitastigsmun
vegna hitastigs matvæla og þannig er innra hitastig
stillt sjálfkrafa til að koma í veg fyrir hitasveiflur.
Mynd aðeins til viðmiðunar
Færanlegar hillur
Mynd aðeins til viðmiðunar
Í hliðum kæliskápsins eru margar höldur, þannig
að hægt er að koma hillunum, sem eru úr
öryggisgleri, fyrir hvar sem óskað er.
Grænmetisskúffur
Mynd aðeins til viðmiðunar
Tvær aðskildar grænmetisskúffur fylgja
kæliskápnum, stór efri skúffa og lítil neðri skúffa.
Skúffurnar henta vel til að geyma ávexti og
grænmeti.
Hægt er að draga skúffuna út til þess að þrífa
hana.
Svæði með breytilegan hita
Þetta svæði er ætlað til að geyma ný matvæli svo
sem ávexti og grænmeti, mjólkurvörur, kjöt og
drykki.
Hitastigið á svæðinu með breytilegt hitastig má
stilla fyrir hverja gerð af matvælum sem geymd
eru á þessu svæði. Hitastillibilið er ávextir/
grænmeti (
), kælt (
Það má draga út skúffuna til hreinsunar.
Stór
grænmetisskúffa
Grænmetisskúffa
Svæði með
breytilegan hita
), og drykkir ( ).
455
loading