Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Is - Notendahandbók; Öryggisleiðbeiningar - Barbecook JOYA Benutzerhandbuch

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für JOYA:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 11
IS - NOTENDAHANDBÓK
1.
SKRÁÐU TÆKIÐ ÞITT
Þakka þér fyrir að kaupa Barbecook grill.
Við vonum að þú njótir þess að nota það og að þú munir eiga
margar ánægjulegar stundir við grillið! Þú getur betrumbætt
upplifun þína með því að skrá grillið þitt á netinu til að nýta þér
hina ýmsu kosti.
- Þú færð aðgang að notendahandbókinni á netinu svo þú
getir lært allt um tækið þitt.
- Við bjóðum þér persónulega þjónustu eftir sölu, sem
þýðir að þú getur fundið og pantað varahluti fljótt og
auðveldlega. Þetta gerir þér kleift að fá sem mest út úr
ábyrgðarþjónustunni.
- Þú verður upplýst(ur) um vöruuppfærslur.
- Þú munt læra mörg ný ráð og brellur.
Fyrir frekari upplýsingar um skráningu tækis þíns, skaltu
fara á www.barbecook.com.
Barbecook virðir friðhelgi þína. Gögnin þín verða aldrei
seld, þeim verður aldrei dreift eða deilt til þriðja aðila.
2.
UM ÞESSA HANDBÓK
Þessi handbók samanstendur af 2 hlutum.
1. hluti inniheldur almennar leiðbeiningar um samsetningu,
notkun, viðhald og ábyrgð.
2. hluti (bls. 56 inniheldur myndskreytingar, lista yfir hluti og
samsetningarteikningar.
Ef það er mynd sem samsvarar tiltekinni leiðbeiningu
í handbókinni verður þér vísað til hennar með þessari
táknmynd af blýanti.
3.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Lestu leiðbeiningarnar áður en tækið er notað. Fylgdu
leiðbeiningunum vandlega. Ef þú setur tækið saman eða notar
það á þann hátt sem víkur frá leiðbeiningunum getur það valdið
eldsvoða og eignatjóni.
Skemmdir af völdum þess að fylgja ekki
leiðbeiningunum (röng samsetning, misnotkun,
óviðeigandi viðhald o.s.frv.) falla ekki undir ábyrgðina.
• AÐVÖRUN! Haltu börnum og gæludýrum fjarri grillinu.
• AÐVÖRUN! Þetta grill verður mjög heitt, ekki reyna að
hreyfa það þegar það er í notkun.
• Notaðu viðeigandi vörn þegar þú þarft að snerta heita hluta.
• Haltu eldfimum efnum, eldfimum vökva og uppleysanlegum
hlutum í öruggri fjarlægð frá tækinu þegar það er í notkun.
• AÐVÖRUN! Ekki nota mengað alkóhól, bensín eða annan
eldfiman vökva til að kveikja eða kveikja aftur á tækinu! Þú
mátt einungis nota kveikjara sem eru í samræmi við EN
1860-3!
• AÐVÖRUN! Ekki byrja að grilla fyrr en kolin eru komin með
öskulag. Þetta tekur vanalega u.þ.b. 15 mínútur.
• Ekki láta grillið vera eftirlitslaust þegar það er í notkun.
• Hafðu vatnsfötu eða sand nálægt þegar þú notar tækið,
sérstaklega á mjög heitum dögum og í þurru umhverfi.
• Ekki nota innandyra! Notaðu tækið ávallt utandyra. Ef þú
notar tækið innandyra, jafnvel inni í bílskúr, lokuðu rými eða
skúr, er hætta á kolsýrings eitrun.
Taktu tillit til eftirfarandi þegar þú velur staðsetningu:
• Settu tækið að minnsta kosti þrjá metra frá byggingu á
opnum, vel loftræstum stað.
• Ekki setja grillið fyrir neðan útbyggingu (verönd, skýli o.s.frv.)
eða undir laufskrúð.
• Settu tækið á slétt og stöðugt yfirborð.
• Ekki setja tækið á ökutæki á hreyfingu (bát, eftirvagn o.s.frv.).
28
4.
SAMSETNING TÆKISINS
4.1. Öryggisleiðbeiningar
• Fjarlægðu allar umbúðir.
• Ekki gera breytingar á tækinu þegar það er sett saman.
Þú mátt ekki breyta neinum hlutum tækisins; þetta er mjög
hættulegt.
• Fylgdu leiðbeiningunum vandlega.
• Notandinn ber ábyrgð á réttri samsetningu tækisins.
Skemmdir af völdum rangrar samsetningar falla ekki undir
ábyrgðina.
4.2. Að setja saman tækið
1. Settu tækið á slétt og stöðugt yfirborð fyrir notkun.
2. Settu tækið saman eins og sýnt er á samsetningarteiknin-
gum.
Þú getur fundið teikningar af samsetningu tækisins
í seinni hluta þessarar handbókar (bls. 58), á eftir
stækkaðri teikningu af tækinu.
5.
AÐ UNDIRBÚA TÆKIÐ TIL NOTKUNAR
Þú þarft vatn, kol, kubba ef þess er óskað, uppkveikjuteninga
eða tundur og langa eldspýtu.
5.1. Hvaða tegund af kolum ætti ég að nota?
Kveiktu alltaf á tækinu með hefðbundnum kolum, aldrei með
kubbum. Eftir að kveikt er á tækinu geturðu bætt við kubbum.
Notaðu góð kol til að kveikja upp í tækinu, helst kol sem eru í
samræmi við EN 1860-2.
Lokaðu kolapokanum vel áður en þú setur hann í
geymslu. Geymið kolin alltaf á þurrum stað, ekki geyma
kol í kjallara.
Hámark 50% (sjá yfirlit hér að neðan) af skálinni má
fylla með kolum. Sé skálin yfirfyllt, getur það valdið
alvarlegum skemmdum á grilli þínu vegna of mikils hita.
Ekki brenna eldivið í grillinu því hitastigið verður of hátt
og skemmir grillið þitt.
5.2. Undirbúningur
1. Verndaðu borðið þitt.
2. Settu keramikskál þína á borðið og helltu í max. 0,5L af vatni.
(Mynd 1)
3. Settu innri skál úr ryðfríu stáli í keramikskálina. (Mynd 2)
5.3. Kveikt á heimilistækinu.
1. Hyldu botninn á innri skálinni úr ryðfríu stáli með kolum.
(Mynd 3)
- Ekki nota of mikið af kolum þegar kveikt er á grillinu.
- Þú getur bætt við nokkrum kolum eða kubbum síðar.
2. Settu uppkveikjuteningana eða tundrið á milli kolamola og
kveikið í þeim með langri eldspýtu. (Mynd 4)
3. Bíddu í 15 mínútur þar til lag af hvítri ösku hefur myndast
á kolunum. (Þetta tekur lengri tíma með kubbum, u.þ.b. 30
mínútur).
Í fyrsta skipti sem þú notar tækið, verður þú að leyfa því
að loga í 30 mínútur. Þetta fjarlægir alla framleiðsluolíu
sem eftir er á tækinu.
Ekki setja grillið strax á tækið. Tómt grill getur aflagast
ef því er haldið yfir hita of lengi.
AÐVÖRUN! Ekki nota mengað alkóhól, bensín eða
annan eldfiman vökva til að kveikja eða kveikja aftur
á tækinu! Þú mátt einungis nota uppkveikju sem eru í
samræmi við EN 1860-3!
www.barbecook.com
Gerð
Hám. þyngd
Joya
Hámark 0,3 kg kol eða
9 kubbar

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Bc-cha-1066

Inhaltsverzeichnis