Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M PELTOR X1A Bedienungsanleitung Seite 44

Gehörschutz
Vorschau ausblenden Andere Handbücher für PELTOR X1A:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 16
VOTTANIR
3M Svenska AB lýsir því hér með yfir að PPE-gerðar
eyrnahlífarnar eru í samræmi við kröfur samkvæmt
reglugerð (ESB) 2016/425 eða tilskipun sambandsins
89/686/EEC og aðrar viðeigandi tilskipanir til að
uppfylla kröfur vegna CE-merkingar. Hægt er að fá
upplýsingar um viðeigandi löggjöf með því að sækja
samræmisyfirlýsingu (DoC) á www.3M.com/PELTOR/doc.
Samræmisyfirlýsingin sýnir einnig ef aðrar gerðarvottanir
gilda um þau. Þegar samræmisyfirlýsing er sótt, finndu
vinsamlegast hlutanúmer þitt. Þú finnur hlutanúmer
eyrnahlífanna prentað á skálinni. Hægt er að fá send
afrit af samræmisyfirlýsingu og viðbótarupplýsingum
sem krafist er í tilskipununum með því að hafa samband
við 3M í því landi sem varan var keypt. Upplýsingar um
tengiliði má finna aftast í þessum notendaleiðbeiningum.
Varan hefur verið prófuð og vottuð í samræmi við
EN 352-1:2002/EN 352-3:2002. Þessar PPE-vörur
eru endurskoðaðar árlega (séu þær í flokki III) og
gerðarvottaðar af Finnish Institute of Occupational
Health, vottunarstofnun nr. 0403, Topeliuksenkatu 41 b,
FI-00250 Helsinki, Finnlandi.
HLJÓÐDEYFING Í RANNSÓKNARSTOFU
Útskýringar á töflu yfir deyfigildi:
Rannsóknir benda til þess að hjá mörgum notendum sé
hljóðeinangrun minni en hljóðdeyfingartöflur á umbúðum
gefa til kynna vegna frávika við að fella hlífarnar að
hverjum notanda fyrir sig og færni hans og hvatningu til
þess. Kynntu þér viðeigandi reglur um leiðbeiningar um
aðlögun gilda á merkimiða og mat á hljóðdeyfingu. 3M
mælir auk þess eindregið með því að kanna hvort
heyrnarhlífar passa.
Evrópustaðall EN 352
A:1 Tíðni (Hz)
A:2 Meðal hljóðdeyfing (dB)
A:3 Staðalfrávik (dB)
A:4 Ætlað verndargildi, APV (dB)
A:5
H = Mat á heyrnarvernd vegna
hátíðnihljóða (ƒ ≥ 2.000 Hz).
M = Mat á heyrnarvernd vegna
millitíðnihljóða (500 Hz < ƒ < 2.000 Hz).
L = Mat á heyrnarvernd vegna
lágtíðnihljóða (ƒ ≤ 500 Hz).
SAMRÝMANLEGIR ÖRYGGISHJÁLMAR
ATVINNUMANNA
Einungis ætti að festa þessar eyrnahlífar á og nota með
þeim öryggishjálmum fyrir atvinnumenn sem tilgreindir
eru í töflu C. Eyrnahlífar þessar voru prófaðar ásamt
eftirfarandi öryggishjálmum og gætu veitt öðruvísi vernd
með öðrum tegundum hjálma.
Útskýringar á töflu um hjálmfestingar fyrir
iðnaðaröryggishjálma:
C:1 Hjálmaframleiðandi
C:2 Hjálmgerð
C:3 Hjálmfesting
C:4 Höfuðstærð: S = lítið, M = miðlungs, L = stórt
ÍHLUTIR
Höfuðspöng (ryðfrír stálvír, TPE, fjölester,
pólýprópýlen, asetal)
Hjálmfestingararmur (asetal, fjölamíð)
Púði (PVC-þynna og PUR-frauð)
Frauðfóður (PUR-frauð)
Skál (ABS, TPU)
LEIÐBEININGAR UM UPPSETNINGU
Höfuðspöng
B:1 Stilltu hæð skálanna með því að renna þeim upp eða
niður á meðan höfuðspönginni er haldið á sínum stað.
B:2 Höfuðspöngin ætti að liggja yfir hvirfilinn eins og
myndin sýnir og þyngd heyrnartólanna ætti að hvíla þar.
Hjálmfesting
B:6 Komdu hjálmfestingunum fyrir í festiraufunum á
hjálminum og smelltu þeim á sinn stað (B:7).
B:8 Vinnustaða: Þrýstu höfuðspangarvírunum inn á við
þar til þú heyrir smell báðum megin. Gættu þess að
skálar og höfuðspangarvírar þrýsti ekki á hjálmbrúnina í
vinnustöðu þar sem það gæti dregið úr hljóðdeyfingu
eyrnahlífanna.
B:9 Loftræstistaða: Togaðu eyrnaskálarnar út á við uns
þú heyrir smell til þess að stilla heyrnartólin í
loftræstistöðu. Forðastu að leggja skálarnar að hjálminum
(B:10) því það hindrar loftræstingu.
38
i

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

X2aX3aX4aX5aX1p3X2p3 ... Alle anzeigen

Inhaltsverzeichnis