Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

ABL eMH3 Bedienungsanleitung/Sicherheitshinweise Seite 163

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für eMH3:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 11
Villur og bilanir lagfærðar
Komið geta upp villur og bilanir við notkun vegghleðslustöðvarinnar.
Lýsing
Rafbíllinn greinist ekki.
Orsök og tillaga að úrlausn
ƒ Hleðslusnúrunni hefur ekki verið stungið rétt í samband.
y Takið hleðslusnúruna úr sambandi við hleðslutengið á bílnum og stingið henni svo aftur í samband.
y Þegar um vegghleðslustöð með hleðslutengli er að ræða: Takið einnig hleðsluklóna úr
hleðslutengli vegghleðslustöðvarinnar og stingið henni síðan aftur í samband.
y Skoðið hleðslusnúruna og skiptið um hana ef þess þarf.
Lýsing
Rauðu, grænu og bláu ljósdíóðurnar á vegghleðslustöðinni loga eða blikka með tilteknu mynstri sem er
endurtekið.
Orsök og tillaga að úrlausn
ƒ Vegghleðslustöðin greindi villu eða bilun sem gerir að verkum að ekki er hægt að hlaða eða hleðslan
er stöðvuð. Blikkmynstur ljósdíóðanna er endurtekið lotubundið þar til villan eða bilunin hefur verið
lagfærð.
y Vegghleðslustöðin byrjar aftur að hlaða sjálfkrafa eftir 30 eða 60 sekúndur.
y Takið strauminn af vegghleðslustöðinni með einum eða fleiri innbyggðum lekastraumsrofum hennar
og setjið strauminn síðan aftur á.
y Takið hleðslusnúruna úr sambandi við hleðslutengið á bílnum og stingið henni svo aftur í samband.
y Þegar um vegghleðslustöð með hleðslutengli er að ræða: Takið einnig hleðsluklóna úr
hleðslutengli vegghleðslustöðvarinnar og stingið henni síðan aftur í samband.
y Ef villan er viðvarandi, hafðu samband við hæfan rafvirkja til að laga hana.
y Ef skipta þarf vegghleðslustöðinni út skal hafa samband við söluaðilann þar sem hún var keypt.
Lýsing
Grænu og bláu ljósdíóðurnar á hleðslustaðnum loga stöðugt, en rauða ljósdíóðan logar ekki.
Orsök og tillaga að úrlausn
ƒ Wallbox eMH3 er óvirk og ekki er hægt að setja hleðslu í gang.
y Hafið samband við faglærðan rafvirkja til þess að láta skoða vegghleðslustöðina.
y Ef skipta þarf vegghleðslustöðinni út skal hafa samband við söluaðilann þar sem hún var keypt.
Lýsing
Ljósdíóðurnar á vegghleðslustöðinni virka ekki.
Orsök og tillaga að úrlausn
ƒ Vegghleðslustöðin er ekki tengd við rafmagn.
y Athugið innbyggða(n) lekastraumsrofa(nn) og sláið aftur inn með þeim/honum ef þess þarf.
y Athugið sjálfvarið í rafmagnstöflu hússins og sláið því aftur inn ef þess þarf.
y Látið faglærðan rafvirkja skoða rafmagnsleiðsluna og lagfæra hana ef þess þarf.
Wallbox eMH3 – Villur og bilanir lagfærðar
|
163

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

0301598 b

Inhaltsverzeichnis