Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M PELTOR Tactical XP MT1H7x2 Serie Handbuch Seite 64

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 22
„External input mode" (Hljóðmerki inn (bara heyrnartól))
Hægt er að stilla ytra ílag á þrenna vegu. Reyndu öll þrjú
þrepin þar til það finnst sem hentar best viðtengda tækinu.
„External input volume" (Styrkur hljóðmerkis inn (bara
heyrnartól))
Hægt er að stilla hljóðstyrk ytra ílags á Normal (Venjulegt)
eða High (Hátt).
HREINSUN OG VIÐHALD
Notaðu klút vættan í sápu og heitu vatni til þess að hreinsa
ytri skálar, höfuðspöng og eyrnapúða.
ATHUGASEMD: EKKI setja heyrnarhlífarnar ofan í vatn.
Ef heyrnarhlífarnar blotna í rigningu eða af svita, skaltu snúa
eyrnahlífunum út, fjarlægja eyrnapúða og frauðfóður og láta
allt þorna áður en þær eru settar saman á ný. Eyrnapúðar og
frauðfóður getur skemmst við notkun og leita ætti reglubundið
að sprungum í þeim og öðrum skemmdum. 3M mælir með
því að skipt sé um frauðfóður og eyrnapúða að minnsta
kosti tvisvar á ári við reglubundna notkun til þess að tryggja
áreiðanlega hljóðdeyfingu, hreinlæti og þægindi. Skemmist
eyrnapúði, ber að skipta um hann. Sjá kafla um varahluti hér
að neðan.
AÐ FJARLÆGJA UM EYRNAPÚÐA OG SKIPTA UM ÞÁ
E:1 Settu fingur undir innri brún eyrnapúðans og kipptu
honum ákveðið beint út til þess að fjarlægja hann.
E:2 Fjarlægðu frauðfóður sem fyrir er og settu nýtt í staðinn.
E:3 Komdu annarri hlið eyrnapúðans fyrir í grópinni
á eyrnaskálinni og þrýstu svo á hinum megin þar til
eyrnapúðinn smellur á sinn stað.
VARAHLUTIR OG FYLGIHLUTIR
3M™ PELTOR™ HY79 Hreinlætisbúnaður
Útskiptanlegt hreinlætissett. Skiptu um a.m.k. tvisvar á ári til
að tryggja samfellda deyfingu, hreinlæti og þægindi.
3M™ PELTOR™ HY100A Einnota hlífar
Einnota hlíf sem auðvelt er að koma fyrir á eyrnapúðana.
3M™ PELTOR™ HYM1000 Hljóðnemahlíf
Raka- og vindhelt límband sem verndar talnemann.
3M™ PELTOR™ M41/2 Vindhlíf fyrir hljóðnemana
ÁBYRGÐ OG TAKMÖRKUÐ SKAÐABÓTASKYLDA
ÁBYRGÐ: Komi í ljós að einhver vara frá 3M Personal Safety
Division sé gölluð hvað efnivið eða handbragð varðar og ekki
í samræmi við ótvíræða ábyrgð varðandi sérstakan tilgang,
er eina skuldbinding 3M og úrbót þér til handa sú að 3M
velur sjálft um að gera við, skipta um eða endurgreiða þér
kaupverð viðkomandi hluta eða vöru, að því tilskyldu að þú
hafir tilkynnt í tíma um vandamálið og að staðfest sé að varan
hafi verið geymd, henni viðhaldið og hún notuð í samræmi við
skriflegar leiðbeiningar 3M. ÁBYRGÐ ÞESSI EINSKORÐAST
VIÐ OG KEMUR Í STAÐINN FYRIR ALLA YFIRLÝSTA
ÁBYRGÐ EÐA ÁBYRGÐ SEM GEFIN ER Í SKYN UM
SELJANLEIKA, GAGNSEMI Í ÁKVEÐNUM TILGANGI EÐA
AÐRA ÁBYRGÐ UM GÆÐI EÐA ÁBYRGÐ SEM SPRETTUR
AF SÖLU, VENJU EÐA NOTKUN Í STARFI, NEMA HVAÐ
VARÐAR TILKALL OG VEGNA BROTA GEGN EINKALEYFI.
3M ber samkvæmt ábyrgð þessari engar skyldur vegna
neinnar vöru sem ekki skilar ætluðum árangri vegna
ófullnægjandi eða rangrar geymslu, meðferðar eða viðhalds,
þegar ekki er farið eftir leiðbeiningum með vörunni eða
þegar henni er breytt eða hún skemmd af slysni eða vegna
vanrækslu eða rangrar notkunar.
TAKMÖRKUN Á ÁBYRGÐ: 3M SKAL AÐ ENGU LEYTI
BERA ÁBYRGÐ Á NEINU BEINU, ÓBEINU, SÉRSTÖKU,
TILFALLANDI EÐA AFLEIDDU TJÓNI EÐA SKEMMDUM
(ÞAR MEÐ TALIÐ HAGNAÐARTAP) SEM SPRETTUR
AF VÖRU ÞESSARI, BURTSÉÐ FRÁ ÞVÍ HVAÐA
LAGAKENNINGUM ER BEITT, NEMA ÞAR SEM ÞAÐ ER
LÖGUM SAMKVÆMT BANNAÐ. ÚRRÆÐI EINSKORÐAST
VIÐ ÞAÐ SEM HÉR ER GREINT FRÁ.
ENGAR BREYTINGAR: Ekki skal gera neinar breytingar á
tæki þessu nema með skriflegu samþykki 3M fyrirtækisins.
Óheimilar breytingar gætu ógilt ábyrgð og heimild notanda til
þess að nota tækið.
ATHUGASEMD:
• Ekki nota saman gamlar og nýjar rafhlöður.
• Ekki nota saman alkaline, venjulegar eða hleðslurafhlöður.
• Farðu eftir reglum á hverjum stað um förgun fastra efna til
að farga rafhlöðum á ábyrgan hátt.
• Ef heyrnartólin leyfa endurhleðslu: Ekki hlaða alkaline-
rafhlöður, það gæti skaðað heyrnartólin.
• Notaðu eingöngu AA einnota rafhlöður eða Ni-MH
hleðslurafhlöður (eins og við á).
56
IS

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis