Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M PELTOR Tactical XP MT1H7x2 Serie Handbuch Seite 61

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 22
IS
3M™ PELTOR™ Tactical XP Headset
MT1H7*2 series
INNGANGUR
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja samskiptalausn frá
3M™ PELTOR™! Velkomin að næstu kynslóð persónuhlífa
með samskiptabúnaði.
ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum 3M™ PELTOR™ heyrnartólum er ætlað að veita
vernd gegn hávaða sem fer yfir hættumörk og háum hljóðum
um leið og notandinn heyrir umhverfishljóð um ytri hljóðnema
og hlustar á hljóðflutningstæki. Gert er ráð fyrir því að allir
notendur lesi og skilji meðfylgjandi leiðbeiningar notenda
ásamt því að kunna að nota tækið.
MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu
eftir þeim áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar. Hafðu
samband við tæknideild 3M (samskiptaupplýsingar er að
finna á öftustu síðu).
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða
og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar
rangt eða notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í
hættulegum hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar
eða -taps. Ræddu við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar
notenda eða hafðu samband við tæknideild 3M til þess að
kynna þér rétta notkun. Ef þér finnst eins og þú sért með
bómull í eyrunum eða heyrir són eða suð í eða eftir hávaða
(byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra ástæðu
til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu yfirgefa
hávaðasama umhverfið umsvifalaust og hafa samband við
lækni og/eða verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það leitt til
alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
a. Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð, getur það
dregið úr athygli á umhverfinu og getunni til þess að heyra
viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt stillt
og mögulegt er að sætta sig við. Erfiðara getur reynst að
heyra viðvörunarmerki á vinnustaðnum á meðan hlustað er
á afþreyingu.
b. Notaðu ekki búnaðinn í mögulega sprengifimu umhverfi
til að draga úr hættu á því að sprenging verði.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það dregið úr
verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt til heyrnartjóns:
a. Rannsóknir benda til þess að hjá mörgum notendum sé
hljóðeinangrun minni en hljóðdeyfingartöflur á umbúðum
gefa til kynna vegna frávika við að fella hlífarnar að hverjum
notanda fyrir sig og færni hans og hvatningu til þess. Kynntu
þér viðeigandi reglur um leiðbeiningar um aðlögun gilda
á merkimiða og mat á hljóðdeyfingu. Auk þess mælir 3M
eindregið með því að kanna hvort heyrnarhlífar passa.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim
komið fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum
komið fyrir á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans til
þess að deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi upplýsingar
um rétta notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða forðastu
hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum
(t.d. öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að
velja sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess
að þau hafi sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana.
Fjarlægðu allt annað (t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól,
hreinlætishlífar o.s.frv.) sem gæti dregið úr einangrunargildi
eyrnahlífapúðanna og verndargildi hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspöng eða hálsspöng
og gættu þess að hún sé nógu öflug til þess að halda
heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f. Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir
með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu millibili í
leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu heyrnarhlífapúðarnir
notaðir reglulega, ber að skipta um þá og frauðhringina að
minnsta kosti tvisvar á ári til þess að viðhalda fullnægjandi
vernd, hreinlæti og þægindum.
g. Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur farið
fram yfir dagleg hávaðamörk. Hafðu hljóðið eins lágt stillt og
mögulegt er að sætta sig við.
h. Sé ekki farið eftir ofangreindum kröfum, skerðir það
verndareiginleika eyrnahlífanna verulega.
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti
farið fram yfir dagleg hávaðamörk.
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika eyrnahlífanna.
• Afköst geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla
minnkar. Gera má ráð fyrir því að rafhlaða í eyrnatöppunum
endist dæmigert í 1000 klukkutíma við samfellda notkun.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru þessari.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Þessar heyrnarhlífar eru í stærðinni stórar. Eyrnahlífar
sem uppfylla kröfur EN 352-1 eru í „millistærð" eða „lítilli
stærð" eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í „millistærð" henta
meirihluta notenda. Eyrnahlífar í „lítilli stærð" eða „stórri
stærð" eru hannaðar fyrir notendur sem ekki geta notað
millistærð af eyrnahlífum.
• Eyrnahlífar þessar festar á hjálm eru í „stórri stærð".
Eyrnahlífar fyrir hjálma sem uppfylla kröfur EN 352-3 eru í
„millistærð" eða „lítilli stærð" eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í
„millistærð" fyrir hjálma henta meirihluta notenda. Eyrnahlífar
í „lítilli stærð" eða „stórri stærð" fyrir hjálma eru hannaðar
fyrir notendur sem ekki geta notað eyrnahlífar af millistærð.
VARÚÐ:
• Sé röng rafhlaða notuð, getur verið hætta á sprengingu.
53

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis