Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Peltor MT73H7*4D10EU-5 Bedienungsanleitung Seite 124

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 37
að kynna sér rétta notkun þeirra áður en hún hefst. Ef hljóð
er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita ráða
hjá framleiðanda um viðhald og hvernig skipta á um rafhlöðu.
• Á heyrnarhlífunum er innstunga fyrir hljóðtæki. Notandi ætti
að kynna sér rétta notkun þeirra áður en hún hefst. Ef hljóð
er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita
lausna í handbók framleiðanda.
• Heyrnarhlífarnar takmarka hljóðmerki við afþreyingarhlustun
við 82 dB(A) við eyra.
• Þeir sem nota öryggishjálma með heyrnarhlífum í Kanada,
skulu kynna sér CSA Staðal Z94.1 um öryggishjálma
atvinnumanna.
• Fyrir ekki-eiginöruggar gerðir:
Hitastig við notkun: -20°C (-4°F) til 55°C (131°F)
Hitastig við geymslu: -20°C (-4°F) til 55°C (131°F)
• Fyrir eiginöruggar gerðir:
Hitastig við notkun: -20°C (-4°F) til 50°C (122°F)
Hitastig við geymslu: -20°C (-4°F) til 50°C (122°F)
Þegar valdir eru fylgihlutir með persónuhlífum á borð við
öndunargrímur, til dæmis heyrnarhlífar á öryggishjálma,
kynntu þér þá vinsamlegast NIOSH-vottunarmiðann eða
kannaðu viðurkenndar samsetningar hjá tæknideild 3M.
Varan inniheldur bæði rafeinda- og rafmagnsbúnað
og því má ekki farga henni með venjulegu sorpi. Kynntu þér
vinsamlegast reglur á hverjum stað um förgun rafeinda- og
rafmagnsbúnaðar.
VOTTANIR
3M Svenska AB lýsir því hér með yfir að Bluetooth
fjarskiptabúnaðurinn uppfyllir samræmiskröfur í tilskipun
2014/53/ESB og öðrum viðeigandi tilskipunum til þess að
uppfylla kröfur um CE-merkingu. 3M Svenska AB lýsir því
einnig yfir að PPE-gerðar heyrnartólin séu í samræmi við
reglugerð (ESB) 2016/425 eða ESB-tilskipun 89/686/EES.
Hægt er að fá upplýsingar um viðeigandi löggjöf með því að
sækja samræmisyfirlýsingu (DoC) á www.3M.com/peltor/doc.
Samræmisyfirlýsingin sýnir einnig ef aðrar gerðarvottanir gilda
um þau. Þegar samræmisyfirlýsing er sótt, finndu vinsamlegast
hlutanúmer þitt. Finna má hlutanúmer eyrnahlífanna neðst
á annarri skálinni. Dæmi um það má sjá á myndinni hér að
neðan.
PPE-vara er endurskoðuð árlega (sé hún í flokki III) og
gerðarvottuð af Finnish Institute of Occupational Health,
vottunarstofnun nr. 0403, Topeliuksenkatu 41 b, FI-00250
Helsinki í Finnlandi. Varan hefur verið prófuð og vottuð í
samræmi við EN 352-1:2002/EN 352-3:2002, EN 352-4:2001/
A1:2005, EN 352-6:2002 og EN 352-8:2008.
Hægt er að fá send afrit af samræmisyfirlýsingu og
viðbótarupplýsingum sem krafist er í tilskipununum með
því að hafa samband við 3M í því landi sem varan var
keypt. Upplýsingar um tengiliði er að finna aftast í þessum
notendaleiðbeiningum.
HLJÓÐDEYFING Í RANNSÓKNARSTOFU
Hljóðdeyfigildi (SNR/NRR) var fundið þegar slökkt var á
tækinu. Útskýringar á töflu yfir deyfigildi:
A. Evrópustaðall EN 352
Rannsóknir benda til þess að hjá mörgum notendum sé
hljóðeinangrun minni en hljóðdeyfingartöflur á umbúðum
gefa til kynna vegna frávika við að fella hlífarnar að hverjum
notanda fyrir sig og færni hans og hvatningu til þess. Kynntu
þér viðeigandi reglur um leiðbeiningar um aðlögun gilda
á merkimiða og mat á hljóðdeyfingu. 3M mælir auk þess
eindregið með því að kanna hvort heyrnarhlífar passa.
A:1 Tíðni (Hz)
A:2 Meðal hljóðdeyfing (dB)
A:3 Staðalfrávik (dB)
A:4 Ætlað verndargildi, APV (dB)
A:5
H = Mat á heyrnarvernd vegna hátíðnihljóða (ƒ ≥ 2.000 Hz).
M = Mat á heyrnarvernd vegna millitíðnihljóða
(500 Hz < ƒ < 2.000 Hz).
L = Mat á heyrnarvernd vegna lágtíðnihljóða (ƒ ≤ 500 Hz).
A:6 Viðmiðunarstig
H = Viðmiðsstyrkur fyrir hátíðnihljóð
M = Viðmiðsstyrkur fyrir millitíðnihljóð
L = Viðmiðsstyrkur fyrir lágtíðnihljóð
Tafla yfir viðmiðsstyrk gildir um styrkstýrð heyrnartól, EN 352-
4:2001/A1:2005
og
®
B. Bandarískur staðall ANSI S3.19-1974
3M mælir eindregið með því að hver og einn notandi felli
heyrnarhlífarnar vandlega að sér. Sé notast við NRR-staðla til
að meta dæmigerða vernd á vinnustað, mælir 3M með því að
hávaðadeyfigildið sé lækkað um 50% í samræmi við gildandi
reglugerðir.
B:1 Tíðni (Hz)
B:2 Meðal hljóðdeyfing (dB)
B:3 Staðalfrávik (dB)
B:4 Prófað með 3M™ PELTOR™ öryggishjálmi af gerð H-700
Sá hljóðstyrkur sem berst inn í eyrað, séu heyrnarhlífar
notaðar, eru nokkurn veginn í samræmi við bilið á milli A-vegins
hljóðstyrks umhverfishljóða og NRR.
Dæmi
1. Hljóðstyrkur umhverfishljóða mældur við eyra er 92 dB(A).
2. NRR er 25 desíbel (dB).
3. Sá hljóðstyrkur sem berst inn í eyrað er um það bil jafngildur
67 dB(A).
VARÚÐ: Séu umhverfishljóðin að mestu undir 500 Hz, ætti að
miða við C-veginn styrk umhverfishljóða.
C. Samrýmanlegir öryggishjálmar fyrir atvinnumenn
Einungis ætti að festa þessar eyrnahlífar á og nota með þeim
öryggishjálmum fyrir atvinnumenn sem tilgreindir eru í töflu D.
116
IS

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis