Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Peltor MT73H7*4D10EU-5 Bedienungsanleitung Seite 123

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 37
IS
hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar eða -taps. Ræddu
við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar notenda eða hafðu
samband við tæknideild 3M til að kynna þér rétta notkun
(samskiptaupplýsingar á öftustu síðu). Ef þér finnst eins og
þú sért með bómull í eyrunum eða heyrir són eða suð í eða
eftir hávaða (byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur einhverja
aðra ástæðu til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu
yfirgefa hávaðasama umhverfið umsvifalaust og hafa samband
við lækni og/eða verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það leitt til
alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð, getur það
dregið úr athygli á umhverfinu og getunni til þess að heyra
viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt stillt
og mögulegt er að sætta sig við. Erfiðara getur reynst að
heyra viðvörunarmerki á vinnustaðnum á meðan hlustað er á
afþreyingu.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það dregið úr
verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt til heyrnartjóns:
a. Rannsóknir benda til þess að hjá mörgum notendum sé
hljóðeinangrun minni en hljóðdeyfingartöflur á umbúðum
gefa til kynna vegna frávika við að fella hlífarnar að hverjum
notanda fyrir sig og færni hans og hvatningu til þess. Kynntu
þér viðeigandi reglur um leiðbeiningar um aðlögun gilda
á merkimiða og mat á hljóðdeyfingu. 3M mælir auk þess
eindregið með því að kanna hvort heyrnarhlífar passa.
Sé notast við NRR-staðla til að meta dæmigerða vernd á
vinnustað, mælir 3M með því að hávaðadeyfigildið sé lækkað
um 50% í samræmi við gildandi reglugerðir.
b. Gættu þess að heyrnarhlífar séu valdar, þeim komið fyrir,
þær aðfelldar og haldið við á réttan hátt. Sé búnaðinum komið
fyrir á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans til þess að
deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi upplýsingar um rétta
notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða forðastu
hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum (t.d.
öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að velja
sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess að þau hafi
sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana. Fjarlægðu allt annað
(t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól, hreinlætishlífar o.s.frv.)
sem gæti dregið úr einangrunargildi eyrnahlífapúðanna og
verndargildi hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspöng eða hálsspöng
og gættu þess að hún sé nógu öflug til þess að halda
heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f. Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir
með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu millibili í
leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu heyrnarhlífapúðarnir
notaðir reglulega, ber að skipta um þá og frauðhringina að
minnsta kosti tvisvar á ári til þess að viðhalda fullnægjandi
vernd, hreinlæti og þægindum.
g. Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur farið
fram yfir dagleg hávaðamörk. Hafðu hljóðið eins lágt stillt og
mögulegt er að sætta sig við.
h. Sé ekki farið eftir ofangreindum kröfum, skerðir það
verndareiginleika eyrnahlífanna verulega.
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti farið
fram yfir ytri hávaðamörk.
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti farið
fram yfir dagleg hávaðamörk.
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika eyrnahlífanna.
• Afköst geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla minnkar.
Gera má ráð fyrir því að rafhlaðan í heyrnarhlífunum endist
dæmigert í 8 – 13 klukkutíma við samfellda notkun.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru þessari.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Þessar heyrnarhlífar eru í stærðinni stórar. Eyrnahlífar sem
uppfylla kröfur EN 352-1 eru í „millistærð" eða „lítilli stærð"
eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í „millistærð" henta meirihluta
notenda. Eyrnahlífar í „lítilli stærð" eða „stórri stærð" eru
hannaðar fyrir notendur sem ekki geta notað millistærð af
eyrnahlífum.
• Eyrnahlífar þessar festar á hjálm eru í „stórri stærð".
Eyrnahlífar fyrir hjálma sem uppfylla kröfur EN 352-3 eru í
„millistærð" eða „lítilli stærð" eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í
„millistærð" fyrir hjálma henta meirihluta notenda. Eyrnahlífar
í „lítilli stærð" eða „stórri stærð" fyrir hjálma eru hannaðar fyrir
notendur sem ekki geta notað eyrnahlífar af millistærð.
VARÚÐ:
• Notaðu ávallt sértilgreinda 3M varahluti. Sé notast við aðra
varahluti en upprunalega gæti það dregið úr verndinni sem
varan á að veita.
• Sé röng rafhlaða notuð, getur verið hætta á sprengingu.
• Hætta er á eldsvoða og brunasárum, séu lithium-ion
rafhlöður notaðar. Ekki opna, brjóta eða hita upp í meira
en 55°C (131°F) (ACK081), 50°C (122°F) (ACK082) eða
kveikja í.
ATHUGASEMD
• Þegar heyrnarhlífarnar eru notaðar í samræmi við
leiðbeiningar notenda, draga þær bæði úr stöðugum
hávaða, svo sem í iðnaði eða frá ökutækjum og flugvélum,
og skyndilegum hávaða, til dæmis byssuskotum. Erfitt er
að segja fyrir um þá heyrnarvernd sem þörf er á eða í raun
er veitt hvað varðar váhrif af skyndilegum hávaða. Það
hefur áhrif á vernd gegn hávaða frá byssuskotum um hvaða
tegund vopns er að ræða, hve mörgum skotum er hleypt
af, hvaða heyrnarhlífar eru valdar, hvernig þær passa og
eru notaðar, hvernig um þær er annast og fleira. Kynntu þér
betur heyrnarvernd gegn skyndilegum hávaða á vefsíðunni
www.3M.com/hearing.
• Jafnvel þótt hægt sé að mæla með því að heyrnarhlífar séu
notaðar til að verjast áhrifum af óvæntum hávaða, byggist
mat á hljóðdeyfingu (NRR) á deyfingu samfellds hávaða og
er því ekki endilega nákvæm vísbending um þá vörn sem
fæst gegn óvæntum og skyndilegum hávaða á borð við
byssuhvell (orðalag að beiðni EPA).
• Heyrnartólin eru búin styrkstýrðri hljóðdeyfingu. Notandi ætti
115

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis