Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Tæknilegar Upplýsingar - Peltor 3M WS ProTac XP Bedienungsanleitung

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 16
IS
4. AÐRAR AÐGERÐIR
• Síðasta stilling vistast þegar slökkt er á tækinu.
• Sé rafhlaða að tæmast er það staðfest með raddskilaboðum: „low battery" (rafhlaða að tæmast).
• Rafræn hljóðdeyfing í varahljóðnema.
5. MIKILVÆGAR NOTENDAUPPLÝSINGAR
Setja þarf heyrnarhlífarnar upp, stilla þær og halda við í samræmi við upplýsingar í handbókinni.
Alltaf skal bera heyrnarhlífarnar á þeim tíma sem dvalist er í hávaðasömu umhverfi og þær athugaðar reglulega með tilliti til
mögulegs þjónustuviðhalds.
Eyrnahlífin er útbúin hljóðstigsstýrðri deyfingu. Þú ættir að kynna þér rétta notkun tækisins áður en það er tekið í notkun. Sé hljóð
brenglað eða bilun kemur fram, skaltu kynna þér handbók framleiðanda um rafhlöðuskipti.
Viðvörun! Afköst tækisins geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla minnkar.
Viðvörun! Úttak frá hljóðstigsstýringu heyrnarhlífanna getur farið yfir daglegt hámark hljóðstyrks.
Heyrnarhlífarnar eru búnar rafrænu hljóðúttaki. Notandinn ætti að kanna rétt handbrögð fyrir notkun. Ef vart verður við brenglað
hljóð eða bilun, ætti að leita ráða í handbók framleiðanda.
Viðvörun! Styrkur hljóðs í hljómflutningsbúnaði heyrnarhlífanna getur farið yfir daglegt hámark hljóðstyrks.
Í þessum heyrnarhlífum er hlustunarbúnaður til afþreyingar. Hljóðstyrkur hlustunarbúnaðarins takmarkast við 82 dB (A)
hljóðstyrk við eyra sem gefur hámarks ílagsmerki samkvæmt Bluetooth-staðli.
Viðvörun! Á meðan afþreyingarbúnaðurinn er notaður geta viðvörunarmerki orðið daufari.
ATHUGASEMD! Bera þarf heyrnarhlífarnar allan tímann til þess að tryggja fulla vernd gegn heyrnarskerðingu.
Fari hávaði í umhverfinu yfir 82 dB A-veginn styrk, þarf að vernda heyrnina. Heyrnarviðtakarnir í innri eyrum þínum geta skaðast
varanlega ef þú lyftir skálum heyrnarhlífa þinna jafnvel um skamma hríð í hávaðasömu umhverfi.
Það að nota þægilegar heyrnarhlífar, sérhannaðar fyrir það hávaðastig þar sem þær eru í notkun, er besta tryggingin fyrir því að
þú berir heyrnarhlífar allan tímann til þess að vernda þig gegna varanlegri heyrnarskerðingu.
Til að fá fulla vörn þarf að ýta frá hárinu kringum eyrun svo að þéttihringirnir falli þétt að höfðinu. Allar spangir á gleraugum eða
hlífðargleraugum ættu að vera eins mjóar og hægt er svo heyrnarhlífarnar falli sem þéttast að höfðinu.
Viðvörun! Sé tilmælum í handbók þessari ekki framfylgt, getur það komið illa niður á þeirri vernd sem heyrnarhlífunum er ætlað
að veita.
MIKILVÆGT! Til að fá fulla vörn þarf að ýta frá hárinu kringum eyrun svo að þéttihringirnir falli þétt að höfðinu.
Gleraugnaspangir eiga að vera eins mjóar og hægt er og falla þétt að höfðinu.
6. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
6:1 Hljóðdeyfigildi, SNR (mynd F)
Deyfigildi og styrkhlutfall heyrnarhlífanna eru prófuð og vottuð í samræmi við EN 352-1: 2002, EN 352-3:2002, EN 352-4:
2001/A1:2005, EN 352-6: 2002, EN 352-8: 2008. Prófun og vottun er í höndum Combitech AB, Box 168, SE-73223, Arboga,
Svíþjóð, ID#2279.
Skýringar með töflum um deyfigildi:
1. Þyngd
2. Tíðni (Hz)
3. Meðalgildi deyfingar (dB)
4. Staðalfrávik (dB)
5. Ætlað verndargildi (dB)
6:2 Váhrif hljóðs við notkun Flex-tengis (mynd G)
Styrkur heyrnartóla fyrir tónlist er mældur við:
Hám. AUX hljóðstyrkur inn = 1.5 V rms
Tafla (G) sýnir hljóðþrýstingsgildi í samræmi við styrk ílags í Flex-tengi (B:6). G:2 sýnir meðalhljóðþrýstingsgildi (dBA), og
G:3 sýnir staðalfrávik hljóðþrýstings (dBA) við tilgreindan ílagshljóðstyrk (G:1) (mV, RMS).
AUX hljóðstyrkur inn: 32 mV rms = 82dB
59

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis